16/04/2026
Kæru viðskiptavinir og samstarfsaðilar,
Við viljum tilkynna ykkur að Fín Vín hefur nú tekið við sölu og dreifingu á vínum sem áður voru á vegum BS Heildsölu.
Við erum afar þakklát fyrir það traust og samstarf sem þið hafið sýnt okkur undanfarin misseri. Það hefur verið ánægjulegt að byggja upp þessi sambönd og kynna ykkur fyrir þeim gæðum sem við höfum lagt áherslu á í okkar starfi.
Við erum fullviss um að Fín Vín muni halda áfram á sömu braut og veita framúrskarandi þjónustu og fagmennsku. Við hvetjum ykkur til að halda áfram viðskiptum við þau og óskum þeim alls hins besta í framhaldinu.
Að lokum viljum við þakka ykkur innilega fyrir samstarfið og stuðninginn – það hefur skipt okkur miklu máli.
Með bestu kveðju,
BS Heildsala