15/05/2023
Virðing okkar fyrir íslenskum bændum stýrði því að við fengum Landbúnaðarháskóla Íslands til að framkvæma rannsókn á því hvort 100% endurunna heyrúlluplastið frá Folgos henti við íslenskar aðstæður og hvort einhver munur reynist á heygæðum sé það notað.
Á dögunum skilaði LBHÍ af sér niðurstöðum rannsóknar sinnar og í stuttu máli reyndist enginn marktækur munur á heygæðum og getum við því nú með fullri sannfæringu og góðri samvisku fullyrt að plastið henti vel við íslenskar aðstæður.
Ávinningurinn er stóraukin þátttaka íslenskra bænda í hringrásarhagkerfinu og allt að 80% lægra kolefnisfótspor við heyverkun. Ef allir íslenskir bændur myndu nýta 100% endurunna heyrúlluplastið frá Folgos myndi kolefnisfótspor íslensks landbúnaðar lækka um allt að 4.160 tonn á ári!
Plastið er fáanlegt bæði hjá Fóðurblöndunni og Líflandi og hvetjum við íslenska bændur til að prófa, taka þátt í hringrásinni og lækka kolefnisfótspor sitt í heyskap!.
Samkvæmt nýlegum niðurstöðum úr prófunum á Hvanneyri er virkni á endurunnu rúlluplasti á pari við annað rúlluplast. Það segir Tryggvi Marinósson, framkvæmdastjóri hjá Silfrabergi umbúðalausnum. Í fyrrasumar flutti hann inn lítið magn af endurunnu rúlluplasti, frá pólska f...