Kjarkur ráðgjöf

Kjarkur ráðgjöf Kjarkur ráðgjöf er ráðgjafafyrirtæki sérhæfir sig í vinnuvernd.

Við byggjum á áralangri og fjölbreyttri reynslu á því sviði og hugum bæði að líkamlegri og sálfélagslegri vinnuvernd.

Það er mikið að gera í fræðslumálum þessa dagana og gaman að verja tíma með þessum öfluga hóp hjá Colas í síðustu viku!
10/02/2026

Það er mikið að gera í fræðslumálum þessa dagana og gaman að verja tíma með þessum öfluga hóp hjá Colas í síðustu viku!

Við elskum símenntun 💛

Nú á dögunum héldum við tveggja daga námskeið fyrir verk,- stöðvar,- og flokkstjóra. Við fengum til okkar sérfræðinga frá sem fóru yfir það hvað felst í að vera verkstjóri. Harpa Þrastardóttir og Berglind Björk Hreinsdóttur frá Kjark hafa sett saman þetta einstaka leiðtoganámskeið sem byggir á því að efla faglega hæfni í leiðtogahlutverki og stjórnun 🤩

Markmið námskeiðsins er að stjórnendur öðlist betri skilning á ábyrgð sinni og hvernig er hægt að styðja við og leiða teymi af heilindum 🙏

Námskeiðið var einstaklega fræðandi og upplýsandi en farið var yfir sjálfsþekkingu, gildi og ábyrgð í stjórnendastarfi ásamt mannauðs- og jafningjastjórnun. Við æfðum samskipti og leiðtogafærni, fórum yfir öryggismál og vinnuvernd ásamt því að ræða hutverk stjórenda í gæðastjórnun og umhverfismálum.

Í lok námskeiðsins höfðu leiðtogar okkar öðlast þekkingu á eigin styrkleikum, gildum og stjórnunarstíl og skilning á mikilvægi ábyrgðar og skyldum verkstjóra gagnvart starfsfólki og rekstri.

Við þökkum Kjarki ráðgjafastofu innilega fyrir komuna og hlökkum til að nýta þessa nýju hæfni í starfi - allt til betri vegar 🛣

"Við erum ekki að fara inn í fyrirtæki með tilbúnar lausnir heldur greinum við þarfir hvers fyrirtækis fyrir sig og komu...
28/01/2026

"Við erum ekki að fara inn í fyrirtæki með tilbúnar lausnir heldur greinum við þarfir hvers fyrirtækis fyrir sig og komum með lausnir sem hægt er að aðlaga að þörfum fyrirtækisins og styðja við stefnu þess, menningu og framtíðarsýn"

Við aðstoðum stjórnendur við að stíga betur inn í hlutverkið með kjark að leiðarljósi.

Vegna góðs gengis strákanna okkar á EM seinkar námskeiðinu okkar um viku. Við hefjum verkstjóranámskeiðið miðvikudaginn ...
26/01/2026

Vegna góðs gengis strákanna okkar á EM seinkar námskeiðinu okkar um viku. Við hefjum verkstjóranámskeiðið miðvikudaginn 4. febrúar!
Það eru enn laus pláss fyrir verkstjóra, flokkstjóra og aðra sem vilja efla hæfni sína árið 2026!

Markmið námskeiðsins er að efla faglega hæfni verkstjóra í leiðtogahlutverkinu og stjórnun. Þátttakendur öðlast betri skilning á ábyrgð sinni og hvernig hægt sé að styðja við og leiða teymi.

Hlutverk verkstjóra í iðnaði eru margvísleg og ýmiskonar ábyrgð og skyldur sem hvíla á þeim. Þetta námskeið er hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig og eflast í starfi verkstjórans.

Kjarkur ráðgjöf 1. árs!Núna í byrjun janúar var komið ár frá því að Kjarkur ráðgjöf fór formlega af stað. Fyrsta árið hj...
23/01/2026

Kjarkur ráðgjöf 1. árs!

Núna í byrjun janúar var komið ár frá því að Kjarkur ráðgjöf fór formlega af stað. Fyrsta árið hjá okkur í Kjark ráðgjöf hefur farið langt fram úr okkar bestu vonum. Frá fyrsta degi höfum við byggt fyrirtækið á kjarki, fagmennsku og einlægum vilja til að gera hlutina vel, jafnvel þegar það hefur kallað á að stíga út fyrir þægindarammann.

Verkefnin á þessu fyrsta ári hafa verið fjölbreytt, krefjandi og umfram allt skemmtileg fyrir fjölbreyttan hóp fyrirtækja og stofnanna. Við höfum fengið tækifæri til að vinna með ólíkum aðilum, takast á við flókin viðfangsefni og skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini okkar.

Það þurfti kjark til að stofna Kjark og hefja störf sjálfstætt og við sjáum ekki eftir því. Takk kærlega öll sem hafið valið að starfa með okkur síðasta árið. Einnig viljum við þakka þeim sem hafa veitt okkur stuðning og ráðgjöf, því við höfum verið lánsamar að geta sótt okkur slíkt og það hefur styrkt okkur í þeirri vegferð sem við erum á.

Við hjá Kjarki og Iðan fræðslusetur hefjum næsta verkstjóranámskeið miðvikudaginn 28. janúar! Námskeiðið hentar verkstjó...
21/01/2026

Við hjá Kjarki og Iðan fræðslusetur hefjum næsta verkstjóranámskeið miðvikudaginn 28. janúar!

Námskeiðið hentar verkstjórum, flokkstjórum og öðrum í sambærilegum störfum sem vilja efla sig í stjórnendahlutverkinu.

Það eru enn laus pláss:

Hlutverk verkstjóra í iðnaði eru margvísleg og ýmiskonar ábyrgð og skyldur sem hvíla á þeim. Þetta námskeið er hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig og eflast í starfi verkstjórans.

24/12/2025
Fyrsti hópurinn okkar að ljúka verkstjóranámi hjá Iðan fræðslusetur. Næsta námskeið hefst í lok janúar!
12/12/2025

Fyrsti hópurinn okkar að ljúka verkstjóranámi hjá Iðan fræðslusetur. Næsta námskeið hefst í lok janúar!

Í vikunni útskrifaðist fyrsti hópur verkstjóra úr nýju námskeiði Iðunnar fræðsluseturs, Verkstjóri í iðnaði – ábyrgð og verksvið. Alls luku tíu þátttakendur náminu, en hópurinn samanstóð af einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn úr iðnaði.

Í gær tókum við og Iðan fræðslusetur á móti fyrsta hópnum á nýja verkstjóranámskeiðið okkar.Það er gaman að sjá hversu ó...
05/11/2025

Í gær tókum við og Iðan fræðslusetur á móti fyrsta hópnum á nýja verkstjóranámskeiðið okkar.

Það er gaman að sjá hversu ólíkur bakgrunnur hópsins er og hlusta á þeirra sögur og reynslu.

Venjulega erum við að fara inn í fyrirtæki með okkar fræðslu. Það er því ný áskorun fyrir okkur að taka hóp sem þekkist ekki innbyrðis en í því felast einnig tækifæri til vaxtar fyrir nemendur og kennara.

15/10/2025

Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir hjá Kjarki ráðgjöf kenna á nýju námskeiði í boði hjá Iðunni fræðslusetri: Verkstjóri í iðnaði – ábyrgð og verksvið. Þær hafa mikla reynslu af því að halda slík námskeið og ræddu um mikilvægi þess að styðja vi....

Við erum að fara af stað með fróðlegt og skemmtilegt námskeið fyrir verkstjóra í iðnaði í nóvember innan veggja Iðunnar ...
02/10/2025

Við erum að fara af stað með fróðlegt og skemmtilegt námskeið fyrir verkstjóra í iðnaði í nóvember innan veggja Iðunnar fræðsluseturs.

Við gerum okkur grein fyrir því að verkstjórar eru oft undir miklu álagi í starfi og gegna stóru hlutverki sem tengiliðir fyrirtækis við verkkaupa, starfsfólk, stjórnendur og stoðsvið. Þrátt fyrir miklar kröfur til starfsins skortir verkstjóra oft þjálfun í þessum málaflokkum.

Á námskeiðinu förum við ofan í stjórnendahlutverkið, þær kröfur sem gerðar eru til verkstjóra og áhrif einstaklingsins í hlutverki stjórnandans.

Við fjöllum um mannauðsstjórnun og stjórnun jafningja og skoðum mikilvægi góðra og réttra samskipta við starfsfólk, yfirmenn og verkkaupa.

Við förum í gegnum gæða- og umhverfismál, ástæður þess að stjórnendur kalla eftir skýrslum og gögnum og kynnumst leiðum til að draga úr sóun og auka skilvirkni í okkar daglegu störfum.

Einnig tökum við sérstaklega fyrir öryggisstjórnun og hvern efla megi vinnuvernd innan teymisins og stuðla að öruggara umhverfi. 🦺

Markmið okkar er að gefa verkstjórum tólin sem þeir þurfa til þess að verða öruggari í hlutverkinu sínu og ná auknum árangri í starfi.

Námið er 18 klst og lýkur í desember með útskrift 🎉

Þið getið fræðst um námskeiðið á heimasíðu Iðunnar og á bás þeirra á Mannauðsdeginum á morgun eða haft samband við okkur

Hlutverk verkstjóra í iðnaði eru margvísleg og ýmiskonar ábyrgð og skyldur sem hvíla á þeim. Þetta námskeið er hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig og eflast í starfi verkstjórans.

Address

Hlíðasmári 19, 2 Hæð
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kjarkur ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kjarkur ráðgjöf:

Share