EY starfar í yfir 150 löndum og er starfsfólk nú um 300.000 talsins. EY hefur markað sér þá stefnu að vera leiðandi á markaði og veita þjónustu sem er sniðin af þörfum viðskiptavina okkar og sem er í hæsta gæðaflokki, hvar sem við erum staðsett í heiminum. Við erum þekkt fyrir:
- Að vera leiðandi á þeim mörkuðum sem við störfum á.
- Vörumerki sem laðar að besta fólkið og bestu viðskiptavin
ina.
- Heiðarleika, traust, samvinnu og virðingu fyrir viðskiptavinum okkar.
- Góðan orðstír fyrir að veita þjónustu í hæsta gæðaflokki.
- Góð tengsl við umhverfi okkar. Þar á meðal við viðskiptavini, eftirlitsaðila, fjárfesta, háskóla, fjölmiðla og starfsfólk. EY hefur sameinað starfsemi sína í Evrópu, Mið- Austurlöndum, Indlandi og Afríku í eina stjórnunareiningu (EMEIA). Þar undir eru Norðurlöndin flokkuð í eina stjórnunareiningu, EY Nordic, sem hefur eina faglega stjórn. Þetta gerir okkur kleift að nýta reynslu og setja saman teymi þvert yfir landamæri með færustu sérfræðingum okkar innan hvers sviðs. Hjá EY á Íslandi starfa um 70 manns, þar af 18 löggiltir endurskoðendur. Starfsfólk okkar er hæfileikaríkt með ýmiss konar bakgrunn. Áhersla okkar á fjölbreytta heild skiptir nú meira máli en nokkru sinni fyrr. Þegar viðskipti verða flóknari og meira ögrandi dag frá degi verðum við að leita eftir mörgum fjölbreyttum skoðunum og sjónarmiðum til að takast á við þau. Opið starfsumhverfi okkar hvetur til stöðugrar persónulegrar og faglegrar framþróunar.