Nyttu Kraftinn

Nyttu Kraftinn María Björk býður markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf fyrir þá sem vilja styrkja sig í starfi og markaðssetja sigí leit nýrra tækifæra á vinnumarkaði.

Sigríður Snævarr sendiherra og María Björk Óskarsdóttir viðskiptafræðingur eru tvíeykið á bak við Nýttu kraftinn. Árið 2008 fóru þær í gang með námskeið fyrir atvinnuleitendur byggð á eigin aðferðafræði og sóttu um 1100 manns á krossgötum námskeiðin með mjög góðum árangri. Frá árinu 2014 hefur María Björk boðið upp á einstaklingsmiðaða (one-on-one) ráðgjöf og námskeið fyrir einstaklinga í atvinnuleit, hvort sem þeir vilja gera breytingar á núverandi starfi eða eru tímabundið utan vinnumarkaðar. Jafnframt hafa þær stöllur haldið styttri námskeið og fyrirlestra út frá afmörkuðum viðfangsefnum hjá fjölmörgum fyrirtækjum og félagasamtökum. Vorið 2013 gáfu þær María Björk og Sigríður út samnefnda bók sem hefur gagnast þátttakendum og lesendum vel en hún hefur að geyma hugmyndir, ráð og hvatningu fyrir alla þá sem vilja efla sig og/eða leita sér að nýjum tækifærum á vinnumarkaði. Markmið Nýttu kraftinn hefur frá upphafi verið að hjálpa fólki á krossgötum að standa betur að vígi í samkeppni á vinnumarkaði og þeim sem þurfa eða vilja finna tíma sínum og kröftum nýjan farveg. Á námskeiðunum og í bókinni er bent á fjölmargar leiðir við atvinnuleitina og farið ítarlega í ráðningaferlið, meðal annars með sjálfskoðun, styrkleikaæfingum, gerð ferilskrár og kynningarbréfa, sem og æfingum og ábendingum fyrir atvinnuviðtöl.

Þær stöllur leggja enn fremur áherslu á frumkvæði, tengslanet, mentorafyrirkomulag og vellíðan og hafa aðferðir þeirra reynst afar árangursríkar. Allar nánari upplýsingar og skráning er að finna á www.nyttukraftinn.is og Nýttu kraftinn bókina verður hægt að finna í öllum helstu bókaverslunum landsins.

Address

Bollagarðar 15
Seltjarnarnes
170

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nyttu Kraftinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Nyttu Kraftinn:

Shortcuts

Share