Trigger ráðgjöf ehf

  • Home
  • Trigger ráðgjöf ehf

Trigger ráðgjöf ehf Tæknistjóri, upplýsingaöryggi, persónuvernd, fjarvinna og störf án staðsetningar.

Á þessum degi fyrir fjórum árum síðan tóku í fyrsta skiptið gildi samkomutakmarkanir á Íslandi. Við tók mjög skrítið tím...
16/03/2024

Á þessum degi fyrir fjórum árum síðan tóku í fyrsta skiptið gildi samkomutakmarkanir á Íslandi. Við tók mjög skrítið tímabil í sögunni, þar lærðum við bæði nýja góða siði og tókum auðvitað upp aðra ekki svo góða siði.

Fyrir algera tilviljun var þetta líka dagurinn sem ég settist niður að fullu við mitt eigið skrifborð og fór að vinna 100% sjálfstætt. Eftir að hafa þá með einum eða öðrum hætti, með skóla og í fullu starfi starfað við upplýsingatækni í 27 ár. Nú eru árin að verða 31 og þau síðustu 4 hafa verið lærdómsrík á mjög margan hátt. Ég hef verið það lánsamur að taka þátt í mörgum frábærum verkefnum. Sum til skemmri tíma en líka langtímaverkefnum sem eru hægt og rólega að bera ávöxt.
Framtíðin er óskrifuð bók en það er slatti af blaðsíðum óskrifaðar í þessum kafla. Best að taka upp pennann og halda áfram að skrifa þær.

Ríkisstjórn Íslands kynnti á blaðamannafundi í morgun samkomubann vegna COVID-19, sem gildir frá og með mánudeginum 16. mars kl 00:01, og gildir það í fjórar vikur, til og með 13. apríl kl. 00:01. …

Aftur kemur smá af vinnu síðustu ára í dagsljósið. Árið 2020 kom ég inn í verkefni sem hét þá "Ríkisský", varð seinna "S...
08/07/2022

Aftur kemur smá af vinnu síðustu ára í dagsljósið. Árið 2020 kom ég inn í verkefni sem hét þá "Ríkisský", varð seinna "Skýjastefna" svo "Stefna um notkun skýjalausna" og birtist nú - 24. júní 2022 sl. sem "Öryggis- og þjónustustefna um hýsingarumhverfi - stefna um notkun skýjalausn".

Eftirleikurinn að koma þessari framtíðarsýn og markmiðum inn í strategískar framkvæmdir er svo ekki síður spennandi viðfangsefni.

Notkun skýjalausna er ætlað að auka öryggi við varðveislu gagna, bæta þjónustu og stuðla að aukinni nýsköpun. Þetta kemur fram í nýrri öryggis- og þjónustustefnu um hýsingarumhverfi – stefnu um notkun skýjalausna.

22/06/2022

Aftur birtist smábrot af vinnunni manns á opnum vettvangi og því ber að fagna auðvitað :) Í samráðsgáttinni er nú skjal um öryggisflokkun gagna íslenska ríkisins til umsagnar og umræðu.

Öryggisflokkun er mikilvægt verkfæri í ákvörðun öryggisstigs og viðeigandi (ekki of mikill og ekki of lítilla) varna hvort sem er gegn tapi, röngum upplýsingum eða uppljóstrun. Ásamt því að setja fram ákveðna flokka og viðmið um meðhöndlun eru lagðar fram áherslur og grunnreglur sem komu upp úr mjög skemmtilegum vinnufundum með fulltrúum ólíkra hagsmunaðila. Meginþemað auk þess að viðhafa viðeigandi öryggisstig að gera ríkisaðilum og öðrum mögulegt að nota gögn á hagkvæman og virðisskapandi hátt.

https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3216

21/03/2022

Eitt af verkefnunum síðustu mánaða hefur verið að aðstoða Ríkiskaup við undirbúning og vöruflokkalýsingar fyrir nýtt innkaupakerfi fyrir skýjaþjónustur, hýsingu og tengda sérfræðiþjónustu. Þarna er farin önnur leið en hingað til hefur verið farin í innkaupum á þessum þjónustum (gagnvirk innkaupakerfi vs. rammasamningur) sem hentar þessari vöru (þ.m.t. skýjaþjónustunum) að mörgu leyti betur. Verður spennandi að sjá hvernig þetta þróast.

Ríkiskaup óska eftir aðilum í þátttöku í gagnvirku innkaupakerfi/DPS sem bjóða upp á skýjaþjónustu, hýsingu og tengda sérfræðiþjónustu til A-hluta stofnana ríkisins og öðrum aðilum rammsamninga.

Hættustigsaðvörun: Verð að blaðra um tól og tæki til að gera rekstur einfaldari, skilvirkari, sjálfvirkari og ýmislegt a...
23/02/2022

Hættustigsaðvörun: Verð að blaðra um tól og tæki til að gera rekstur einfaldari, skilvirkari, sjálfvirkari og ýmislegt annað sem er manni hugleikið. Það er mikil flóra af verkfærum og ég ætla aðeins að rövla um hvað er í þessum pakka.

Ský - Tengslanet tölvufólks

Það er ánægjulegt að sjá árangur af verkefnum sínum. Þessi flutningur kerfa sýslumanna í lok síðasta árs er afurð af mik...
08/01/2022

Það er ánægjulegt að sjá árangur af verkefnum sínum. Þessi flutningur kerfa sýslumanna í lok síðasta árs er afurð af miklu undirbúningsstarfi sem ég tók þátt í með sýslumönnum: stefnumótun, þarfagreiningu, úrboðsferli sem leiddi svo til innleiðingar sem var samstarfsverkefni ótrúlega margra aðila, bæði UT þjónustuaðila, annarra stofnana og tengdra aðila.

Góður undirbúningur bæði hjá kaupandanum og svo hjá þeim aðila sem er að taka við þjónustunni er gríðarlega mikilvægur þáttur í að svona verkefni gangi vel. Það má alls ekki kasta ábyrgðinni óskiptri á þann sem er að "flytja" kerfin, eigendur kerfanna eða fulltrúi þeirra þurfa að taka virkan þátt í undirbúningsferlinu og framkvæmdinni. Góð samskipti, lausnamiðað hugarfar og tæknileg færni voru stór þáttur í að þetta verkefni tókst eins vel og raun bar vitni.

Til hamingju með nýja "heimilið" sýslumenn og takk fyrir samstarfið sem að þessu komu! Frábær teymisvinna.

Í sumar óskaði Ríkiskaup fyrir hönd Sýslumannaráðs eftir tilboðum í hýsingu og rekstrarþjónustu fyrir embætti allra sýslumanna á landinu. Alls var um að ræða níu embætti, 26 staðsetningar og um 270 notendur/útstöðvar. Auk hýsingar og rekstrar var óskað eftir tilboðum í ...

Það verður seint sagt að árið 2021 hafi verið tíðindalaust þó það hafi enn verið í hálfgerðu COVID-moki að mörgu leyti. ...
30/12/2021

Það verður seint sagt að árið 2021 hafi verið tíðindalaust þó það hafi enn verið í hálfgerðu COVID-moki að mörgu leyti. Upplýsingatækni, öryggismál og persónuvernd árið 2021 voru spennandi og skemmtilegur starfsvettvangur og verkefnin voru mörg og skemmtileg og samstarfsaðilarnir ekki af verri endanum! Þakka kærlega fyrir árið 2021 og óska öllum gæfuríks komandi árs!

Virkilega áhugaverð ákvörðun frá Persónuvernd um Seesaw-kerfið sem margir skólar eru að nota.Ég á eftir að lesa þetta be...
21/12/2021

Virkilega áhugaverð ákvörðun frá Persónuvernd um Seesaw-kerfið sem margir skólar eru að nota.
Ég á eftir að lesa þetta betur en við fyrsta lestur þá stendur upp úr:
-> Gögn flutt út fyrir EES þó annað væri sagt
-> Gögn vegna notkunar í tilgangi kennslu notuð í markaðslegum tilgangi
-> Óskýrt umfang og skilgreining á notkuninni og gögnum (hvaða gögn, til hvers) gerði lágmörkun og mat á þörf og meðalhófi erfiða ef ekki ómögulega.

Niðurstaðan er samt ekki að "Persónuvernd kemur í veg fyrir þróun í skólastarfi" eða notkun nýrrar tækni! Það þarf bara að gera hlutina rétt, vanda til verks og notkunar.

Persónuvernd hefur lagt fyrir Reykjavíkurborg að loka reikningum skólabarna í Seesaw og sjá til þess að öllum persónuupplýsingum þeirra verði eytt úr kerfinu en þó ekki áður en tekin hafa verið afrit af upplýsingunum til að afhenda börnunum eða, eftir atvikum, til varðveislu ...

Áhugavert viðfangsefni og starf án staðsetningar 👍
02/12/2021

Áhugavert viðfangsefni og starf án staðsetningar 👍

23. nóvember 2021SérfræðistörfHöfuðborgarsvæðiðÁn staðsetningarFjármálaráðuneytiðTÆKNILEGUR VÖRUSTJÓRI HJÁ STAFRÆNU ÍSLANDIFacebook LinkTwitter LinkTÆKNILEGUR VÖRUSTJÓRI HJÁ STAFRÆNU ÍSLANDIFjármála og efnahagsráðuneytið leitar að tæknilegum vörustjóra (e. te...

Það hafa verið áhugaverðir tímar í persónuvernd undanfarið og sennilega fátt sem er rætt meira um en þennan úrskurð Pers...
01/12/2021

Það hafa verið áhugaverðir tímar í persónuvernd undanfarið og sennilega fátt sem er rætt meira um en þennan úrskurð Persónuverndar vegna ferðagjafar-appsins.
Í þessu eru margir áhugaverðir punktar og vonandi verður unnið vel úr því næstu vikurnar.

Persónuvernd hefur lagt stjórnvaldssektir, annars vegar að fjárhæð 7.500.000 kr., á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og hins vegar að fjárhæð 4.000.000 kr. á fyrirtækið YAY ehf., vegna vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við ferðagjöf stjórnvalda. Nánar tiltekið voru...

Undanfarnar vikur hef ég tekið saman það helsta úr þeim fréttum sem ég hef verið að lesa í vikunni - þetta er eitthvað s...
16/05/2021

Undanfarnar vikur hef ég tekið saman það helsta úr þeim fréttum sem ég hef verið að lesa í vikunni - þetta er eitthvað sem maður gerir alltaf til að vera með á nótunum og mér fannst það ágætis æfing að taka þetta saman. Síðasta vika var lituð af ransomware og mismunandi gangtegundunum fyrirtækja og upplýsingaöryggis/persónuverndar.

Í vikunni komust í fjölmiðla amk tvö gagnagíslatökumál (ransomware) — Írska heilbrigðisþjónustan fékk skell og Colonial Pipeline…

Það má svo sannarlega segja að vikurnar séu hver annarri merkilegri! Eldgos, COVID, powerslide á gámaflutningaskipi í Su...
29/03/2021

Það má svo sannarlega segja að vikurnar séu hver annarri merkilegri! Eldgos, COVID, powerslide á gámaflutningaskipi í Sues-skurðinum. Ætlar 2021 að toppa 2020?

Það vantaði ekki fréttir, eldgosið fékk samkeppni þegar COVID-19 stökk aftur í sviðsljósið og við endum þetta svo á páskalegum gulum…

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Trigger ráðgjöf ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Trigger ráðgjöf ehf:

  • Want your business to be the top-listed Business?

Share