28/07/2026
Kæru vinir
Langar að deila þessu hér líka❤️ þessir kynntust þegar hlauparinn var þriggja ára og eiga fallega vináttu❤️ Þorsteinn hleypur í minningu mágs síns og til styrktar börnum sem greinast með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Það var Halla hjartans mál og hann talaði mikið um það í veikindum sínum að ekkert væri þyngra og erfiðara en þegar börn veikjast. Svo var Halli minn mikill barnakall og ellefu barna afi.
Takk Þorsteinn Mási Jónsson minn ❤️ Halla hefði þótt mjög vænt um þetta❤️
Meðfylgjandi er linkur ef þið viljið heita á hlauparann. Minnast góðs drengs og styrkja gott málefni❤️
Knús Tóta
Hleypur fyrir Börn með krabbamein