Norðanátt

Norðanátt Norðanátt er hreyfiafl nýsköpunar sem miðar að því að efla frumkvöðlaumhverfið á Norðurlandi

Ertu með góða hugmynd af verkefni? Er hún milljón króna virði? 🚀
15/05/2025

Ertu með góða hugmynd af verkefni? Er hún milljón króna virði? 🚀

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands.

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨🛶Kayakar -  Kajakleiga þar sem viðskiptavinir fara á eigin vegum, auk þess að bjóða ...
22/11/2024

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨

🛶Kayakar - Kajakleiga þar sem viðskiptavinir fara á eigin vegum, auk þess að bjóða upp á hjólaleigu með skipulögðum ferðum og matarupplifun. Fyrirtækið er í stöðugri vöruþróun í afþreyingarferðamennsku🛶

https://kayakar.is/

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨🌿Syðra Holt - Fjölmenningarlegt lífrænt býli sem starfar á sviði landbúnaðar, búfjár...
21/11/2024

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨

🌿Syðra Holt - Fjölmenningarlegt lífrænt býli sem starfar á sviði landbúnaðar, búfjárræktar, matvælaframleiðslu og lista, með það að markmiði að opna kaffihús til að þróa verkefnið enn frekar🌿

https://www.facebook.com/sydraholt

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨🥂Hret víngerð - Þróar létt og freyðandi ávaxtavín úr rabarbörum af Norðurlandi vestr...
20/11/2024

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨

🥂Hret víngerð - Þróar létt og freyðandi ávaxtavín úr rabarbörum af Norðurlandi vestra, sem ætlað er að selja heima- og ferðamönnum um land allt 🥂

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨🌊Brimsalir - Listamannadvöl á Ólafsfirði sem stefnir að því að útbúa aðstöðu og umgj...
20/11/2024

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨

🌊Brimsalir - Listamannadvöl á Ólafsfirði sem stefnir að því að útbúa aðstöðu og umgjörð fyrir listamenn til að iðka list og efla skapandi greinar í Fjallabyggð🌊

https://sites.google.com/view/brimssalir

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨🪡Skynró - hannar fatnað fyrir einstaklinga með skynúrvinnsluvanda, þar sem flíkurnar...
19/11/2024

✨Þátttakendur í Startup Stormi 2024✨

🪡Skynró - hannar fatnað fyrir einstaklinga með skynúrvinnsluvanda, þar sem flíkurnar sinna ólíkum skynþörfum með aukahlutum sem eru skynörvandi, veita ró og öryggi án þess að vera áberandi🪡

https://skynro.is/

Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu viðskiptahraðalinn Startup Storm sl. fimmtudag, 14. nóvember🚀Þátttakendur hafa...
18/11/2024

Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu viðskiptahraðalinn Startup Storm sl. fimmtudag, 14. nóvember🚀

Þátttakendur hafa síðastliðnar sjö vikur fengið fræðslu, setið vinnustofur og myndað tengingar við reynslumikla aðila úr atvinnulífinu á svokölluðum mentorafundum.

Lokaviðburður var haldinn með pompi og prakt fimmtudaginn 14. nóvember síðastliðinn í Hofi á Akureyri. Nýsköpunarteymin stigu á stokk og kynntu verkefni sín fyrir gestum. Á lokaviðburðinum var einnig fjölbreytt dagskrá, Vilhjálmur Bragason var kynnir kvöldsins og skemmti gestum, Albertína og Katrín framkvæmdastjórar SSNE og SSNV fræddu okkur um Sóknaráætlun og áherslu á nýsköpun og frumkvöðla ✨

Við óskum teymunum til hamingju með kraftmiklar kynningar á verkefnum sínum og hlökkum til að fylgjast með þeim vaxa og dafna áfram 💥

Lesið nánar í fréttinni hér fyrir neðan👇

Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu viðskiptahraðalinn Startup Storm sem Norðanátt stóð að. Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið. Þetta er í fjórða sinn sem ...

Þátttakendur í Startup Stormi eru á fleygiferð um Norðurland og þau halda fulla ferð áfram með mentorafundum og vinnusto...
24/10/2024

Þátttakendur í Startup Stormi eru á fleygiferð um Norðurland og þau halda fulla ferð áfram með mentorafundum og vinnustofum næstu vikurnar 👏🚀💥

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra - SSNV

Hraðallinn Startup stormur er á fleygiferð en teymin hafa nú lokið þremur vikum af s*x í hraðlinum. Þátttakendur hafa fengið tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki. Fyrsti mentorafundurinn fór fram 10. október sl. en teymin hittu þá reynslubolta víða úr atvinnulífinu. Við...

Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Stormi sem hófst 3. október...
09/10/2024

Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Stormi sem hófst 3. október! 🚀💥🌪

Sjö nýsköpunarteymi af Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Stormi sem hófst 3. október síðastliðinn. Þetta er í fjórða sinn sem Startup Stormur er haldinn fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi. Hraðallinn stendur yfir í sjö vikur e...

Address

Norðurland
Akureyri
601

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Norðanátt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Norðanátt:

Share