Hjóna- og fjölskyldumeðferðarstofa Þorleifs Kr. Níelssonar

Hjóna- og fjölskyldumeðferðarstofa Þorleifs Kr. Níelssonar Hjóna- og fjölskyldumeðferð á Akureyri Á stofunni er boðið upp á ráðgjöf og meðferð fyrir fjölskyldur, hjón/pör og einstaklinga. Frá júní 2006 til október 2006

Boðið er upp á viðtöl utan venjulegs skrifstofutíma. Hægt er að panta tíma í síma 848 4746 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Áherslur hjóna- og fjölskyldumeðferðar eru breytilegar og taka mið af því hvaða fjölskyldueiningu er unnið með hverju sinni. Mikilvægt er að þeir sem koma í meðferð setji sér markmið í upphafi meðferðar. Það verður svo sameiginlegt verkefni meðferða

raðila og skjólstæðinga að finna leiðir til að ná settu markmiði.

Þorleifur útskrifaðist úr félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2006 og hlaut starfsleyfi í því fagi það sama ár. Í febrúar 2012 útskrifaðist Þorleifur með meistaragráðu í fjölskyldumeðferð frá Háskóla Íslands. Starfsreynsla á sviði félagsráðgjafar og hjóna- og fjölskyldumeðferðar:
•Fjölskyldu- og félagsráðgjafi með eigin hjóna- og fjölskyldumeðferðarstofu. Frá mars 2012.
•Félagsráðgjafi hjá Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar í barnaverndarteymi. Frá apríl 2008.
•Félagsráðgjafi/unglingaráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts. Frá október 2006 til apríl 2008.
•Félagsráðgjafi hjá Fjölskyldumiðstöð Árborgar.

Ég hef flutt mig um set með viðtalsstofu mína og hafið störf á Heilsu- og sálfræðiþjónustan. Vinsamlegast hafið samband ...
11/01/2024

Ég hef flutt mig um set með viðtalsstofu mína og hafið störf á Heilsu- og sálfræðiþjónustan. Vinsamlegast hafið samband þangað með tímapantanir.

Með nýju ári bætast fleiri frábærir fagaðilar við teymið okkar! Að þessu sinni er það Þorleifur Kr. Níelsson - Félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og mannauðsráðgjafi. Velkominn til starfa hjá okkur!👏

Þorleifur útskrifaðist sem félagsráðgjafi árið 2006 frá Háskóla Íslands og fékk þá einnig starfsleyfi í félagsráðgjöf. Árið 2012 lauk Þorleifur meistaragráðu í fjölskyldumeðferð frá Háskóla Íslands. Þorleifur lauk árið 2018 diplómagráðu í handleiðslufræðum frá Háskóla Íslands. Árið 2023 hóf Þorleifur meistaranám við Háskólann á Bifröst í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun.
Þorleifur hefur auk þessa klárað fjölda styttri námskeiða á sínum fagsviðum og ber þar helst að nefna SES skilnaðarráðgjafi með SES PRO starfsleyfi (Samvinna eftir skilnað) og sáttamiðlaraskóla Sáttar félags um sáttamiðlun.

Hann hefur víðtæka reynslu og hefur unnið við félagsþjónustu Barnaverndar í Árborg, Reykjavík og á Akureyri. Einnig starfaði hann sem sérfræðingur í málefnum barna hjá sýslumannsembættum um land allt. Samhliða starfi hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni starfar Þorleifur við mannauðsmál á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Þorleifur veitir einstaklings-, fjölskyldu- og hjónameðferð. Einnig sinnir hann mannauðsráðgjöf og handleiðslu fagfólks.

Frekari upplýsingar um Þorleif má nálgast á heilsaogsal.is/starfsfolk ℹ️

Hægt er að bóka tíma:
🧑‍💻 Hafa samband í gegnum heilsaogsal.is
📞 Í síma 830-3930 frá kl. 9-12 alla virka daga.
✅ Á Noona.is

Mikilvægt málefni hér á ferð.
08/12/2020

Mikilvægt málefni hér á ferð.

Undirritaður hefur starfað að því að sinna fólki í vanda með einum eða öðrum hætti í 20 ár og byggir á s*x ára háskólanámi í félagsráðgjöf, fjölskyldumeðferð, handleiðslu auk sáttamiðlunar.

20/10/2020

Félagsráðgjafafélag Íslands og fagdeild sjálfstætt starfandi félagsráðgjafa skora á stjórnvöld að endurskoða fyrri ákvörðun sína og setja nauðsynlegt fjármagn í þennan málaflokk til að þeir sem þurfa á samtalsmeðferð að halda geti sótt hana, óháð efnahag.

30/04/2020

Vakti félagið athygli á því að margar fagstéttir, þar á meðal félagsráðgjafar, veiti samtalsmeðferð við andlegri vanlíðan á einkareknum meðferðarstofum. Nálgun ólíkra fagstétta á andlegum vanda er ólík og því brýnt að halda því til haga að engin ein aðferð eða meðferð er réttari en önnur. Markmið þjónustunnar er það sama að bæta líðan og lífsgæði þeirra sem óska eftir samtalsmeðferð og telja sig þurfa á henni að halda. Félagsráðgjafafélagið áréttaði í umfjöllun sinni mikilvægi þess að þeir einstaklingar sem þurfi að leita sér aðstoðar vegna sálfélagslegs vanda hafi val um sem fjölbreyttust úrræði. Aðgengi að þjónustu er takmarkað ef greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga nær aðeins til einnar fagstéttar líkt og fyrra frumvarpið gerir ráð fyrir. Til að tryggja viðeigandi þjónustu er mikilvægt að almenningur hafi aðgang að niðurgreiðslu á þverfaglegri þjónustu mismunandi heilbrigðisstétta.

Gleðilegt sumar 💛 Hvet ykkur til að huga að sjálfum ykkur og þeim sem næst ykkur standa. Minni á að það er hægt að panta...
23/04/2020

Gleðilegt sumar 💛 Hvet ykkur til að huga að sjálfum ykkur og þeim sem næst ykkur standa. Minni á að það er hægt að panta viðtöl á stofunni og fjarviðtöl fyrir þá sem það vilja ☀️

Þakka góð kynni. Óska þér og þínum gleðilegs árs. Megi 2020 verða ykkur til heilla. Munið að það er aldrei of seint að l...
01/01/2020

Þakka góð kynni. Óska þér og þínum gleðilegs árs. Megi 2020 verða ykkur til heilla. Munið að það er aldrei of seint að leita sér aðstoðar ef þörf er á 💚

Óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Megi lukkan vera með ykkur í för 🎄🎅🏻
25/12/2019

Óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Megi lukkan vera með ykkur í för 🎄🎅🏻

Systurdóttir mín er í námi í Svíþjóð og vantar svarendur í áhugaverða rannsókn. Væri þakklátur ef einhver ykkar viljið t...
19/11/2019

Systurdóttir mín er í námi í Svíþjóð og vantar svarendur í áhugaverða rannsókn. Væri þakklátur ef einhver ykkar viljið taka þátt 😉

Are you currently in a long-term and heteros*xual relationship? Then we would appreciate your participation in this survey! In this study, "long-term" is defined as a relationship that has lasted one year or more. The survey will include some questions about the dynamics in your current relationship...

Áhugaverð umfjöllun um erfið og flókin mál sem eru til vinnslu hjá SMH.
17/11/2019

Áhugaverð umfjöllun um erfið og flókin mál sem eru til vinnslu hjá SMH.

Um 600 ágreiningsmál koma til meðferðar hjá sáttameðferðarteymi embættis Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu ár hvert. „Þetta eru gríðarlega flókin mál og í þjóðfélagsumræðunni er gjarnan blandað saman í hvaða farvegi þau eiga að vera. Við upplifum oft að það s....

Lesið þessa umfjöllun kæru vinir það er okkur öllum hollt!
17/09/2019

Lesið þessa umfjöllun kæru vinir það er okkur öllum hollt!

Að horfa á barnið sitt gráta mánuð eftir mánuð yfir því að þurfa að takast á við daginn á stað þar sem því líður illa er eitt það versta sem foreldrar þurfa að upplifa. Þetta hafa foreldrar barna sem ekki fá þann stuðning sem þeim ber í skólakerfinu þurft að upplif...

“Samkvæmt breyttu löggjöfinni þurfa hjón nú að bíða í þrjá mánuði og sækja sér ráðgjöf áður en skilnaðurinn getur gengið...
24/07/2019

“Samkvæmt breyttu löggjöfinni þurfa hjón nú að bíða í þrjá mánuði og sækja sér ráðgjöf áður en skilnaðurinn getur gengið í gegn. Eitt af markmiðum laganna er þannig að skilnaður verði sársaukaminni fyrir alla hlutaðeigandi.”
Undirritaður vonar að sömu breytingar verði gerðar á íslenskri skilnaðarlöggjöf.

Það er orðið erfiðara fyrir Dani að skilja nú en áður eftir að breytt skilnaðarlöggjöf tók gildi í landinu í apríl síðastliðnum.

Address

Hjalteyrargata 6
Akureyri
600

Telephone

+3548484746

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hjóna- og fjölskyldumeðferðarstofa Þorleifs Kr. Níelssonar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hjóna- og fjölskyldumeðferðarstofa Þorleifs Kr. Níelssonar:

Share