15/05/2026
Í síðustu viku lögðum við land undir fót og tókum þátt í nýsköpunarráðstefnunni Tonik sem haldin var í Þórshöfn í Færeyjum. Ráðstefnan er í fremstu röð nýsköpunarviðburða á Norðurlöndunum og var afar vel sótt að þessu sinni með yfir 700 gesti, fyrirlesara og aðra þátttakendur sem komu víða að.
Það má með sanni segja að Drift EA og förunautar hafi verið áberandi á hátíðinni:
🚀Fjögur teymi frá Drift EA tóku þátt í lyfturæðukeppni ásamt 20 öðrum nýsköpunarfyrirtækjum. Þau kynntu verkefnin sín af öryggi, fagmennsku og metnaði fyrir alþjóðlegum gestum, fjárfestum og öðrum áhugasömum.
🗣️Sesselja Barðdal, framkvæmdastýra Driftar, var meðal fyrirlesara og tók þátt í panelumræðum undir yfirskriftinni “Smart Capital, Stronger Society”. Þar undirstrikaði hún hvernig nálgun Driftar, að fjárfesta í fólki, teymum og hugmyndum, skapar raunveruleg samfélagsleg áhrif. Hún lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að byggja brú milli sprotafyrirtækja og rótgróinna fyrirtækja, efla tengingu og samvinnu þeirra á milli og benti á að stjórnvöld þurfi að skapa skýra hvata til að styðja slíkt samstarf og stuðla að sameiginlegri verðmætasköpun í nýsköpunarumhverfinu.
🥳Drift stóð einnig fyrir sérstökum viðburði ásamt SSNE og Hraðinu, þar sem frumkvöðlar frá Sea Thru, Grænafl, Quality Console, Unnur Verkbókhald og Nanna Lín kynntu verkefni sín í kraftmiklum 60 sekúndna pitchum. Að loknum kynningum tók við öflug tengslamyndun og var viðburðurinn afar vel sóttur af bæði færeyskum og erlendum gestum.
Í ferðinni heimsóttum við einnig fyrirtækin Framherja og Bergfrost og fengum innsýn í hvernig tækni, nýsköpun og skilvirkni eru nýtt í sjávarútvegi, matvælaiðnaði og dreifingu. Virkilega lærdómsrík og hvetjandi heimsókn.
Takk fyrir okkur!
Sjá nánar í fréttum í athugasemdum👇