25/06/2026
Við hvetjum eigendur gististaða á Vestfjörðum til þess að sækja um styrk og setja upp hleðslustöðvar við sínar einingar 🔋
Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppsetningar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi.
Styrkhæf teljast verkefni sem fela í sér að minnsta kosti uppsetningu tveggja nýrra hleðslustöðva sem skulu vera aðgengilegar gestum gististaðarins. Þá skuldbindur styrkþegi sig til að reka hleðslustöðvarnar í að lágmarki fimm ár frá gangsetningu.
Opnað verður fyrir umsóknir 1. júlí. Frekari upplýsingar finna á vef Loftslags- og orkusjóðs, sem fer með umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna.