31/01/2025
Það er alltaf eitthvað að malla hjá okkur í Creatrix og í vikunni fengum við endurgjöf vegna verkefnis sem við höfum unnið að í tvö ár. Mont klippa úr endurgjöfinni "They effectively developed materials to teach about ecological footprints and food production, making these accessible and engaging for both students and teachers."
En ekkert er fullkomið og þetta verkefni verður að líta á sem frumraun á þessu sviði hjá okkur.
Okkar hlutverk var að gera fræðsluefni um uppruna og framleiðslu á saltfiski, skyri og tómötum og fjalla um umhverfisáhrif í matvælaiðnaði. Einnig er að finna samskonar efni um appelsínusafa, banana og múslí sem samstarfsaðilar okkar í Eistlandi unnu að.
Við fengum ómetanlegan stuðning frá því fólki sem við heimsóttum og tókum viðtöl við og fengum að mynda hjá. Nemendur og kennarar í skólum og allskonar aðstaða sem við fengum lánaða. Án þeirra hefði þetta ekki orðið að veruleika. Það væri gaman að telja öll upp en það væri langur listi sem hægt er að finna á heimasíðu verkefnisins.
Þetta var mikill lærdómur fyrir okkur og við vonum að þau sem hafa áhuga nýti sér námsefnið sem hér er aðgengilegt öllum. Efnið er á þremur tungumálum, ensku, íslensku og eistnesku.
Þau sem vilja nota efnið í kennslu geta líka nýtt sér verkefnahugmyndirnar sem fylgja.
PS. Dóra Svavars eldar úr íslenska hráefninu í þriðja þætti allra myndbandanna.
Buon appetit!
Farm 2 Fork (F2F) project aims to introduce to public, how food items we consume are grown, transported and produced and how people who do this live.