Lesum betur

Lesum betur Lesum betur sér um kennslu og þjálfun í lestri. Einnig erum við með ráðgjöf til foreldra, nemenda og skóla.

Bjóðum upp á lestrargreiningar fyrir einstaklinga, skóla og sveitarfélög.

14/01/2026

Læsi krefst fagmennsku en ekki skyndi- og töfralausna

Ummæli nýs barna - og menntamálaráðherra um menntamál hefur valdið mikilli ólgu og óánægju í skólasamfélaginu.
Sú óánægja snýst ekki um andstöðu við breytingar heldur um síendurtekna tilhneigingu til að einfalda flókin viðfangsefni og setja fram lausnir sem hvorki byggja á fagþekkingu né rannsóknum.

Læsi er grundvallarforsenda alls náms, sjálfstæðrar hugsunar og virkrar þátttöku í samfélaginu. Kennsla í læsi er þó hvorki einföld né sjálfgefin. Hún byggir á flóknu samspili málþroska, kennslufræði, mats og íhlutunar. Rannsóknir sýna með skýrum hætti að árangur í læsi næst ekki með skyndiaðgerðum, átaksverkefnum eða hugmyndum sem kynntar eru sem „nýjar lausnir“ án þess að byggja á þekkingu og gögnum.

Það sem skilar raunverulegum árangri er markviss og skipulögð kennsla sem byggir á gagnreyndum og vel rannsökuðum kennsluaðferðum. Slík kennsla er skýr, kerfisbundin og stigvaxandi, byggir á stöðugu mati á framförum nemenda og krefst þess að kennarar hafi aðgang að faglegri þekkingu og stuðningi. Framfarir í læsi byggja á skipulagðri kennslu sem styðst við fagþekkingu og rannsóknir.

Það eru engar töfralausnir í að kenna læsi!

Að bæta læsi krefst samfelldrar, vandaðrar kennslu sem byggir á gagnreyndum og vel rannsökuðum kennsluaðferðum, fagþekkingu og rannsóknum – ekki pólitískum skyndilausnum.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þakka samfylgdina og samstarfið á árinu sem er að líðaKær kveðjaSædís
23/12/2025

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þakka samfylgdina og samstarfið á árinu sem er að líða
Kær kveðja
Sædís

08/09/2025

Alþjóðlegur dagur læsis er í dag 8.september. Til hamingju með hann

Góð grein hjá Auði um hvernig við getum stutt við lesskilning.
07/09/2025

Góð grein hjá Auði um hvernig við getum stutt við lesskilning.

Félag læsisfræðinga á Íslandi (FLÍS) fagnar um þessar mundir fimm ára afmæli. Félagið var stofnað með þá hugsjón að tengja saman fólk með menntun í læsisfræðum og skapa vettvang til að efla þekkingu og umræðu um læsi á Íslandi. Félagið er einnig aðili að evrópskum...

04/09/2025

Ertu í erfiðleikum með lestur, grunar þig að þú sért með lesblindu? Vantar þig vottorð fyrir skólann eða Hljóðbókasafnið.
Ég býð upp á lestrargreiningu með LOGOS lestrargreiningartækinu. Hafðu samband við mig ef þig vantar aðstoð
[email protected]

08/07/2025

Áhguaverð grein um hvernig slakur lesskilningur getur heftað skilning á samfélagslegri umræðu. En lesskilningur er grundvöllur fyrir virka þátttöku í samfélaginu, án hans geta einstaklingar ekki tekið upplýstar ákvarðanir í lýðræðislegu samfélagi.

Áhugaverð grein
30/06/2025

Áhugaverð grein

Orðaforði og lesskilningur hjá börnum með íslensku sem annað mál - Áhrif aldurs við komuna til Íslands Höfundar Sigríður Ólafsdóttir Freyja Birgisdóttir Hrafnhildur Ragnarsdóttir Steingrímur Skúlason Lykilorð: orðaforði, lesskilningur, læsi, tvítyngi, aldur Útdráttur Ranns...

Address

Túngata 3
Eyrarbakki
820

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lesum betur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share