18/09/2023
Ragga hittir naglann á höfuðið eins og svo oft áður.
Efsökun er afsökunarbeiðni með EF. Fyrirgefðu EF ég hef sært þig.
Ensökun er afsökunarbeiðni með EN. Sorrý EN ég var bara rosa pirruð þennan dag.
Bæði eru ömurlegar afsökunarbeiðnir.
Hvorugt er alvöru elegant afsökunarbeiðni.
Efsökun er gaslýsing á viðbrögðum náungans. Hann er alltof mikið snjókorn. Dramadrottning Bara að misskilja. Efsökun snýr öllu á haus, þar sem þolandinnn er allt í einu orðinn gerandi.
Ensökun er algjör firring á ábyrgð á hegðun. Það felur líka í sér möguleikann á að hegðunin endurtaki sig ef sömu aðstæður dúkka aftur upp. Ef viðkomandi er pirraður, súr, svekktur eða illa sofinn er hætta á að fá aftur yfir sig skít og skömm.
Elegant og auðmjúk afsökunarbeiðni felur í sér:
✅Taka fulla ábyrgð. Þetta er kjarninn í að biðjast raunverulega afsökunar. Eignaðu þér framkomu þína og skaðann sem hlaust af henni.
✅Virðing fyrir tilfinningum hinnar manneskjunnar. Ekki gaslýsa. Ekki tilfinningasmána. Ekki fara í fórnarlambsgír.
✅Sýna raunverulega iðrun yfir eigin gjörðum. Ekki reyna að réttlæta eða verja gjörðirnar.
✅Lýsa yfir breytingu á hegðun og hvernig þú ætlar að bregðast betur við næst. Þetta atriði gleymist alltof oft í afsökunarbeiðini, en rannsóknir sýna að er mikilvægasta atriðið til að fá fyrirgefningu náungans.
Það er ekki nóg að prumpa bara út lélegu Sorrý-i og halda að þá rigni glimmeri, allir detti í blússandi hamingju og Village People á fóninn.
Tilfinningalega vanþroskað fólk biðst bara afsökunar til að snúa málum aftur sér í hag. Til að hafa hina manneskjuna á sínu bandi, en halda svo áfram að vaða yfir mörk og beita klækjabrögðum til að ná sínu fram.
Tilfinningalega þroskað fólk sýnir iðrun og auðmýkt. Það biðst afsökunar af einlægni. Tekur ábyrgð á gjörðum sínum. Viðurkennir tilfinningar annarra. Lýsir yfir breytingu á hegðun í framtíðinni.
Ef viðkomandi breytir ekki hegðun og fleygir alltaf bara einu skítasorrý eftir rangar gjörðir, þarftu að vernda eigin sálarheill, og á einhverjum tímapunkti segja sæjónara og klippa á samskiptin.
Það er ekki bara kvóti á fiskinn. Það er líka kvóti á hversu miklar svívirðingar þú þolir.
__________________________________
Sjálfseflingarnámskeið Röggu Nagla og Helga Ómars
20. eða 21. október kl. 13-16
Ármúla 17, Make up studio Hörpu Kára
Skráning: [email protected]