17/10/2024
Hugleiðing fyrir svefninn 🌿💤
Þó að ég sé orðinn fagmaður í ADHD og markþjálfun, þá er ég ennþá með ADHD. Það er engin töfralausn til eða "lækning" en það eru tól sem geta auðveldað okkur lífið. Einu sinni reif ég mig alltaf niður fyrir að detta í þessi þunglyndisköst. Einu sinni laug ég risa sögum til að þurfa ekki að segja sannleikann. Í dag segi ég einfaldlega: „Fyrirgefðu, lokaði mig af vegna þunglyndis, get ég gert eitthvað til að bæta það, eða kem með tillögu hvað ég get gert.“
Ég skammast mín ekki fyrir að vera ég og er búinn að sættast við þessa staðreynd í lífinu mínu. ADHD er samt bara ástæða en ekki afsökun. Ég er ekki að afsaka mig fyrir að „ghost-a“ fólk eða bara lífið almennt. Ég geri það ekki viljandi, en í svona lægðum er þetta bjargráð sem ég hef þróað með mér þegar ég skildi þetta ekki, og ég er stöðugt að vinna í að bæta það, því það er svo vont að bregðast fólki, að standa ekki við orð sín, þó ég vilji það svo einlæglega.
Markþjálfunin og lærdómsferð mín í ADHD markþjálfaævintýrinu er ótrúlega krefjandi en svoooo góð. Það er ótrúlegt að finna að með hverju skrefi verð ég betri, því markþjálfun snýst ekki um fullkomnun heldur framfarir. Sá sem ég er í dag miðað við fyrir aðeins einu ári t.d. er GRÍÐARLEGUR! Ég hef bætt mig meira á þessum 18 mánuðum eftir að ég tók föstum tökum á ADHD en nokkru sinni fyrr, eftir að ég fór að læra um minn veikleika, sem á sama tíma er líka minn styrkleiki.
Svo er það þetta með að fyrirgefa sjálfum sér. Í viðtali með Jay Shetty talaði Jelly Roll um fyrirgefningu á sjálfum sér. Hann lýsti því hversu erfitt það getur verið að fyrirgefa sjálfum sér fyrir fyrri mistök, sérstaklega þegar það snýst um sektarkennd og skömm yfir fortíðinni. Hann útskýrði að lykillinn að fyrirgefningu sé ábyrgð, að taka ábyrgð á mistökum sínum án þess að láta sektarkenndina eyðileggja framtíðina. Hann talaði um mikilvægi þess að aðgreina ábyrgð frá sjálfseyðandi hegðun og hvernig þessi ferli hjálpuðu honum að finna frið með sjálfum sér. Hann sagði einnig að það sé erfitt að horfa í eigin bakspegil og sjá allan skaðann sem maður hefur valdið, en þrátt fyrir það sé nauðsynlegt að fyrirgefa sjálfum sér til að geta haldið áfram og fundið tilgang í lífinu. Orð að sönnu!
Já, lífið krakkar… lífið. 🌿💚
Það er mikið talað um rauð flögg í dag, merki sem við þurfum að taka eftir til að vernda okkur. En hvað með græn flögg? Eftir smá andlega lægð síðustu ca. 10 daga +/- vegna ADHD hef ég ákveðið að beina meiri athygli að því jákvæða í lífinu, því sem lyftir mér upp og skiptir máli.
En svona til gamans þá eru hér eru nokkur græn flögg sem ég hef hugleitt um í dag, og það er svo mikilvægt að umkringja sig af góðu fólki, að sjálfsögðu þurfum við að varast rauð flögg, en ég er hættur að hugsa "hvers vegna gerði viðkomandi þetta, og hugsa frekar hvað ætli hafi komið fyrir hjá þessari manneskju" og set mörk og fjarlægjist svo manneksjuna. Mörk eru mikilvæg, en ekki síður að setja orku og fókus að sjá það góða í þeim sem eru kirngum okkur líka. Því það getur veitt okkur styrk og loka á þá einstaklinga sem valda okkur en meiri skaða, en opna á samsktipi við fólkið sem vill okkur vel.
Brotið fólk brýtur fólk, en við berum ALLTAF ábyrgð á hegðun okkar. Fólk getur líka verið brotið og verið gott fólk, við þurfum bara að læra setja mörk, en mikilvægt er líka að finna fallegu sálirnar í lífi mans og gefa þeim til baka góða orku.
💚 Þegar einhver tekur eftir því að þú ert stressaður og sér um litlu hlutina til að létta þér byrðina.
💚 Þegar einhver leggur sig fram við að minna þig á hversu ómetanlegur þú ert í þeirra lífi.
💚 Þegar einhver heldur áfram að vera forvitinn um þig löngu eftir að nýjungin hverfur.
💚 Þegar einhver hvetur þig til að panta „franskar fyrir borðið“ en veit að þær eru í raun bara fyrir þig.
💚 Þegar einhver býðst til að fara í göngutúr með þér því hann veit að það hreinsar hugann þinn.
💚 Þegar einhver les bókina eða horfir á þáttinn sem þú mælir með, því það skiptir hann máli af því það skiptir þig máli.
💚 Þegar einhver man eftir einhverju tilviljanakenndu sem þú sagðir fyrir mánuðum og kemur þér á óvart með því.
💚 Þegar einhver getur tekist á við ágreining án þess að gera það að spurningu um sigur eða tap.
Við höfum öll okkar rauðu flögg, en það eru grænu flöggin sem gera lífið fallegt. 🌱✨