01/03/2026
Í ljósi umræðunnar í samfélaginu okkar síðustu daga viljum við ítreka nokkra hluti varðandi sölu á Völsungsfatnaði í bænum okkar.
Við í MB Merkingu erum ekki að taka að okkur sölu á Völsungsfatnaði heldur mátun fyrir heimafólk. Íþróttafélagið Völsungur mun sjá um sölu á þeim fatnaði alveg óháð okkar fyrirtæki.
Við erum eingöngu að bjóða upp á mátun og geymslu fyrir Völsung á fatnaði sem félagið telur að gott sé að hafa í bænum til taks.
Við munum aldrei vinna gegn Skóbúð Húsavíkur í sölu á Völsungsfatnaði enda höfum við átt mjög gott samstarf í gegnum árin og vonumst við til að það verði áfram og hvetjum flesta til að versla við þau góðu fyrirtæki sem eru á Húsavík.
Við munum áfram sinna merkingum á fatnaði og fylgihlutum eins og við höfum gert síðustu ár.
Vonumst til að sjá sem flesta í mátun, merkingu, kaffibolla og spjall á Túngötu 1.
Með kveðju, Guðni