Reykjavík Warehouse er heildsala með háklassa vörumerki sem leggja áherslu á vönduð innihaldsefni, umhverfisvænar umbúðir og vörur sem notast ekki við prófanir á dýrum. Reykjavík Warehouse ehf er heildsala sem var stofnuð árið 2011 af þeim Drífu Björk Linnet og Haraldi Loga en í annari mynd en nú og hóf þá innflutning á hreinum lífrænum olíum m.a frá Marokkó. Snemma árs 2014 bættum við svo við okk
ur öðru merki sem einnig getur státað sig að því að vera frá Ástralíu. Það er Eleven Australia sem er töff lína í besta mögulega gæðaflokki m.v verð. Vörumerkið vinnur náið með góðgerðarsamfélögum svo sem Style for Live en það eru hjálparsamtök sem hjálpa konum sem hafa búið við erfiðar aðstæður að fóta sig í lífinu. Mennta sig og gefa þeim tækifæri til að láta drauma sína rætast.
Þessi lína inniheldur ekki eiturefni, er í umhverfisvænum umbúðum og er ekki prófuð á dýrum.
Þessi lína er uppfull af gæðum en þó á afar hagstæðu verði. http://elevenaustralia.com
Í Júlí 2015 hófum við influttning á Ítölsku háralitunum Alter Ego Italy. Ástæðan fyrir því var sú að okkur fannst almenn óánægja með þá háraliti sem í boði voru á markaðnum á þeim tíma, verðin ekki í samræmi við gæði osvfr. Einnig fannst okkur forvitnilegt að sjá þær tölur sem sýna að hátt hlutfall fólks í þessum geira hefur upplifað allskonar heilsubresti í faginu og margir hafa hreinlega þurft að hætta að vinna. Við fórum að kynna okkur þetta og margir háralitir skoðaðir og prófaðir af okkar færasta fagfólki. Niðurstaðan var sú að Alter Ego Italy bar af af svo mörgu leiti. Litirnir eru uppfullir af vönduðum innihalds efnum og lausir við vægast sagt baneitruð efni sem svo oft leynast á háralitum og gerir engum gott. Hvorki fagfólki sem vinnur í þessum efnum allan daginn, né viðskiptavinum sem sitja í stólnum. Litirnir eru lausir við Amoniak svo innöndun á vinnustaðnum verður töluvert heilsusamlegri. Litirnir eru einnig mjög rakamiklir, glansmiklir, endingargóðir, hylja grátt vel og skemmtilegir að vinna með. Viðskiptavinir finna strax mun því sviði á hársverðinum heyrir sögunni til og einnig verður heilbrigði hársins strax miklu betra. Enda leggur framleiðandin mikið uppúr því að framleiða ekki einungis háraliti heldur að viðalda heilbrigði hársins líka og leggur mikla áherslu á það. Sem betur fer eru nú flestir orðnir meðvitaðir um mikilvægi innihaldsefna svo markaðurinn tók vægast sagt vel í þessa hágæða liti. Við sendum litasérfræðinga okkar á stofurnar sem hafa áhuga á því að kynna sér þessa liti á einkanámskeið á viðkomandi stofu sé þess óskað. http://www.alteregoitaly.com/
Árið 2017 fórum við svo á okkar árlegu vörusýningu á Ítalíu og kolféllum við þar fyrir merkinu Balmain Hair Couture. Við áttum langt og gott samtal við eigendur og yfirmenn sem þarna voru á staðnum sem endaði með flottu Balmain koktailboði um kvöldið. Þegar heim var komið fórum við á fullt í að vinna í því að fá þetta heimsfræga merki til okkar en það er sko ekkert hlaupið af því að fá einkaumboð af merkjum í svona gæðaflokki eins og öll merkin okkar eru. Við tóku skype fundir, mikil pappírsvinna, tvær heimsóknir til Amsterdam og fleira og loks í September 2017 þá gátum við opinberað að Balmain Paris Hair Couture væri nú að koma á Íslandsmarkað. En eins og flestum er kunnugt er Balmain Paris eitt flottasta og þekktasta tískuhús í heimi og ekkert hárvörumerki á markaðnum samkeppnis hæft nema ef Gucci, Chanel eða Dior myndu koma á markað með hárvörur. https://store.balmainhair.com/en/
Reykjavik Warehouse hefur sett saman teymi af færu fagfólki en teymið ber nafnið Reykjavik Warehouse education team. Hópurinn vinnur með okkur á sýningum og sér alfarið um alla kennslu á vörumerkjunum okkar. Eins og fyrr segir er að í nútíma samfélgi er fólk orðið mjög á verði um skaðleg innihaldsefni hvort sem það er í matvælum eða snyrtivörum og við hjá Reykjavík Warehouse erum stolt af því að vera leiðandi fyrirtæki í vönduðum snyrti- og hárvörum og ýtrekum að vil flytjum ekkert inn sem prófað er á dýrum eða er ekki í umhverfisvænum umbúðum og við ætlum að halda áfram að bæta við spennandi vörumerkjum og hlökkum til að leyfa ykkur að fylgast með og njóta! Með kærri kveðju;
Starfsfólk Reykjavik Warehouse