Prentmiðlun

Prentmiðlun Við þjónustum útgefendur við prentun bóka, tímarita, spila, ofl. Fagleg þjónusta og reynsla. við val á pappír og efni.

Eyþór Páll Hauksson, prentari, stofnaði Prentmiðlun í byrjun árs 2008. Prentmiðlun býður upp á hagkvæmar lausnir í prentun fyrir fyrirtæki og einstaklinga innanlands sem utan. Prentmiðlun er óháð fyrirtæki og vinnur með sérhæfðum birgjum á hverju sviði. Fyrirtækið hefur átt farsælt samstarf við prentfyrirtæki bæði hérlendis og víðs vegar um Evrópu, Asíu og Ameríku en meðal þeirra eru m.a. einn stæ

rsti bókaprentari í Evrópu og stærsta prentfyrirtæki í heiminum. Viðskiptavinir Prentmiðlunar eru m.a. öll helstu bókaforlög landsins, einstaklingar og önnur fyrirtæki. Hlutverk okkar
Eitt af helstu hlutverkum Prentmiðlunar er að leita hagstæðustu lausna fyrir viðskiptavini okkar auk þess sem við bjóðum upp á ráðgjöf og faglega aðstoð m.a. Við eigum mikið úrval sýnishorna af pappír og bókbandsefni, saurblöð, fólíur til gyllingar, lesmerkiborða o.fl. Fyrirtækið hefur umsjón með móttöku verka, yfirfer prentskjöl, sér um samskipti við framleiðendur, prentun á vottuðum litaprufum, umsjón með prófarkaferli, framleiðslu, gæðaeftirliti og afgreiðslu vörunnar hér heima eða erlendis ásamt tollafgreiðslu ef um það er að ræða en Prentmiðlun afgreiðir vörur heim að dyrum til flestra landa. Við hjá Prentmiðlun leggjum áherslu á vandaða framleiðslu og hagstæðar lausnir. Í tengslum við þá umræðu er gaman að geta þess að útflutningur er stór hluti af starfsemi fyrirtækisins en Prentmiðlun hefur undanfarin ár einnig boðið viðskiptavinum sínum upp á viðbótarþjónustu í vöruhýsingu og dreifingu, m.a. í Evrópu og Bandaríkjunum. Starfsmenn
Eyþór Páll Hauksson framkvæmdastjóri, 862 3583 [email protected]
Sigrún Edda Eðvarðsdóttir verkefnastjóri, 863 3326 [email protected]

Það er gaman að segja frá því að tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku bókahönnunarverðlaunanna um síðustu helgi, se...
18/11/2025

Það er gaman að segja frá því að tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku bókahönnunarverðlaunanna um síðustu helgi, sem eru á vegum Félags íslenska bókaútgefanda og Félags íslenskra teiknara.
Í flokknum bókahönnun, voru tilnefnd 6 mjög vel heppnuð bókverk sem eiga öll það sameiginlegt að hafa verið unnin í samstarfi við Prentmiðlun. Viljum við nota tækifærið og óska hönnuðum og útgefendum innilega til hamingju með tilnefninguna.

Hennar Rödd: Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, eftir Elinóru Guðmundsdóttur, Chanel Björk Sturludóttur og Elínborgu Kolbeinsdóttur. Vía útgáfa. Kolbeinn Jara Hamíðsson Moradi, Þorgeir K. Blöndal og Kaja Sigvalda sáu um hönnun.

Svarthol Tunglsins: Ritröð. Ragnar Helgi Ólafsson sá um hönnun en Tunglið forlag er útgefandi.

Blaka, eftir Rán Flygenring sem sá einnig um hönnun, en Angústúra er útgefandi.

Jörð / Earth, eftir Bryndísi Jónsdóttur. Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir hjá Studio Studio sáu um hönnun en Angústúra er útgefandi.

Sketching Bathing in Iceland, eftir Rán Flygenring. Arnar Freyr Guðmundson og Birna Geirfinnsdóttir hjá Studio Studio sáu um hönnun en Angústúra er útgefandi.

TÓM, eftir Spessa. Kakkalakki Studio, Fernanda Fajardo og Joao Linneu sáu um hönnun en Kind útgáfa er útgefandi.

Sjá nánar hér í frétt hjá MBL:

Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til Íslensku bókahönnunarverðlaunanna en það eru Félag íslenskra bókaútgefanda (FÍBÚT) og Félag íslenskra teiknara (FÍT) sem standa að verðlaununum.

22/07/2024

Vegna sumarfría verður skrifstofan okkar á Reykjavíkuvegi lokuð framyfir verslunarmannahelgi. Höldum áfram öllum boltum á lofti og biðjum viðskiptavini okkar að sýna okkur skilning ef við svörum ekki um hæl.

Eyþór og Valgerður Eyja.

Kæru útgefendur, bókaunnendur og vinir. Við hjá Prentmiðlun óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og bestu óskir um farsælt ...
24/12/2023

Kæru útgefendur, bókaunnendur og vinir. Við hjá Prentmiðlun óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og bestu óskir um farsælt komandi ár. Hafið það sem best um hátíðarnar 🌲🥰

Um síðustu helgi var haldin Bókahátíð í Hörpunni sem við hjá Prentmiðlun létum ekki framhjá okkur fara. Að þessu sinni v...
01/12/2023

Um síðustu helgi var haldin Bókahátíð í Hörpunni sem við hjá Prentmiðlun létum ekki framhjá okkur fara. Að þessu sinni vorum við ekki með bás en kíktum engu að síður á það það frábæra fólk sem þar stóð vaktina við að kynna nýjar, flottar og metnaðarfullar bækur.

Bókamessa í Hörpu
26/11/2022

Bókamessa í Hörpu

Í dag fagnar Eyþór Páll Hauksson framkvæmdastjóri og eigandi Prentmiðlunar 40 ára starfsafmæli í prentfaginu. Hann byrja...
06/10/2022

Í dag fagnar Eyþór Páll Hauksson framkvæmdastjóri og eigandi Prentmiðlunar 40 ára starfsafmæli í prentfaginu. Hann byrjaði 16 ára hjá Prentstofunni Ísrúnu á Ísafirði þar sem hann lærði prentun. Sveinsprófið tók hann síðar í H-prent á Ísafirði þar sem hann starfaði m.a. við framleiðslustjórnun ofl. Hann vann síðan frá 1993-2008 hjá Prentsmiðjunni Odda sem markaðsstjóri á útgáfusviði. Árið 2008 stofnar hann fyrirtækið Prentmiðlun sem orðið er rúmlega fjórtán ára. Þær eru því orðnar ófáar bækurnar sem og annað prentverk sem hann hefur komið að í gegnum tíðina enda einstakur fagmaður á sínu sviði og með mikinn metnað fyrir vönduðu prentverki. Í ár mun Prentmiðlun koma að prentun á yfir 300 bókatitlum enda margir útgefendur sem leggja mikið upp úr fallegu og vönduðu bókverki. Á árinu þá flutti Prentmiðlun að Reykjavíkurvegi 70 í Hafnarfirði þar sem það hefur starfsstöð ásamt Umbúðagerðinni sem er fyrirtæki sem hann og eiginkona hans Sigrún Edda Eðvarðsdóttir stofnuðu árið 2014 en þau settu upp verksmiðju á síðasta ári í Hafnarfirði sem hefur þá sérstöðu að framleiða umbúðir úr bylgjupappa. Að gefnu tilefni óskum við Eyþóri Páli innilega til hamingju með 40 ára starfsafmælið og óskum honum velfarnaðar í bæði leik og starfi.

Prentmiðlun er frá og með næsta mánudegi flutt að Reykjavíkurvegi 70 í Hafnarfirði en þar munum við halda áfram að þjónu...
28/05/2022

Prentmiðlun er frá og með næsta mánudegi flutt að Reykjavíkurvegi 70 í Hafnarfirði en þar munum við halda áfram að þjónusta útgefendur. Við munum þá eins og áður deila sama húsnæði og Umbúðagerðin.

30/12/2021
Við erum kannski ekki búin að standa okkur að pósta hér inn á vegg Prentmiðlunar fréttum af bókum eða útgefendum að unda...
14/12/2021

Við erum kannski ekki búin að standa okkur að pósta hér inn á vegg Prentmiðlunar fréttum af bókum eða útgefendum að undanförnu. Það er hins vegar ekki annað hægt þegar hingað kemur einn sem hefur svo sannarlega látið til sín taka á þessum vettvangi. Hjalti Pálsson var nefnilega að ljúka síðustu bókinni af Byggðasögu Skagafjarðar sem er tíunda bókin og jafnfram sú síðasta í þesssari ritröð. Verk sem átti að taka tíu til tólf ár að sögn Hjalta en endaði í tuttugu og s*x ára verkefni. Vel gert 👏 Innilegar hamingjuóskir með þessar merku bækur sem geyma svo sannarlega dýrmætan fjársjóð sem ekki mörg sveitarfélög geta státað sig af enda um 700 bújarðir teknar fyrir svo dæmi sé tekið. Til hamingju Hjalti og Sögufélag Skagfirðinga og takk fyrir ánægjulegt og gefandi samstarf.

Við vitum fátt skemmtilegra en að taka á móti góðum gestum í litlu fallegu bókastofunni okkar. Já bækur eru bestar og jó...
03/12/2021

Við vitum fátt skemmtilegra en að taka á móti góðum gestum í litlu fallegu bókastofunni okkar. Já bækur eru bestar og jólabókaflóðið brostið á 😍

Athyglisverð grein frá Herði Kristjánssyni í Bændablaðinu um pappír og þróun skóga í Evrópu og Norður Ameríku, hægt að s...
02/12/2021

Athyglisverð grein frá Herði Kristjánssyni í Bændablaðinu um pappír og þróun skóga í Evrópu og Norður Ameríku, hægt að skoða líka alla greinina í vefblaði þeirra en greinin hefst á síðu 20, sjáhttps://www.bbl.is/media/1/bbl22.tbl.2021web.pdf

Lífseigur áróður um að pappírsnotkun valdi skógareyðingu er ekki á rökum reistur. Hörður Kristjánsson ritstjóri Bændablaðsins skrifaði á dögum ítarlega fréttaskýringu um sjálfbærni pappírsnotkunar og hér er birtur hluti hennar.

08/10/2021

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er hreyfiafl sjálfbærrar verðmætasköpunar sem byggir á hönnun og arkitektúr. Miðstöðin stuðlar að auknu samstarfi milli hönnuða og fyrirtækja og vinnur að því að efla hönnunardrifna og notendavæna nýsköpun sem mótandi afl í menningu, sam...

Address

Reykjavíkurvegur 70
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Prentmiðlun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Prentmiðlun:

Share