Pure North

Call Directions Website Contact the business

Pure North Icelandic environmental technology company providing solutions for the circular economy

Pure North er umhverfistæknifyrirtæki sem rekur plastendurvinnslu í Hveragerði og ráðgjafastofu í Reykjavík. Pure North hefur þróað hugbúnað, einstakan á heimsvísu, sem greinir úrgangsmál fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga og gefur þeim yfirsýn til að gera breytingar sem hagræða og minnka kolefnisspor

Úlli útskýrir: Partur 3Í síðasta þætti af Úlli útskýrir nefndum við verkefnaborðið okkar.Kanban-borð er ekki nýtt af nál...
29/10/2026

Úlli útskýrir: Partur 3

Í síðasta þætti af Úlli útskýrir nefndum við verkefnaborðið okkar.

Kanban-borð er ekki nýtt af nálinni og þau hafa nú verið vinsæl í mörg ár (Trello, jira, asana, osfrv). Með því að hafa verkefnaborðið innbyggt í Úlla, þá er verkefnavinnan tengd úrgangsmálum öll undir einum hatti.

Dæmi: Segjum að þú takir eftir því að hafa borgað tvöfalt meira fyrir losanir í einum mánuði en þú gerir venjulega (sem er einfalt að sá með súluritunum okkar!). Þá viltu auðvitað að einhver úr þínu teymi eða þeim sem vinna með þér i úrgangsmálum viti af því. Í staðinn fyrir að fara úr Úlla, þá geturðu búið til verkefnið beint inni í Úlla, og viðkomandi fær strax að vita af því.

Allt er á einum stað. Þú getur líka sett staðsetningu á verkefnið og hvenær því á að ljúka. Svo þegar það er búið að skoða þetta, þá færirðu yfir í “Búið” dálkinn.

Við fengum heimsókn frá The Custodians til okkar í Hveragerði í dag.Þau eru komin hingað til lands vegna ráðstefnunnar “...
23/10/2026

Við fengum heimsókn frá The Custodians til okkar í Hveragerði í dag.
Þau eru komin hingað til lands vegna ráðstefnunnar “Atlantic Plastics Symposium 2026”. Þau komu við hjá okkur til að sjá endurvinnsluferlana okkar í eigin persónu. Við gáfum þeim innsýn í hvaðan plastið kemur, hvernig við nýtum jarðvarma í vinnslunni og sögðum þeim frá þeim áskorunum og tækifærum sem liggja fyrir í plastendurvinnslu á Íslandi.
Takk fyrir heimsóknina og takk fyrir þá hvetjandi vinnu sem þið vinnið!

Nánar um The Custodians: https://thecustodians.org/en/home

Verkland hefur ekki bara verið að byggja glæsilegar íbúðir á frábæru verði, Verkland hefur líka verið að vinna með auðli...
19/10/2026

Verkland hefur ekki bara verið að byggja glæsilegar íbúðir á frábæru verði, Verkland hefur líka verið að vinna með auðlindastjónrunar hugbúnað Pure North, Úlla úrgangsþjark, með glæsilegum árangri. Flokkunarhlutfall hefur snaraukist og kostnaður úrgangsmála dregist saman. Ingi frá Verkland er á myndinni með Sigurði, framkvæmdastjóra Pure North að fá afhent "Græna vagninn", viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Verkland er 100% búið að stökkva á græna vagninn 💯 🚃 ♻️ ❤️

hashtag

Úlli útskýrir: Partur 2Eins og við nefndum í síðustu „Ulli útskýrir” færslu (og kannski úr nokkrum öðrum líka), hjálpar ...
07/10/2026

Úlli útskýrir: Partur 2

Eins og við nefndum í síðustu „Ulli útskýrir” færslu (og kannski úr nokkrum öðrum líka), hjálpar Ulli við að koma reiðu á úrgangsgögnin og afhjúpar sparnað og umhverfisvæna sigra. Þið getið alltaf lesið meira á ulli.app.
Í dag ætlum við að skoða nánar Staðsetningar og rekstrareiningar.
Þegar það kemur að því að átta sig á stöðu úrgangsmála, er lykilatriði að geta borið saman staðsetningar, bæði hvað varðar samsetningu úrgangs, magns og kostnaðar.
Fyrir utan hefðbundna skiptingu á staðsetningum, er einnig hægt að deila staðsetningum upp í mismundandi rekstrareiningar, þannig að einfalt verður einnig að bera saman rekstrareiningar.
Dagsdaglega lítur það svona út:
- Samanburður hlið við hlið: Berið saman flokkunarhlutföll, heildarþyngd, kostnað á kíló og kostnað per losun milli verslana, útibúa og deilda. Línuritin leyfa ykkur að fylgjast með framförum milli mánaða (eða afturförum… djók, engar afturfarir hjá okkur!).
- Djúpköfun á hverri staðsetningu: Skoðið hvern stað fyrir sig til að sjá nákvæmlega hvað er í gangi, með sundurliðun eftir úrgangsflokkum, tíðni losana og öllum þeim smáatriðum sem þið þurfið til að fínstilla ykkar úrgangsmál.
- Frá innsýn til aðgerða: Takið þið eftir fráviki eða staðsetningu sem þarfnast athygli? Þá getið þið úthlutað verkefni beint á þann tiltekna stað um leið. En meira um verkefnakerfið okkar í „Ulli útskýrir” í næsta mánuði!

Við tókum nýverið þátt í málþingi Stjórnvísi, „Umbúðalaust Ísland?“, þar sem fjallað var um nýjar PPWR-reglugerðir ESB. ...
30/09/2026

Við tókum nýverið þátt í málþingi Stjórnvísi, „Umbúðalaust Ísland?“, þar sem fjallað var um nýjar PPWR-reglugerðir ESB. Skilaboðin voru skýr: með kröfum um endurvinnslu fyrir árið 2030, banni við notkun PFAS í umbúðum og þrepaskiptum umhverfisgjöldum þurfa fyrirtæki að hefja kortlagningu og rekjanleika allra umbúðastrauma. Við í Pure North hönnuðum Úlla sérstaklega til að leysa þessa áskorun. Hugbúnaðurinn veitir notendum fullkomna yfirsýn yfir úrgangsgögn og efnisskýrslugjöf á einum vettvangi. Ekki bíða eftir að frestirnir renni út, sjáðu hvernig Ulli getur hjálpað þínu teymi á https://ulli.app

[English below]Takk fyrir að heimsækja okkur á IceFish 2026!Við viljum þakka öllum viðskiptavinum, samstarfsaðilum og sa...
28/09/2026

[English below]

Takk fyrir að heimsækja okkur á IceFish 2026!
Við viljum þakka öllum viðskiptavinum, samstarfsaðilum og samstarfsfólki úr sem komu við hjá bás Pure North, sem við deildum með góðum vinum okkar frá Runi.
Það var frábært að hitta kunnugleg andlit og nýtt fólk, auk þess að halda áfram samtalinu um endurvinnslu og nýju lokaafurðirnar okkar. Allir eru að stökkva á græna vagninn og við finnum fyrir miklum vilja til að taka þátt í þeirri vegferð okkar að gera heiminn betri.
Takk öll sem komu í heimsókn; við hlökkum til að halda vegferðinni áfram.

----

𝗧𝗵𝗮𝗻𝗸 𝘆𝗼𝘂 𝗳𝗼𝗿 𝘃𝗶𝘀𝗶𝘁𝗶𝗻𝗴 𝘂𝘀 𝗮𝘁 𝗜𝗰𝗲𝗙𝗶𝘀𝗵 𝟮𝟬𝟮𝟲.
We’d like to thank all our customers, partners, and industry colleagues who stopped by the Pure North booth, shared by our great friends from Runi.

It was great to reconnect with familiar faces, meet new people, and continue conversations around recycling and our new end products. Everybody is jumping on the green wagon and we sence the willingness to join us on our mission to make the world a better place.

Thank you to everyone who joined us; we look forward to continuing the conversations.

IceFish - Icelandic Fisheries & Aquaculture Exhibition and Conference

Við erum á IceFish 2026, klár í slaginn! Kíktu við í spjall og skoðaðu um leið nýju vörurnar okkar. Lausnir sem eru umhv...
22/09/2026

Við erum á IceFish 2026, klár í slaginn! Kíktu við í spjall og skoðaðu um leið nýju vörurnar okkar. Lausnir sem eru umhvefisvænar og hjálpa þér að spara.
Við erum á bás með RUNI, dönsku toppfyrirtæki í jarðagerðarvélum og pressum. Sjáumst 🙌

📍Þú finnur okkur hér:
Dagsetningar: 22 - 24 september
Staðsetning: Salur 2, bás D23

Nú er allt að verða tilbúið fyrir IceFish og vonumst við til að sjá sem flest af ykkur á morgun. Við munum kynna nýjustu...
21/09/2026

Nú er allt að verða tilbúið fyrir IceFish og vonumst við til að sjá sem flest af ykkur á morgun. Við munum kynna nýjustu vöruna okkar, sem er bæði sjálfbær og góð fyrir umhverfið. Komdu við hjá básnum okkar á morgun og sjáðu með eigin augum!

📍Þú finnur okkur hér:
Dagsetningar: 22 - 24 september
Staðsetning: Fífan, salur 2, bás D23

Nánar um sýningu: icefish.is

Gleðilegan dag íslenskrar náttúru, gott fólk!Við erum á kafi við undirbúning á Icefish, glæsilegri sýningu sem fer fram ...
16/09/2026

Gleðilegan dag íslenskrar náttúru, gott fólk!
Við erum á kafi við undirbúning á Icefish, glæsilegri sýningu sem fer fram í Fífunni í næstu viku. Við vorum ekkert búin að minnast á það var það nokkuð? ;) Það væri svo gaman að hitta sem flesta.

Hlúum að náttúrunni. Við leggjum okkar lóð á vogarskálarnar með lausnum til fyrirtækja og sveitarfélaga sem styðja við betri flokkun og meðhöndlun.
Í dag er góður dagur til að hefja, bæta eða fullkomna þína leið. Hlúum og njótum, það fer nefnilega vel saman 🙌

Address

Sunnumörk 4
Hveragerði
810

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Pure North posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Pure North:

Shortcuts

Share

Nearby businesses