17/11/2023
Inni í Skóp er verið að vinna að fjölbreyttum verkefnum, við ætlum á næstu vikum að kynna þá aðila sem eru að nýta sér aðstöðuna. Fyrst er það fyrirtækið Rýna sem þær Katrín Hauksdóttir og Ragnhildur Thorlacius stofnuðu.
,,Við höfum unnið með tungumál og texta á einn eða annan hátt í leik og starfi síðastliðin 30 ár.
Haustið 2022 var kominn sá tímapunktur að við ákváðum að gera þetta meira að starfi en leik og búa til umgjörð utan um ástríðuna og stofna lítið fyrirtæki sem vinnur með texta í sinni fjölbreyttustu mynd. Afraksturinn er Rýna.
Meðal þess sem við tökum að okkur er yfirlestur á íslenskum og enskum textum, þýðingar milli þessara tveggja tungumála og almennar lagfæringar á textum. Auk þess höfum við yfirfarið vefsíður með tilliti til útlits síðunnar og aðgengileika fyrir notanda."
Nánari upplýsingar hér: https://www.ryna.is/
Bendum áhugasömum aðilum sem vilja koma og nýta sér aðstöðuna í Skóp til að vinna í sínu fyrirtæki, verkefni eða hugmynd að senda póst á [email protected] eða hringja í síma 8218333.