Kúper Blakk

Kúper Blakk Kúper Blakk - skapandi hugsun fyrir metnaðarfull vörumerki. Hvaða sögu segir brandið þitt? Using creative powers to do good things in the world

23/12/2024

Elsku vinir nær og fjör - við sendum ykkur JólaKúperknús - með ósk um frið á jörð 🌏❤️

Brandaraspjall fyrir áhugasama 🥰Við fögnum 4 ára afmæli Kúper Blakk - svo ótrúlega þakklát fyrir öll skemmtilegu verkefn...
23/10/2024

Brandaraspjall fyrir áhugasama 🥰
Við fögnum 4 ára afmæli Kúper Blakk - svo ótrúlega þakklát fyrir öll skemmtilegu verkefnin, endalausan meðbyr og frábæran hóp viðskiptaVINA 🫶 takk!

In a competitive world of branding, Iceland is still catching up. Tóta L. Sigurðardóttir believes Iceland is about a decade behind Denmark, where she studied, in brand strategy. She knows what she is talking about. She used to manage some of Iceland's wel

Yndislegt ár senn að baki og eiginlega ekki hægt að lýsa þakklætinu og þeirri hlýju sem við höfum upplifað í samstarfi o...
22/12/2023

Yndislegt ár senn að baki og eiginlega ekki hægt að lýsa þakklætinu og þeirri hlýju sem við höfum upplifað í samstarfi og verkefnum ársins.

Ný vinasambönd hafa orðið til og gömul og góð orðið enn traustari.

Það er svo frábært hvað fleiri og fleiri stjórnendur fyrirtækja sjá hversu góður bisness það er að hugsa með hjartanu 🙏🏻❤️

Framtíðin er bæði flókin og spennandi.
Gleðilega hátíð elsku vinir - knús og fullt af ❤️

📸 Ai skilgreinir Kúper Blakk sem mjúkan og rómantískan púða 💁🏻‍♀️ meikar sens

Brátt ótrúlega viðburðaríkt ár að baki og enn og aftur er þakklæti og hlýja það sem kemur helst upp í hugann þegar litið...
22/12/2022

Brátt ótrúlega viðburðaríkt ár að baki og enn og aftur er þakklæti og hlýja það sem kemur helst upp í hugann þegar litið er um öxl. ❤

Það er svo ótrúlega flott að sjá hversu mörg fyrirtæki og fólk í áhrifastöðum eru tilbúin að hugsa hlutina upp á nýtt og taka ákvarðanir sem breyta heiminum til góðs - til þess þarf sjálfstraust, ímyndunarafl og slatta af bjartsýni. Góðu fréttirnar eru að við getum ölla æft okkur í að verða betri í svona knúsi!

Þetta eru önnur jólin í röð sem Kúper Blakk styrkir Kvennaathvarfið og í ár höfum við einnig valið að gefa viðskiptavinum okkar Sannar jólgjafir frá Unicef. Við hvetjum ykkur öll að styrkja góð málefni, heima sem að heiman - ef þetta litla örfyrirtæki getur það þá ættu flestir aðrir að geta það líka 😎

❤ 🌟 🌿 Gleðilega hátíð 🌿 🌟 ❤

KVISS-BAMM!! og á nokkrum augnablikum eru liðin tvö ár frá því að Kúper Blakk var vakið af værum blundi og byrjaði að kn...
20/10/2022

KVISS-BAMM!! og á nokkrum augnablikum eru liðin tvö ár frá því að Kúper Blakk var vakið af værum blundi og byrjaði að knúsa fyrirtæki og stofnanir. Uppáhalds lýsingin mín frá viðskiptavini er "þetta er eins og að fara til sjúkraþjálfara - þú veist að þú þarft þess, en það er vont á meðan því stendur" haha - Love it!

Ég er orðlaus yfir þeim krefjandi og skemmtilegu verkefnum sem hafa orðið á vegi okkar - og er svo ólýsanlega spennt fyrir framhaldinu. Allra stoltust er ég þó af því fólki sem ég hef verið "oní skurðinum með" (þið vitið hver þið eruð) - það fyllir mig ótrúlegri gleði og bjartsýni að sjá hversu mörg fyrirtæki eru horfa inn á við og þróa brönd (já brand í ft.) framtíðarinnar til að breyta heiminum til góðs.
Meira knús ❤️ meira svona - við erum öll rétt að byrja!

Yndislega annasamt ár senn á enda og við svo ólýsanlega þakklát fyrir þau verkefni sem hafa á daga okkar drifið svo ekki...
23/12/2021

Yndislega annasamt ár senn á enda og við svo ólýsanlega þakklát fyrir þau verkefni sem hafa á daga okkar drifið svo ekki sé talað um vinasamböndin og flúnkunýjar broshrukkurnar 💫🍾🥂 Kæru vinir og velunnarar knúsum það sem skiptir mestu máli og munum að hugsa með hjartanu ❤️ 🌱🌏

Höldum upp á eins árs afmæli í nýjum starfsmannafatnaði 😎 Ótrúlega þakklát, smá þreytt, en tjúll spennt fyrir framtíðinn...
14/10/2021

Höldum upp á eins árs afmæli í nýjum starfsmannafatnaði 😎 Ótrúlega þakklát, smá þreytt, en tjúll spennt fyrir framtíðinni! Djöööö er gaman❤️‍🔥

„Mér finnst mikilvægast að flakka á milli ólíkra heima og máta hvernig ólík reynsla geti nýst í ólíkum verkefnum. Sú þek...
29/04/2021

„Mér finnst mikilvægast að flakka á milli ólíkra heima og máta hvernig ólík reynsla geti nýst í ólíkum verkefnum. Sú þekking að búa til bækur nýtist til dæmis ótrúlega vel þegar byggja á upp vörumerki, af hverju ertu að segja þessa sögu og af hverju er hún merkileg? Þetta er grunnurinn sem ég er að nýta í mínu starfi."

Meira um branding og hönnunarheila í Bændablaðinu :D
https://www.bbl.is/media/1/bbl8.tbl.2021web.pdf

Næstum komið sumar og næstum hálft ár síðan Kúper Blakk vaknaði af værum blundi - takk fyrir meðvindinn og góða strauma ...
14/04/2021

Næstum komið sumar og næstum hálft ár síðan Kúper Blakk vaknaði af værum blundi - takk fyrir meðvindinn og góða strauma kæru vinir ❤️🌏😘

Hvað er þetta branding og hvernig getur bókmenntafræði af öllum fræðum hjálpað vörumerkjum? - yndislega skemmtilegt að f...
31/03/2021

Hvað er þetta branding og hvernig getur bókmenntafræði af öllum fræðum hjálpað vörumerkjum? - yndislega skemmtilegt að fá að koma í heimsókn og ræða branding og tilgang Kúper Blakk m.a. við Ólafur Jónsson - takk fyrir mig - kv, Tóta

kv,
Tóta

Þórhildur Laufey bókmenntafræðingur, grafískur hönnuður og brandari er gestur Óla Jóns í þessum páskaþætti.

Takk fyrir frábærar viðtökur á árinu 2020 - yndis þið. Munum að hugsa með hjartanu 🌏❤️🌱 og knúsa það sem skiptir mestu m...
23/12/2020

Takk fyrir frábærar viðtökur á árinu 2020 - yndis þið. Munum að hugsa með hjartanu 🌏❤️🌱 og knúsa það sem skiptir mestu máli - framtíðin er fjölbreytt og spennandi og við þurfum að skapa hana saman - ok!

Address

Kópavogur
203

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kúper Blakk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share