18/12/2025
Hvert erum við komin þegar kemur að uppbyggingu húsa?
Nú á að breyta byggingastjóranum þannig að verkfræðistofur fara líklega að taka yfir þá vinnu, verður það til lækkunar á byggingakostnaði einstaklinga?
Ég stórlega efast um það!
Nú er búið að bæta við LCA greiningu ofan á þetta, sem á að sýna fram á hvert kolefnisspor byggingarinnar er. Þetta á hönnuður byggingarinnar að gera og tekur viðkomandi pappír gríðarlega mikinn tíma. Forritið sem við erum þvingaðir í að nota kostar töluverðar fjárhæðir (sjá mynd) sem bætist hér eftir beint ofaná fermetraverð einstaklinga.
Ég áætla að viðkomandi tala fyrir LCA sé um 1000kr/m2 og er það varlega áætlað!
Hver er ávinningurinn með þessu LCA kerfi?
Er ekki best að við hættum að flækja þetta kerfi.
Hvernig væri að við færðum okkur yfir í sænska kerfið þar sem meistararnir eru ábyrgir á sínum verkum.
Brjótir þú á þér (ekki alvarlega) þá færðu gula spjaldið. Gerir þú það aftur þá færðu ekki að vinna lengur við viðkomandi starf, þetta var allavega svona þegar ég vann í Svíþjóð.
Bkv Ingvar