ORF Líftækni hf.

Call Directions Website Contact the business

ORF Líftækni hf. ORF Líftækni hefur þróað nýstárlega aðferð, Orfeus™ kerfið, fyrir framleiðslu á sérvirkum próteinum.

Umfjöllun um ræktuð kjöt og framþróun í líftækni – svið sem ORF starfar á og þróast hratt sem sjálfbær framtíðarlausn í ...
28/04/2026

Umfjöllun um ræktuð kjöt og framþróun í líftækni – svið sem ORF starfar á og þróast hratt sem sjálfbær framtíðarlausn í matvælaframleiðslu.

Grein eftir:
Berglindi Rán Ólafsdóttur, forstjóra ORF Líftækni,
og Björn Örvar, stofnanda og vísindastjóra ORF Líftækni.

Það hefur líklega ekki oft gerst að þrír ungir menn setjist niður og ákveði að stofna fyrirtæki með það að markmiði að breyta byggfræi í líftækniverkssmiðju fyrir nýstárleg prótein. Hugmyndin er djörf og hún hljómar langsótt.

Við leitum að hæfileikaríkum sérfræðingi til að leiða próteintæknideild ORF Líftækni.ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki ...
17/09/2021

Við leitum að hæfileikaríkum sérfræðingi til að leiða próteintæknideild ORF Líftækni.

ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu frumuvaka (growth factors) í plöntum.

Frumuvakar ORF Líftækni eru meðal annars nýttir í BIOEFFECT húðvörulínu félagsins og seldir til rannsókna á lífvísindasviði. Nýjasta þróunarverkefni ORF Líftækni er framleiðsla á dýrafrumuvökum fyrir stofnfrumuræktað kjöt. Við trúum því að stofnfrumuræktað kjöt sé ný og gríðarlega spennandi atvinnugrein sem muni færa ORF Líftækni ný tækifæri.

Gætir þú breytt heiminum með þekkingu þinni á próteintækni? Við leitum að hæfileikaríkum sérfræðingi til að leiða próteintæknideild ORF Líftækni. ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki á sviði framle...

Vegna nýrra og spennandi verkefna auglýsir ORF Líftækni eftir fólki í eftirfarandi störf:SÉRFRÆÐINGUR Í PRÓTEINTÆKNILeit...
05/09/2020

Vegna nýrra og spennandi verkefna auglýsir ORF Líftækni eftir fólki í eftirfarandi störf:

SÉRFRÆÐINGUR Í PRÓTEINTÆKNI
Leitað er að sérfræðingi í próteintækni með áherslu á próteinhreinsun vaxtarþátta.

Þú getur sótt um starfið hér:
https://bit.ly/3bsHHhr

UMHVERFIS- OG GÆÐASTJÓRI
Leitað er að umhverfis- og gæðastjóra til að leiða vinnu sem snýr að umhverfis- og gæðamálum fyrirtækisins. ORF fékk gæðavottun fyrir BIOEFFECT snyrtivöruframleiðslu fyrirtækisins árið 2014 og síðan þá hefur fyrirtækið unnið samkvæmt þeim. Fyrirtækið hyggst halda áfram að þróa gæðamálin og leggja jafnframt aukna áherslu á umhverfismál.

Þú getur sótt um starfið hér:
https://bit.ly/359PxeM

Coverage about the European Commissions grant in Iceland Monitor.Umfjöllun um Evrópustyrkinn í Iceland Monitor.
04/08/2020

Coverage about the European Commissions grant in Iceland Monitor.

Umfjöllun um Evrópustyrkinn í Iceland Monitor.

The Icelandic biotechnology company ORF Genetics has been awarded a EUR 2.5 million grant from the Grant Management Services of the European Commission.

Það eru gríðarlega spennandi tímar framundan hjá okkur í ORF en við höfum hlotið 2,5 milljón evra rannsóknar- og nýsköpu...
31/07/2020

Það eru gríðarlega spennandi tímar framundan hjá okkur í ORF en við höfum hlotið 2,5 milljón evra rannsóknar- og nýsköpunarstyrk frá Evrópusambandinu til að þróa, framleiða og markaðssetja sérvirk prótein til framleiðslu á stofnfrumuræktuðu kjöti undir vörumerkinu MESOkine.

ORF Líftækni hefur hlotið eftirsóttan styrk Grant Management Services of the European Commission að upphæð 2,5 milljón evrur, eða um 400 milljónir íslenskra króna. Um er að ræða rannsóknar- og nýsköpunarstyrk vegna verkefnis ORF Líftækni sem felur í sér þróun,framleiðslu og ...

Við bjóðum Liv hjartanlega velkomna til ORF Líftækni 🌾
01/04/2020

Við bjóðum Liv hjartanlega velkomna til ORF Líftækni 🌾

Liv Bergþórsdóttir, fyrrverandi forstjóri Nova, hefur verið ráðin forstjóri ORF Líftækni og tekur við starfinu um næstu mánaðarmót. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Góðar fréttir af þeirri vinnu sem ORF Líftækni hefur tekið þátt í við þróun á bóluefni gegn sumarexemi í hestum. Verkefn...
20/03/2020

Góðar fréttir af þeirri vinnu sem ORF Líftækni hefur tekið þátt í við þróun á bóluefni gegn sumarexemi í hestum. Verkefnið er samstarfsverkefni Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, dýrasjúkdómadeild Háskólans í Bern í Sviss, dýrasjúkdómadeild Háskólans í Bristol í Bretlandi, ORF Líftækni og Cornell háskóla í Ithaca í New York-fylki í Bandaríkjunum.

„Í kynningarmyndbandinu segir Sara Björk Stefánsdóttir frá seinni hluta verkefnisins. „Hann snýst um að þróa afnæmingu, þar sem að hestar með sumarexem fá meðferð til að draga úr einkennum sjúkdómsins. Sú aðferð byggist á því að meðhöndla hesta um slímhúð munns með byggmjöli.“ Erfðabætta byggið sem notað er í meðferðina er framleitt í samstarfi við ORF Líftækni en í bygginu eru ofnæmisvakar úr bitkirlum smámýsins í byggfræjunum.

Aðferðin hefur verið prófuð á heilbrigðum hestum á Keldum með því að láta hestana vera með byggmjölsblöndu í sérstökum mélum og hefur hún skilað góðum árangri. Vilhjálmur útskýrir að hægt sé að mæla bælissvörun í heilbrigðum hestum en að nú þurfi að skoða hvernig hestar með sumarexem bregðist við. Í samstarfi við Cornell háskóla verða íslenskir hestar með sumarexem meðhöndlaðir í Bandaríkjunum.”

Eftir 20 ára rannsóknarvinnu hafa íslenskir og erlendir vísindamenn þróað bóluefni við sumarexemi sem hrjáir marga íslenska hesta erlendis. Lokahnykkur rannsóknarinnar hófst 16. mars sl. þegar 27 bólusettir hestar voru fluttir úr landi.

Við leitum að 3 sérfræðingum á sviði rannsókna- og nýsköpunar. Ef þú ert sú/sá sem við leitum að, þá eru mörg spennandi ...
20/12/2019

Við leitum að 3 sérfræðingum á sviði rannsókna- og nýsköpunar.
Ef þú ert sú/sá sem við leitum að, þá eru mörg spennandi verkefni framundan og við viljum endilega fá þig í okkar góða hóp starfsmanna!

Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast send í gegnum heimasíðuna Alfreð (www.alfred.is) fyrir dagslok 18. janúar 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsstjóri, Harpa Magnúsdóttir, í síma 591-1590.

Address

Víkurhvarf 7
Kópavogur
203

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545911570

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ORF Líftækni hf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ORF Líftækni hf.:

Shortcuts

Share