Vefgreining

Vefgreining Mitt sérfag er ráðgjöf, greining og mælingar með áherslu á uppbyggingu viðskipta á vefnum.

Ég stýri greiningu á árangri af markaðsstarfi hjá Marel, en hef jafnframt ráðlagt einstökum aðilum og verið fyrirlesari. Ég hef yfir 15 ára reynslu af vef- og markaðsmálum, þar sem ég hef aðallega beint sjónum að mælingum og greiningu. Meðal fyrirtækja sem ég hef aðstoðað í gegnum tíðina eru Marel, Capacent, Húsgagnahöllin, Betra bak og Dorma.

Ég var að klára minn ellefta ársskýrsluvef fyrir Marel. Framlag mitt hefur fyrst og fremst verið fólgið í utanumhaldi um...
16/03/2022

Ég var að klára minn ellefta ársskýrsluvef fyrir Marel. Framlag mitt hefur fyrst og fremst verið fólgið í utanumhaldi um töluleg gögn og tæknilegri ráðgjöf. Það er gaman að segja frá því að Marel var einmitt fyrst íslenskra fyrirtækja til að gefa út ársskýrslu á vefrænu formi. Við áttum í nánu og góðu samstarfi við fyrirtækið Premis varðandi þennan glæsilega vef.

Marel has published its 2021 Annual Report. The 2021 Annual Report provides an extensive overview of Marel as a leading global provider of advanced food processing equipment, systems, software and services to the poultry, meat and fish industries. The report is both digital, complete with interestin...

Hafnarfjarðarbær er í fararbroddi íslenskra sveitarfélaga þegar kemur að upplýsingagjöf um stafræna miðla bæjarins. Ég v...
05/01/2022

Hafnarfjarðarbær er í fararbroddi íslenskra sveitarfélaga þegar kemur að upplýsingagjöf um stafræna miðla bæjarins. Ég vann nýverið með þeim gagnvirkt yfirlit um síðasta ár á vefnum, sem má berja augum hér að neðan.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Fyrir þá sem eru áhugasamir um stöðu faraldursins á Norðurlöndum, þá held ég úti yfirliti sem sýnir stöðu bólusetningar,...
14/12/2021

Fyrir þá sem eru áhugasamir um stöðu faraldursins á Norðurlöndum, þá held ég úti yfirliti sem sýnir stöðu bólusetningar, andlát, innlagnir og nýgengi síðustu tveggja vikna. Yfirlitið uppfærist sjálfvirka utan talna um innlagnir, sem ég uppfæri sérhvern þriðjudag.

Síðustu viku hefur nýgengið á Norðurlöndum vaxið allsstaðar nema á Íslandi og flest smit á íbúa eru að greinast í Danmörku og Noregi. Innlögnum heldur líka áfram að fjölga, sérstaklega í Svíþjóð, þar sem þær nálgast nú frændþjóðirnar. Staðan þegar kemur að innlögnum er best um þessar mundir á Íslandi, en ekki þarf margar innlagnir í viðbót til að breyta stöðunni.

Við höfum verið að sjá nokkuð af dauðsföllum síðustu tvær vikur í Danmörku, Finnlandi og Noregi, en þeim fer nú fækkandi á ný. Í samanburði við önnur ríki eru dauðsföllin þó fá. Fáir hafa jafnframt dáið í Svíþjóð í þessari bylgju, enda vart á heildartöluna bætandi - af þeim rúmlega 20 þúsund sem hafa látist á Norðurlöndum, hafa meira en 15 þúsund látist í Svíþjóð - langtum meira en íbúafjöldinn gefur tilefni til. Andlátin í Svíþjóð eru þó ekkert óvenjumörg, þegar þau eru borin saman við önnur Evrópuríki - bara í samanburði við frændþjóðirnar.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Ég átti skemmtilega stund í morgun í Háskólanum í Reykjavík sem gestafyrirlesari hjá Gabríelu Rún Sigurðardóttur. Námske...
15/09/2021

Ég átti skemmtilega stund í morgun í Háskólanum í Reykjavík sem gestafyrirlesari hjá Gabríelu Rún Sigurðardóttur. Námskeiðið kallast Stafræn markaðssetning og þar fræddi ég hóp alþjóðlegra nemenda á ensku um vefmælingar - hvað í þeim felst, fyrir hverja þær séu og hvaða víti beri að varast.

Hér er tengill yfir í safn stjórnborða sem ég held úti um stöðu faraldursins á Norðurlöndum og nokkrum samanburðarríkjum...
14/07/2021

Hér er tengill yfir í safn stjórnborða sem ég held úti um stöðu faraldursins á Norðurlöndum og nokkrum samanburðarríkjum.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Þá eru öll ríki á listanum mínum búin að skila tölum gærdagsins. Veiran heldur áfram að breiðast hratt um Svíaríki og ál...
13/04/2021

Þá eru öll ríki á listanum mínum búin að skila tölum gærdagsins. Veiran heldur áfram að breiðast hratt um Svíaríki og álagið eykst á heilbrigðiskerfið. Það vekur nokkurn ugg að þeir sem þurfa þar á gjörgæslu að halda eru nú töluvert fleiri sem hlutfall af almennum innlögnum en í síðustu bylgju og minnir meira á fyrstu bylgjuna fyrir ári síðan. Hinsvegar eru dauðsföllin töluvert færri en fyrir ári. Af öðrum ríkjum heldur ástandið áfram að versna í Póllandi þótt smitum fari þar loks fækkandi. Hinsvegar halda tölurnar frá Ísrael og Bretlandi áfram að gleðja.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Uppfært vikuyfirlit komið á vefinn. Faraldurinn er nú á niðurleið í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Bretland er komið nið...
06/04/2021

Uppfært vikuyfirlit komið á vefinn. Faraldurinn er nú á niðurleið í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Bretland er komið niður í 86 smit á hverja 100.000 íbúa síðustu 2 vikur og dauðsföllin orðin sambærileg því sem gerist í Finnlandi. Aðrar góðar fréttir eru að Ítalía er komin niður fyrir 500 smit á hverja 100.000 íbúa. Smitum fjölgar hinsvegar á ný í Bandaríkjunum þótt viðamikil bólusetning eigi væntanlega eftir að halda nokkuð aftur af alvarlegum veikindum. Þá stefnir því miður enn allt í ranga átt hjá vinaþjóðum okkar Pólverjum og Belgum.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Í Norðurlandavakt þessarar viku ber það hæst að flestöll ríkin á listanum eru nú græn þegar horft er til þeirra sem hafa...
30/03/2021

Í Norðurlandavakt þessarar viku ber það hæst að flestöll ríkin á listanum eru nú græn þegar horft er til þeirra sem hafa látist síðustu tvær vikur. Undantekningarnar eru Pólland og Ítalía sem eru bæði eldrauð. Hinsvegar er ekki ólíklegt að dauðsföllin fari að skríða upp aftur í þeim ríkjum þar sem flest smit hafa verið að greinast að undanförnu, en það eru auk Póllands og Ítalíu, Svíþjóð, Holland og Belgía. Í öllum þessum ríkjum hefur orðið nokkur fjölgun þeirra sem liggja inni með sjúkdóminn.

Bóluefnin sýna vel virkni sína í Bretlandi og Ísrael. Þar greinast nú hlutfallslega færri smit en til að mynda í Danmörku og innlögnum hefur farið stöðugt fækkandi. Hinsvegar eru vísbendingar um að Bandaríkin hafi náð botninum í smitum og að faraldurinn sé að skríða upp að nýju. Á móti kemur að nálægt þriðjungur bandarísku þjóðarinnar hefur fengið að minnsta kosti eina bóluefnasprautu, sem ætti að halda aftur af því að smitin skili sér í samsvarandi aukningu innlagna.

Mig langar að lokum að benda á það að ég er búinn að bæta við nýju stjórnborði sem kallast "Eldrauð ríki", sem beinir sérstaklega sjónum að þeim ríkjum sem gætu valdið ferðalöngum vandræðum eftir 1. apríl.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Þá er komið að hinni vikulegu Norðurlandavakt. Faraldurinn er áfram í vexti á Norðurlöndum, svo og víðast hvar í Evrópu....
23/03/2021

Þá er komið að hinni vikulegu Norðurlandavakt. Faraldurinn er áfram í vexti á Norðurlöndum, svo og víðast hvar í Evrópu. Dauðsföllum heldur hinsvegar áfram að fækka, ef undan eru skilin Pólland og Ítalía. Að lokum stefnir allt í rétta átt í þeim ríkjum sem leiða í bólusetningum þegna sinna, eða Ísrael, Bretlandi og Bandaríkjunum - þegar kemur að smitum, innlögnum og dauðsföllum. Munið er yfirlitið er líka á ensku ef þið viljið deila því utan landsteinanna.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Önnur vika að baki. Staðfestum smitum fjölgar nú bæði á Norðurlöndum og víðast hvar á meginlandi Evrópu, á meðan þeim fæ...
16/03/2021

Önnur vika að baki. Staðfestum smitum fjölgar nú bæði á Norðurlöndum og víðast hvar á meginlandi Evrópu, á meðan þeim fækkar hjá þeim ríkjum sem eru í forystu þegar kemur að bólusetningu. Þá fjölgar dauðsföllum í Póllandi, Ítalíu og Belgíu, en fækkar annarsstaðar milli vikna. Innlögnum fjölgar í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi, en fækkar hér og í Danmörku. Vegna jákvæðrar þróunar eru daglegar tölur um heildarfjölda sjúklinga í Bandaríkjunum ekki lengur teknar saman og falla því úr yfirlitinu.

Google Data Studio turns your data into informative dashboards and reports that are easy to read, easy to share, and fully customizable.

Address

Kópavogur
200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vefgreining posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Vefgreining:

Share