Fóðurlausnir slf

Fóðurlausnir slf Fyrirtækið Fóðurlausnir var stofnað í desember 2013. Það sérhæfir sig í sölu á fóðurk

Spírunarkerfi sem auka möguleika lífrænnar ræktunar

Að sögn Ernu bjóða kerfin upp á mikinn sparnað fyrir bændur. „Ef við tökum dæmi um kúabónda sem gefur mikið þurrfóður eins og fóðurbæti eða bygg. Sá getur með því að sá átta kg af byggi framleitt 50 kg af bygggrasi á dag og margfaldað magnið í gæða grænfóðri, með hæstu mögulegu fóðureinginum á kílógrammið, sem hann væri annars að gefa í þurrfóð

ri. Við flytjum inn byggfræ sem er með mjög hátt spírunarhlutfall og myndar góða rótarmottu – sem er sterkjuríkt og fallegt gras og mjög próteinríkt. Við bjóðum bæði upp á korn ræktað eftir hefðbundnum leiðum, en einnig lífrænt ræktað byggfræ – og aukum þannig möguleika bænda á lífrænum búskap. Við höfum einnig gert samning við fyrirtæki sem framleiðir 100 prósent lífrænan áburð og steinefni fyrir skepnur sem er væntanleg viðbót við vöruúrvalið okkar. Áburðurinn inniheldur 85-92 steinefni og fimmtíu þúsund lífræn snefilefnasambönd. Rannsóknir hafa sýnt gríðarlegan mun á búfé á aðeins tveimur vikum eftir inntöku á þessum steinefnum.

Þær lausnir sem við bjóðum henta öllum sem halda skepnur; fyrir hesta, svín, kýr og jafnvel alifugla sem neyta spíraða bygggrassins á 3 degi spírumar þegar grasið er ekki orðið of hátt.

01/06/2023

Strength isn’t always the answer. In many situations, softness, not strength, weakness, not firmness, is the way to go, and we’re better off yielding than fi...

31/05/2023

Andrópása

Ef það er tabú að tala um breytingaskeið kvenna, prófaðu þá að impra á lægra testósteróni hjá körlunum og horfðu á alla í kring krumpast, svitna og roðna með krullaða efri vör.

Ciskynja karlmenn fara nefnilega líka á breytingaskeið.

Uppúr fertugu byrjar Testósterón að lækka hjá karlpeningnum um 1-3% á hverju ári.

Um það bil 10-25% karlmanna eru með of lágt testósterón,.

Eðlilegt magn hjá karlmönnum er frá 300-1000 nanógrömm per desiliter
Undir 300 ng/dL telst vera lágt testósterón.

Einkenni eru:

🔸Orkuleysi og heilaþoka
🔸Einbeitningaskortur
🔸Aukin þreyta
🔸Depurð
🔸Óöryggi og minna sjálfstraust
🔸Lægri kynhvöt
🔸Ófrjósemi
🔸Risvandamál
🔸Hitakóf eða svitaköst
🔸Óþægindi eða bólgur í brjóstkassa
🔸Vöðvar rýrna
🔸Erfiðara að byggja vöðvamassa.
🔸Minni beinþéttni
🔸Aukin fitusöfnun á kvið og brjóstum
🔸Svefntruflanir

Ef þú sem karlmaður ert oft þreyttur og orkulaus, einbeitningin úti á túni með rollunum, Grjótpirraður af engri ástæðu, eða dapur og reynir að fela það til að vera harður spaði. Sefur eins og spörfugl og vaknar jafnvel rennandi blautur um miðja nótt.
Æfir eins og berserkur en vöðvarnir láta ekki sjá sig, og fitan situr þrjóskari en sauðkindin á ástarhandföngunum og júllunum.
Hefur engan áhuga á húllumhæi í bólinu, og ert oftar lítill í þér með lítið sjálfstraust.

Þá gæti testó vinur vors og blóma verið miður sín í maskínunni.

Þess vegna er mikilvægt að láta mæla í sér testóið uppúr 45-50 ára til að sjá hvort þurfi að bústa það upp.

Sumir fá plástra, gel eða pillur eða testósprautur hjá doksa.

Það ber þó að hafa í huga að testósterónmeðferð er ekki með öllu áhættulaus. Það þarf að gera meiri rannsóknir á þessu sviði, en meðferð getur aukið líkur á krabbameini í brjóstum og blöðruhálsi sem og hjartaáföllum og blóðtappa.

Það er hægt að gera ansi margt fyrst til að dúndra upp testó með lífsstílsþáttum eins og svefni, mataræði, hreyfingu og bætiefnum.

Járnrífingar eru eina æfingaformið sem keyrir náttúrulega upp testósterón.

Inn koma hnébeygjur og réttstöðulyfta eins og riddarar á hvítum hesti til að bjarga prinsinum, sem í þessu tilfelli er orðinn miðaldra, gráhærður með nokkrar hrukkur.

Því fleiri vöðvar sem líkaminn þarf að kalla á vakt til að framkvæma ákveðna hreyfingu, því háværari krafa um vöðvabyggjandi viðbragð.

Til þess að byggja upp kjöt á grindina og viðhalda vöðvamassa þarf hormónabúskap eins og hjá unglingi.

Rannsókn sem skoðaði hvaða hreyfing losar mest af testósteróni í blóð eftirá leiddi í ljós að hnébeygja með stöng trónir þar efst á toppnum og réttstöðulyftan nartar í hælana.

Sem þýðir að í kjölfar viðskipta okkar við stálið þarf testósterón að dúndrast upp í öllum kynjum, og hormónabúskapur í mun betra jafnvægi.

Það sem virðist keyra Testósterónið allra mest upp er að lyfta þungt, en þungt er afstætt við styrk hvers og eins.
Miðaðu við 3-4 sett af 4-6 þungum endurtekningum með góðri hvíld á milli setta.
Hnébeygju, réttstöðulyftu, bekkpressu axlapressu og upphífingum.

Þolæfingar á hárri ákefð í stuttan tíma eins og lotuþjálfun (HIIT), sprengiþjálfun (Plyometrics) og TABATA sem nýta hvítu loftfirrðu vöðvaþræðina ættu að koma í staðinn fyrir æfingar á lágri ákefð í langan tíma sem nýta smærri rauðu súrefnisþræðina. Hvítir vöðvaþræðir eru þeir sem ákvarða stærð og styrk vöðvanna.

Svefninn skiptir líka gríðarlegu máli því Testósterón maskínan er í gangi á nóttunni eins og prentvélarnar hjá Mogganum.

Þegar hraustir 25 ára karlmenn voru sviptir svefni niður í fimm tíma á nóttu lækkaði testósterónið í líkamanum um 10-15 % á bara einni viku. Svo það er karlmennskutákn að fara snemma að sofa.

Þegar breytingaskeiðið mætir á svæðið uppúr fertugu fer svefninn oft enn lengra ofan í tojlettið. Karlmenn geta líka fengið hitaköst á nóttunni eins og Nixon í viðtali um Watergate. Tileinkaðu þér góða rútínu fyrir svefn, engir skjáir og dimmt og ískalt svefnherbergi.

Aðrir lífsstílsþættir sem skipta miklu máli eru að viðhalda kjörþyngd því lágt testósterón tengist bæði að vera of grannur og borða undir eða orkuþörf eða of feitur því hormónar í fitufrumunum geta hindrað testósterónframleiðslu með því að auka estrógenmagnið.

Forðast áfengi og tóbak, og minnka streitu því kortisól hefur áhrif á testósterónframleiðslu.

Hvað þú lætur ofan í mallakút er því ákveðin matvæli eru haukur í horni fyrir testósterónframleiðslu.

🔹Rautt kjöt: zink, magnesíum, B-vítamín, dýrafita
🔹Skelfiskur, sérstaklega ostrur: zink, selen og Omega 3
🔹Lax og annar feitur fiskur sprengfullt af D-vít, Omega-3 og zink
🔹Spínat og grænkál fyrir haug af magnesíum
🔹Heil egg/eggjarauður rík af selen sem er gott fyrir Testó
🔹Avocado + Ólífuolía: góð fita fyrir hormónaheilsu

Forðast mikinn sykur og draslkaloríur og borða fekar næringarríkar heilar afurðir.

Bætiefni geta líka hjálpað að bústa upp framleiðslunni.

➡️ Engifer er öflugt andoxunarefni sem dregur úr bólgum og getur komið í veg fyrir oxunarskemmdir í eistunum, en eins aukið framleiðslu á Luteinizing hormóni sem örvar framleiðslu testósteróns.

➡️ Zink er steinefni sem kemur við sögu í meira en 100 ferlum í skrokknum. Rannsóknir hafa sýnt að lágt zink magn hefur neikvæð áhrif á kynheils og testósterón.

➡️Magnesium slakar á vöðvum og stuðla að dýpri svefni. Karlmenn sem tóku 220 mg 2x á dag hafði góð áhrif á testó og frjósemi.

➡️ D-vítamín sumar rannsóknir sýna að lágt D-vítamín geti tengst lágu Testó hjá körlum. Þa virðist vera að 2000 iu á dag sé dúndur magn.

➡️ Ashwagandha og Rhodiola eru af fjölskyldu adaptógena sem eru plöntur sem auka mótstöðu gegn streitu. Með því að taka Rhodiola byggist upp mótstöðuafl eftir nokkra daga, og gerir okkur sterkari gegn kortisóli og Ashwagandha getur aukið sæðismagnið um 10-22%.

➡️ Fenugreek er jurtalyf. Niðurstöður einnar rannsóknar sýndi að Testósterón jókst verulega hjá körlum sem tóku 600 mg af Fenugreek í 12 vikur og önnur lítil rannsókn á 50 körlum sýndi 46-90% aukningu eftir 12 vikur.

Lágt Testó er ekki endalok æskuljómans og upphaf ellikellingar.
Þú getur verið algjör spaði, f**t og í formi með hormónabúskap eins og unglingur með réttum verkfærum í kistunni.

______________________________________________
Naglinn mælir með bætiefnum frá NOW Foods Iceland NOW Foods Iceland sem fást í Nettó


Heimildir:

Santos, H., Teixera, F., Use of medicinal doses of zinc as a safe and efficient coadjutant in the treatment of male hypogonadism, The aging male, vol 23, 2020, issue 5, Pp. 669-678,

Banihani SA. Ginger and Testosterone. Biomolecules. 2018;8(4):119.

PubMed ID:

• PMID: 26791805
• PMID 28138310
• Pmid 30009140
• PMID 19789214
PMID 21632481

28/04/2023
01/01/2023

RML mun bjóða upp á fyrstu tvo Bændahópana í febrúar næstkomandi en þeir hafa reynst mjög vel erlendis. Áhersla verður á jarðrækt og nýtingu áburðarefna. H

23/12/2022

Framundan eru jólaboð á færibandi.
Margir fá kvíðahnút yfir að hitta fjölskyldumeðlimi sem koma með athugasemdir um líkama þinn, mataræði, barneignir, sambandsstöðu.

Hafa ekki tilfinningalega innistæðu til að ræða pólitík og heimsmál.

Vilja ekki fulla frændann í heimsókn sem tekur þig fjórtán sinnum undir handarkrikann í trúnó.

Nenna ekki rökræðum við systkinin því þau eru alltaf ósammála.

Og þá reynir á okkur að setja skýr mörk

Þegar við setjum mörk þá heiðrum við okkar þarfir, setjum fram raunhæfar væntingar um hvaða framkomu við líðum í okkar garð.

Mörk eru sjálfsrækt og virðing við sjálfan þig.

Mörk geta átt við á mörgum sviðum. Tíma. Líkama. Sambönd. Samskipti. Hugarfar. Tilfinningar.

🔹 Líkamleg mörk varða hversu víðfeðmt þitt persónulega rými er, hver má snerta þig og hversu nálægt líkama þínum fólk má vera. Hvað þú lætur ofan í þig i mat og drykk.

„Mér finnst mjög leiðinlegt að tala um líkama minn eða mataræðið mitt. Ég væri miklu frekar til í að segja þér frá hvað ég stefni á að gera á nýju ári.

„Ég vil biðja þig að taka eitt skref afturábak, þú stendur/situr aðeins of nálægt mér.“

„Ég er ekki að drekka áfengi í kvöld.“
„Ég er ekki að borða sykur núna, svo ég ætla að afþakka þessa köku.“

🔹 Tilfinningaleg mörk snúa að hversu mikla inneign þú átt til að taka á þig tilfinningalegar byrðir annarra. Að ræða ekki mál sem vekja upp sterkar tilfinningar.

„Mig langar ekki að ræða þetta mál akkúrat núna.“

„Ég hef ekki tilfinningalega innistæðu til að ræða stjórnmál eða heimsmálin núna.“

„Það er of viðkvæmt fyrir mig að ræða barneignir núna.“

🔹 Hugræn mörk snúa að þínum eigin skoðunum og viðhorfum og að gefa þér fullt leyfi til að vera á öndverðum meiði við aðra. Að sætta sig við að vera stundum ósammála náunganum.

„Við erum ósammála, og það þýðir ekkert fyrir okkur að reyna að sannfæra hvort annað um að okkar sjónarhorn sé hið eina rétta.“

„Ég hef þessa skoðun og ég vil biðja þig að virða hana.“

🔹 Mörk í samskiptum eru hvernig aðrir mega tala við þig, hvað má segja við þig og hvað ekki. Hvernig þú talar við aðra og hvernig þú talar við sjálfa(n) þig.

„Ég vil biðja þig að segja ekki að ég sé með of dramatísk viðbrögð, það er gaslýsing og niðurlægjandi.“

„Ég vil biðja þig að lækka röddina þegar þú talar við mig.“

„Mér líkar ekki þessi tónn.“

🔹 Tímamörk snúa að hversu miklum tíma þú eyðir með öðrum. Hvernig þú vilt að aðrir virði þinn tíma hvað varðar að koma seint eða biðja þig um greiða.

„Mér þætti vænt um að þú látir mig vita næst þegar þér seinkar.“

„Ég hef því miður aðeins hálftíma til að hittast.“

🔹 Mörk í samböndum snúa að hvernig fólk kemur fram við okkur, hvernig framkomu við viljum og hvers þau geta vænst af okkur.

„Ég er ekki sátt við að þú ræðir mín persónulegu mál við annað fólk.“

„Ég get ekki lesið hugsanir, svo þú verður að segja mér þínar þarfir og langanir.“

„Ég vil frekar ræða málin en ekki láta þau hanga óleyst í lausu lofti“

Við viljum ekki ásaka, gagnrýna eða ráðast á hina manneskjuna með fullyrðingum.

Við viljum tala út frá okkur sjálfum og eigin upplifun.
"mér finnst...." "ég tel...." "það er mín upplifun...."

Við viljum halda okkur við málefnið en ekki hjóla í manninn.

Sumir svitna á rasskinnunum við tilhugsunina eina saman að setja fjölskyldumeðlimum mörk.
Sumum finnst dónalegt og ruddalegt að stama útúm túlann staðföstum skilaboðum um hvaða hegðun sé okkur boðleg.

Þegar reynt er að rífa niður mörkin þín þá stendurðu sterkur bakvið þau og endurtekur setningarnar eins og biluð plata.
Hækkar ekki róminn. Heldur ró þinni. Talar útfrá sjálfum þér.

Ávinningur þess að setja mörk:

Meiri sjálfsvirðing
Meiri hugarró
Meiri tími fyrir þína sjálfsrækt
Virðing fyrir þínum þörfum
Heilbrigð sambönd
Minni gremja, pirringur, frústrasjón og kulnun
Betri í að tjá þarfir þínar og langanir.

Oftar en ekki ofmetum við tilfinningaviðbrögð annarra.
Svekkelsi húsfreyju yfir óétinni kökusneið varir yfirleitt afar stutt.
Að einhver þurfi að færa sig um einn rass í sófanum mun ekki sitja í honum til eilífðar.
Að frænka þín fái ekki fullt skotleyfi á þitt líkamlega útlit mun ekki ríða henni að fullu.
Að umræða um flokkadrætti, reykfyllt herbergi og frændhygli í pólitík þarf að bíða betri tíma setur ekki partýið á felguna.

Yfirleitt þýða mörkin þín ekki lok vinasambands eða útskúfun úr samfélagi mannanna.
Þú færð ekki hæðnisbréf frá ríkisstjórninni.
Þín mörk þýða hinsvegar stórt skref í átt að sterkari sjálfsmynd og sífellt minni meðvirkni.

Hvert skipti sem þú setur mörk og stendur með sjálfum þér, þá byggirðu sjálfsmyndina einn Legókubb í einu.

09/10/2022

það kostar um 760 krónur á dag aò framleida 50 kg af
grænfóðri sem inniheldur rúmar 100 fóðureiningar

09/10/2022

erum með syningareintak af fóðurgámi með 50 kg framleiðslugetu á dag til sölu hafið samband i skilaboðum fyrir frekari upplysingar

19/09/2019
17/09/2019

Today I made it to 84 in reasonable health and could not have asked for a better setting amongst the people and wildlife I love. Enjoyed a lovely evening after dinner last night watching many elephants coming to water in the bright moonlight. And began today by the campfire at dawn meditating over a long life of struggle for high ideals along with many mentors and friends long since gone. As Rhodes said on his deathbed – “So much to do, so little done!” Now in the departure lounge and handing over to others younger and more capable I need to plan my remaining time more carefully and intend to do so.

26/02/2018

Address

Lágholti 15
Mosfellsbær
4412130340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fóðurlausnir slf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share