skuldavandi.is

skuldavandi.is Markmið mitt er að bæta stöðu viðskiptavina minna, það geri ég með reynslu minni og þekkingu. Sjá heimasíðu: www.skuldavandi.com

Margir áttu ekki fyrir skuldum og máttu þakka guði fyrir að vera yfirlýstir gjaldþrota, en allir sem nokkur miðmundi var að, voru látnir hánga í skuldasnörunni áfram og tylla niður tánum, í þeirri von að þeir gætu þó að minsta kosti marið vextina undan blóðugum neglunum, og það var kannski enþá meiri óhepni en gánga slyppur frá borði“

Halldór Kiljan Laxness (1934-35), Sjálfstætt fólk, bls. 489.

05/12/2019

Mál #741. Eldri einstaklingur í ábyrgð fyrir dóttur sína. Komið fjárnám í húsið hjá gamla. Niðurstaðan, krafa felld niður að öllu leyti, ekki hafði verið farið eftir Samkomulagi um notkun ábyrgðar frá árinu 1998. IPPON.

21/11/2019

“Margir áttu ekki fyrir skuldum og máttu þakka guði fyrir að vera yfirlýstir gjaldþrota, en allir sem nokkur miðmundi var að, voru látnir hánga í skuldasnörunni áfram og tylla niður tánum, í þeirri von að þeir gætu þó að minsta kosti marið vextina undan blóðugum neglunum, og það var kannski enþá meiri óhepni en gánga slyppur frá borði“

Halldór Kiljan Laxness (1934-35), Sjálfstætt fólk, bls. 489.

29/08/2019

Lokað vegna sumarleyfa. Opnum aftur 2. sept.

26/07/2019

Það er sorglegt til þess að hugsa að á 85 árum hafi löggjafavaldinu ekki borið gæfa til þess að jafna stöðuna á milli kröfuhafa og skuldara. Auðvelt er að draga þá ályktun að til þess sé enginn vilji. Gangi kröfuhafi svo nærri skuldara að sýslumenn úrskurði að um sé að ræða árangurslaust fjárnám, þátt ætti kröfuhafi að vera þess skyldugur að klára málið með því að fara með skuldara í gjaldþrotaskipti. Við gjaldþrotaskipti kemur niðurstaða, skuldari losnar undan kröfunum á 2 árum og verður aftur þátttakandi í samfélaginu. Kröfuhafi getur snúið sér að öðru en að reyna að blóðmjólka skuldarann. Allt samfélagið væri betur sett.

“Margir áttu ekki fyrir skuldum og máttu þakka guði fyrir að vera yfirlýstir gjaldþrota, en allir sem nokkur miðmundi var að, voru látnir hánga í skuldasnörunni áfram og tylla niður tánum, í þeirri von að þeir gætu þó að minsta kosti marið vextina undan blóðugum neglunum, og það var kannski enþá meiri óhepni en gánga slyppur frá borði“

Halldór Kiljan Laxness (1934-35), Sjálfstætt fólk, bls. 489.að

Þegar talað er um okur á innheimtukostnaði og vöxtum þá er það alltaf í tengslum við smálánafyrirtæki. En á þetta ekki b...
18/07/2019

Þegar talað er um okur á innheimtukostnaði og vöxtum þá er það alltaf í tengslum við smálánafyrirtæki. En á þetta ekki bara við alla innheimtu? Þarf ekki að endurskoða lög og reglur varðandi löglegan innheimtukostnað?

Hérna er dæmi frá viðskiptavin okkar. (Birt með góðfúslegu leyfi)

Höfuðstóll Til greiðslu Mismunur
1,200 5,877 4,677
42,644 148,748 106,104

Eðlilegt eða hvað?

18/07/2019

“Lögfræðingur Credit info segir þróunina áhyggjuefni, leggja þurfi meiri áherslu á gott fjármálauppeldi.”

“Í dag eru tæplega nítján þúsund manns á vanskilaskrá…”

“…gefið vísbendingar um það sem koma skal.”

„Vissulega er þetta áhyggjuefni og þetta tengist til þess að við þurfum að fara horfa meira til fjármálalæsis og eins og ég vil kannski kalla fjármálauppeldi,” segir Sigríður Laufey.”

Þegar fjallað er um vanskil einstaklinga er yfirleitt látið að því liggja að vandan sé að finna hjá einstaklingum þ.e. lántökum. Nefndar eru skýringar eins og það vanti uppá fjármálalæsi og fjármálauppeldi.

Sjaldan ef nokkurn tímann er rætt um ábyrgð lánveitanda, það er fremur undarlegt í ljósi þess að gríðarlega mikil aðstöðumunur er (ætti að vera) á milli lántaka og lánveitanda. Lánveitandi á að vera sérfræðingur á þessu sviði og hefur margvísleg tæki og tól til þess að meta það hvort lánveiting sé skynsamleg.

En er það svo? Er mögulegt að lánveitandi sé bara alls ekkert sérfræðingur í því að meta áhættu á útlánum? Eða er aðalmarkmiðið að koma út lánum til þess að geta fært þau til eignar í efnahagsreikning bankans?
Hver voru markmið lánafyrirtækja þegar farið var offorsi við 90% útlán voru leyfð?

Fólk sem lifað hefur við langvarandi greiðsluvanda, lifir við verulega skert lífsgæði. Að búa við skert lífsgæði til lan...
13/07/2019

Fólk sem lifað hefur við langvarandi greiðsluvanda, lifir við verulega skert lífsgæði. Að búa við skert lífsgæði til langstíma leiðir af sér margvísleg vandamál, fyrir umrædda einstaklinga, fjölskyldu þeirra og samfélagið í heild.

Það er öllum til bóta og ekki síst samfélaginu að einstaklingum í alvarlegum greiðsluvanda sé gefin kostur á því að hreinsa borðið og byrja upp á nýtt.

Gjaldþrotskipti eru valkostur sem bundinn er í lög og er réttur/skylda hvers manns sem ógjaldfær er.

Ég hvet alla þá sem kunna að vera ógjaldfærir að skoða alvarlega hvort það sé kominn tími til þess að óska eftir því að bú þeirra verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Að upplifa stöðugan sársauka og vanlíðan er ekki eðlilegt ástand. Nýttu rétt þinn.

16/02/2017

Við hjá Skuldavanda getum nú bætt við okkur verkefnum. Ef þú þarft aðstoð við að sækja um gjaldþrotaskipti þá getum við aðstoðað þig. Athugið að nú bjóðum við viðskiptavinum okkar uppá 12 mán. greiðsludreifingu fyrir hluta eða öllum kostnaði (þar með talið málsgjald, skiptatrygging og þóknun Skuldavanda) - Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga í gegnum skilaboð á síðunni.

Address

Njarðvík
235

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when skuldavandi.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to skuldavandi.is:

Share