Skriða

Skriða Bókaútgáfa • Prentverkstæði • Vinnustofa • Eyrargata, Patreksfirði.

Frábær sumargjöf! ☀️Rotturnar Rannveig og Karlotta eru í vandræðum með að velja sér bækur á bókasafninu en fá þá kort fr...
21/04/2026

Frábær sumargjöf! ☀️

Rotturnar Rannveig og Karlotta eru í vandræðum með að velja sér bækur á bókasafninu en fá þá kort frá Bárði bókasafnsrottu sem leiðir þær af stað í gönguferð um miðbæinn þar sem þær læra ýmislegt um bækur og íslenska sagnaheiminn. Þær komast þó í hann krappan þegar á vegi þeirra verða bókhneigðir kettir -en rottur hafa ráð undir rifi hverju og láta ekkert stoppa sig!

Í bókinni er síðan kort svo að ungir lesendur og fjölskyldur þeirra geta þrætt sig um miðbæinn og skoðað þá staði sem Rannveig og Karlotta heimsækja.
Bókin fæst á íslensku, ensku og pólsku.

www.skridabokautgafa.is

Eitt af nokkrum góðum vetrarljóðum úr heimkynnum eftir Þórð Sævar Jónsson. Þessi frábæra bók fæst enn í vefverslun Skrið...
19/03/2026

Eitt af nokkrum góðum vetrarljóðum úr heimkynnum eftir Þórð Sævar Jónsson.

Þessi frábæra bók fæst enn í vefverslun Skriðu og í völdum bókabúðum, s.s. Kanínuholunni, Bókumbók og Skáldu og er að sjálfsögðu prentuð og handsaumuð í Skriðu.

„Það er ástæða til að óska Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur til hamingju með það þrekvirki að þýða þessi mögnuðu ljóð Sylviu...
17/03/2026

„Það er ástæða til að óska Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur til hamingju með það þrekvirki að þýða þessi mögnuðu ljóð Sylviu Plath á íslensku. Vonandi heldur hún áfram að færa íslenskum lesendum mikilvæg erlend bókmenntaverk í þýðingum, það er mikilvægt starf fyrir íslenska menningu og tungumál. Ég hvet alla ljóðaunnendur til að næla sér í eintak af þessari vönduðu útgáfu frá bókaútgáfunni Skriðu.“

Einstaklega ítarleg og vönduð umfjöllun Soffíu Auðar Birgisdóttur um Ariel eftir Sylviu Plath á hinum frábæra vef Skáld.is. (Sjá hlekk í athugasemd).

Það er nýbúið að prenta og sauma fleiri eintök af bókinni en þau fást í vefverslun Skriðu á www.skridabokautgafa.is, í Kanínuholan - The Rabbithole, Skálda bókabúð, Bókumbók og í Bókabúð Forlagsins.

Og til hamingju Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir með stórafmælið!

🩵🩵🩵

Skriða minnir á Útgáfuhóf: Miðbæjarrottan í bókmenntaborg  sem verður haldið á Borgarbókasafninu sunnudaginn 15. mars kl...
14/03/2026

Skriða minnir á Útgáfuhóf: Miðbæjarrottan í bókmenntaborg sem verður haldið á Borgarbókasafninu sunnudaginn 15. mars kl. 14.
Bókin verður til sölu á góðu verði en að auki verður bókapakkinn með öllum fjórum rottubókunum á svakalegu tilboði og gjafapokar fylgja fyrir börnin.

Í þessari fjórðu og síðustu bók fá rotturnar Rannveig og Karlotta kort á bókasafninu sem leiðir þær af stað í gönguferð um miðbæinn. Þær komast í hann krappan þegar á vegi þeirra verða bókhneigðir kettir en rottur hafa ráð undir rifi hverju og láta ekkert stoppa sig. Með aðstoð ömmu Bardúsu og lagnarottanna geta þær frænkur klárað gönguna sem kennir þeim ýmislegt um bækur og íslenska sagnaheiminn.
Bókin kemur út á íslensku, ensku og pólsku.

Öll hjartanlega velkomin!

14/02/2026

Hundurinn Vísa vildi koma því á framfæri að það getur verið verulega krefjandi að vinna hjá Skriðu við prentun og bókband allan daginn, stundum svo mjög að nauðsynlegt er að hvíla lúin bein í svolitla stund ofan á bókapressunum.

Fjórða og síðasta bókin um miðbæjarrottuna Rannveigu gerist í bókmenntaborginni og kemur út á þremur tungumálum, íslensk...
15/12/2025

Fjórða og síðasta bókin um miðbæjarrottuna Rannveigu gerist í bókmenntaborginni og kemur út á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. Hún kemur formlega út eftir áramótin en þau sem vilja lauma rottu í jólapakkann geta pantað eintak á heimasíðu Skriðu.
Höfundur texta og mynda er Auður Þórhallsdóttir
Þýðandi úr ensku: Larissa Kyzer
Þýðandi úr pólsku: Maó Alheimsdóttir

Fjórða og síðasta bókin um Miðbæjarrottuna Rannveigu. Bókin kemur út á íslensku, ensku og pólsku og þarf að velja tungumál hér fyrir neðan. Höfundur texta og mynda er Auður Þórhallsdóttir.

Ófeigur og morðhórurnar voru í Víðsjá í dag. Endilega leggið við hlustir!
08/12/2025

Ófeigur og morðhórurnar voru í Víðsjá í dag. Endilega leggið við hlustir!

Ófeigur Sigurðsson var gestur í Víðsjá dagsins og sagði frá bók sem hann þýddi nýverið, smásagnasafni chileska rithöfundarins Roberto Bolaño, Morðhórur. Smásögurnar í safninu eru álitnar með því besta sem höfundurinn gaf frá sér, þar sem öll hans helstu einkenni og efnistök koma fram; kynferðismál, ofbeldi, ljóðlist, glötuð æska og umkomuleysi í framandi heimi. Bolaño er í senn hrár og ljóðrænn og gæddur bæði undraverðri frásagnargáfu og kímnigáfu, eins og segir á hárauðri bókakápunni, en það er Skriða sem gefur út.
Einnig kom Kolbeinn Bjarnason í þáttinn og sagði frá nýútkominni hljómplötu sinni, Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs. Yfirskriftin er fengin úr ljóði Steinunnar Sigurðardóttur, en tónverkið er allt byggt á skáldskap hennar. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Útreiðartúrinn eftir Rögnu Sigurðardóttur.
https://www.ruv.is/utvarp/spila/vidsja/23618/b725me

08/12/2025

Þar sem prentverkstæði Skriðu er staðsett í gömlum beitningaskúr við höfnina á Patreksfirði þótti við hæfi að jólakortin í ár yrðu tengd fiski og sjávarútvegi. Tvenns konar kort voru hönnuð og er annað þeirra sérstaklega hugsað fyrir þau sem stunda sjóinn eða þekkja til fólks á sjó, með óskum um farsælt komandi (fiskveiði) ár.

Opnunartímar fyrir jólin í Skriðu eru eftirfarandi daga frá kl. 16-19:30:Sun. 7. des. Mán. 8. des. Þri. 9. des. Mið. 10....
06/12/2025

Opnunartímar fyrir jólin í Skriðu eru eftirfarandi daga frá kl. 16-19:30:

Sun. 7. des.
Mán. 8. des.
Þri. 9. des.
Mið. 10. des.
Þri. 16. des.
Mið. 17. des.
Fim. 18. des.
Fös. 19. des.

Jólakort, jólamerkimiðar, póstkort, skissubækur, rifblokkir, prent og að sjálfsögðu bækur gefnar út af Skriðu.
Heitt á könnunni.

Svo er auðvitað alltaf hægt að panta í gegnum vefverslunina www.skridabokautgafa.is og sækja eða fá sent.

Endurljóðblöndun! Nýtt í vefverslun Skriðu. Umslag sem inniheldur allt til endurljóðblöndunar: rifblokk, orð, límstifti....
06/12/2025

Endurljóðblöndun! Nýtt í vefverslun Skriðu.

Umslag sem inniheldur allt til endurljóðblöndunar: rifblokk, orð, límstifti.

Endurljóðblöndun er skapandi aðferð sem virkjar ímyndunaraflið, býr til óvæntar tengingar og gerir ljóðagerð að athöfn þar sem leikgleði og ígrundun mætast.

Orð og textabrot eru tekin úr gömlum og úr sér gegnum bókum eða misprentunum af prentverkstæði Skriðu. Rifblokkin er einnig unnin úr afskurði sem til fellur á verkstæðinu.

Hægt er að velja um nokkra liti af rifblokk. Rifblokkin er í u.þ.b. A5 stærð og hægt að kippa síðunum úr. Enginn endurljóðblöndunarpakki er eins.

Fást aðeins í vefverslun Skriðu www.skridabokautgafa.is og á prentverkstæði Skriðu í verbúðinni við höfnina á Patreksfirði.

20/11/2025

Hæglætisbókagerð. Hver og ein bók er handgerð á sínum hraða á prentverkstæði Skriðu eftir eftirspurn en ekki í massavís fyrir markaðsdrifinn bókamarkað.

Address

Eyrargata
Patreksfjörður
450

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skriða posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Skriða:

Share