Eygló Austurland

Eygló Austurland Markmið Eyglóar er að efla nýsköpun, hringrás og orkuskiptaverkefni á Austurlandi.

Okkur langar að minna íbúa á köldum svæðum innan Múlaþings að nú fer að styttast í að lokað verður fyrir skráningar fyri...
10/04/2026

Okkur langar að minna íbúa á köldum svæðum innan Múlaþings að nú fer að styttast í að lokað verður fyrir skráningar fyrir heimsókn ráðgjafa frá Hagvarma, varðandi uppsetningu á varmadælukerfum.

Síðasti sjens til skráningar er 20 apríl og er skráning íbúum að kostnaðarlausu!

Frekari upplýsingar smá sjá á vef HEF.

HEF veitur bjóða íbúum á köldum svæðum í Múlaþingi, utan veitusvæðis HEF, ráðgjafaþjónustu varðandi uppsetningu varmadælukerfa. Heimsóknir verða skipulagða

Við tókum saman nokkrar algengar spurningar sem komu fram á fundunum okkar fyrr í vetur og settum saman hér á eina síðu....
09/03/2026

Við tókum saman nokkrar algengar spurningar sem komu fram á fundunum okkar fyrr í vetur og settum saman hér á eina síðu.
Hér má sömuleiðis finna gagnlega tengla um málefnið.

Takk kærlega fyrir mætinguna og áhugann sem fundarröðin hefur fengið. Við höldum svo samtalinu áfram.

Spurningarnar rigndu inn á fundunum Hlýtt heimili og við tókum saman helstu svörin um varmadælur, styrki og niðurgreiðslur, ásamt gagnlegum tenglum.

Í gær var síðasti fundurinn í “Hlýtt heimili” fundarröðinni okkar og erum við einstaklega ánægð með góða mætingu og auðs...
09/01/2026

Í gær var síðasti fundurinn í “Hlýtt heimili” fundarröðinni okkar og erum við einstaklega ánægð með góða mætingu og auðsýndan áhuga fólks á málefninu.

Við héldum átta fundi frá Vopnafirði til Djúpvogs og í heildina mættu yfir 250 manns og hlýddu á erindi frá verkefnastjóra Eyglóarverkefnisins hjá Austurbrú og sérfræðinga frá Umhverfis- og Orkustofnun. Allstaðar sköpuðust líflegar og skemmtilegar umræður og ljóst að margir fóru heim með nýjar hugmyndir og þekkingu.

Á næstu dögum munum við taka saman helstu upplýsingar og spurningar sem komu fram á fundunum og birta á heimasíðu Austurbrúar.

Takk kærlega fyrir frábærar viðtökur og gott samtal og við viljum þakka Axel og Hörn hjá Umhverfis- og Orkustofnun ásamt Búnaðarsambandi Austurlands kærlega fyrir samstarfið.

Frétt um fyrri hluta fundaraðarinnar "Hlýtt heimili" hefur verið birt á heimasíðu Austurbrúar.
11/12/2025

Frétt um fyrri hluta fundaraðarinnar "Hlýtt heimili" hefur verið birt á heimasíðu Austurbrúar.

Fyrri hluti fræðslufundaraðarinnar „Hlýtt heimili“ er nú yfirstaðinn, en fundirnir eru samstarfsverkefni Eyglóarverkefnis Austurbrúar, Búnaðarsambands Austurlands og Umhverfis- og orkustofnunar. Á fjórum fundum – frá Vopnafirði til Djúpavogs – var fjallað um hvernig heimili geta dregið úr húsh*tunarkostnaði og valið hagkvæmar, umhverfisvænar lausnir. Fræðslufundunum verður framhaldið í byrjun næsta árs.

Hlekkur á frétt í athugasemd.

Okkur langar að vekja athygli á sértæku styrkjakalli sem er í gangi hjá Loftslags- og orkusjóði þar sem hægt er að styrk...
05/12/2025

Okkur langar að vekja athygli á sértæku styrkjakalli sem er í gangi hjá Loftslags- og orkusjóði þar sem hægt er að styrkja kaup á tækjum og búnaði sem dregur úr losum vegna notkunar á tilbúnum áburði í landbúnaði.

Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir var þátttakandi í “Hlýtt heimili” fundarröðinni síðustu daga og sagði þar frá þessu styrktækifæri ásamt fleirum sem eru í boði í Loftslags- og orkusjóði.

Styrkurinn nær til kaupa á búnaði til að auka nákvæmni í áburðardreifingu, til kaupa á niðurfellingartækjum, drónum og fleiru sem getur nýst við að draga úr losun í þessum þætti landbúnaðar.

Hámarksstyrkur er 10 milljónir, en þó aldrei meiri en 40% af heildarupphæð. Nánari upplýsingar má finna hér: https://island.is/styrkir-til-loftslagsvaenna-taeknilausna-i-landbunadi

Eygló mælir einnig með að fólk kynni sér aðra styrki sem eru í boði hjá Loftslags- og orkusjóði en lista yfir þá alla má finna á heimasíðu sjóðsins www.orkusjodur.is

Loftslags- og orkusjóður, í daglegu tali nefndur Orkusjóður, styður aðila sem ýmist vinna að verkefnum sem minnka losun gróðurhúsalofttegunda, binda slíkar lofttegundir varanlega eða nýta innlenda vistvæna orku betur.

🌊 Við vitum flest að plastmengun í sjó er mikið vandamál – en vissir þú að stór hluti hennar kemur frá sjávarútvegi?Tali...
18/08/2025

🌊 Við vitum flest að plastmengun í sjó er mikið vandamál – en vissir þú að stór hluti hennar kemur frá sjávarútvegi?

Talið er að um 10-30% þess plasts sem er í sjónum sé upprunnið frá fiskveiðum og/eða fiskeldi í sjó. Rannsóknir á svokölluðum „plasteyjum“ sem fljóta um hafið hafa sýnt að stór hluti þeirra er úr veiðarfærum.

Góðu fréttirnar eru þær að með aukinni meðvitund um vandamálið er mjög jákvæð þróun að eiga sér stað hér á landi.

Í síðustu viku var það í fréttum að hvergi fer eins metnaðarfull endurvinnsla fram á veiðarfæraúrgangi og á Íslandi. Árlegt markmið er að safna 60% veiðarfæra sem eru á markaði og eru úr gerviefnum, en hjá löndunum í kring um okkur eru markmiðin 10-25%.

Við hjá Eygló ákváðum til gaman að slá á þráðinn til fjögurra stærstu fiskvinnslufyrirtækjanna hér á AUSTURLANDI og könnuðum hvernig málum væri háttað hjá þeim.

Niðurstaðan?
🐠 Tvö þeirra senda ÖLL sín veiðarfæri til endurvinnslu!
🐟 Þriðja endurvinnur yfir 90%
🐡 Hið fjórða gaf ekki svör, en líklegt er að verklagið sé svipað þar.

Okkur fannst einstaklega gleðilegt hversu vel stóru sjávarútvegsfyrirtækin á Austurlandi standa sig og vonum að þetta verði öðrum hvatning til að gera slíkt hið sama 🌍🩵

Hvergi annars staðar eru markmið um söfnun veiðarfæraúrgangs til endurvinnslu jafn metnaðarfull og á Íslandi. Þetta segir Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS og stjórnarmaður hjá Úrvinnslusjóði, í samtali við 200 mílur

English below - Nýverið birtum við hjá Eygló upptöku af fræðslufundi sem haldinn var á Stöðvarfirði í apríl og fjallaði ...
18/07/2025

English below -
Nýverið birtum við hjá Eygló upptöku af fræðslufundi sem haldinn var á Stöðvarfirði í apríl og fjallaði um varmatælur og styrkjamöguleika.
Tilgangur fundarins var að fræða íbúa Stöðvarfjarðar um ólíkar gerðir varmadæla, hvað lausnir gætu hentað hverjum og hvaða styrkir eru í boði við kaup og uppsetningu þeirra.

Var fundurinn styrktur af frumkvæðisstjóði verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður.

Fundurinn var haldinn á íslensku, en myndbandið býður upp á textun á ensku og pólsku.
---------------------------------------
Recently, we at Eygló published a recording from an educational meeting held in Stöðvarfjörður focusing on heat pumps and available grants.
The purpose of the meeting was to inform local residents about different types of heat pumps, which options may suit different needs and what grants are available for purchasing and installing them.

The event was supported by Sterkur Stöðvarfjörður project.

The meeting was heldin Icelandic but English and Polish subtitles are provided.

Hlýtt heimili - Fræðsla um varmadælur og styrki @ StöðvarfjörðurPresentations hjá Parut ehf og Umhverfis- og orkustofnun:https://tinyurl.com/4m4xr3hzhttps://...

Eygló vill óska Fljótsdalshreppi til hamingju með nýjasta skrefið sem stigið hefur verið í uppbyggingu Hamborgar sem og ...
08/07/2025

Eygló vill óska Fljótsdalshreppi til hamingju með nýjasta skrefið sem stigið hefur verið í uppbyggingu Hamborgar sem og vinnuna sem nú hefst handa við hönnun á al-Fljótsdælísku húsunum sem þar munu rísa í samstarfi við Skógarafurðir með styrk úr Lóu.

Það eru spennandi tímar framundan og við erum ánægð að hafa fengið að taka þátt í umræðunni um uppbygginguna á svæðinu og hlökkum til að sjá framvinduna á næstu mánuðum.

Jarðvegsframkvæmdir hefjast í nýjum þéttbýliskjarna í Hamborg í Fljótsdalshreppi. Fyrsta skóflustungan verður tekin í ágúst og stefnt er að byggingu 8-10 húsa, þar á meðal tveggja timburhúsa úr efniviði úr dalnum.

Á alþjóðadegi umhverfisins þann 5. júní héldum við í samstarfi við Austurbrú og Eflu velheppnaða umhverfisráðstefnu á Eg...
27/06/2025

Á alþjóðadegi umhverfisins þann 5. júní héldum við í samstarfi við Austurbrú og Eflu velheppnaða umhverfisráðstefnu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Hvernig byggjum við 2050?“ þar sem fjallað var um framtíðina í mannvirkjagerð og sjálfbærari möguleika í húsum framtíðarinnnar.

Á ráðstefnunni töluðu margir flottir fyrirlesarar og sérfræðingar um málefnið, en lokahnykkurinn kom frá Arnhildi Pálmadóttur handhafa Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs sem hélt afar áhrifaríka tölu um mikilvægi þess að endurnýta hráefni við byggingar, bæði til að minnka kolefnisspor en að sama skapi til að sporna við sóun í samfélaginu.

Við viljum þakka öllum sem sáu sér fært að mæta á þessa fyrstu Umhverfisráðstefnu Austurlands kærlega fyrir og vonumst til að geta endurtekið leikinn fljótlega með nýju þema.

26/06/2025

Í gærkvöldi bárust jákvæðar fréttir frá sjávarútvegsfyrirtækjum hér á Austurlandi, en Eskja hefur tryggt sér rafmagn fyrir fiskimjölsverksmiðjuna sína á þessari makrílvertíð. Það þýðir að ekki þarf lengur að brenna olíu við vinnsluna líkt og síðustu ár. Einnig er útlit fyrir að rafmagn verði aðgengilegt fyrir kolmunnavertíðina í vetur sömuleiðis.

🌿En hvaða þýðingu hefur þetta fyrir Austurland og kolefnisspor svæðisins? 🌱

Árið 2022 brenndum við á Austurlandi yfir 13 milljónum lítra af olíu við fiskimjölsframleiðslu. Það jafngildir losun upp á tæplega 38.000 tonn kolefnisígilda yfir árið – sem er nánast jafn mikil losun og öll eldsneytisnotkun samgangna í fjórðungnum á einu ári!
Það er því til mikils að vinna í þessum efnum.

🌍 Ef ykkur langar að fræðast betur um þessi mál viljum við benda á skýrsluna "Kolefnisspor Austurlands 2022" sem kom út í vetur. Þar má skoða hvernig heildarlosun fjórðungsins er og hlutverk hvers þáttar fyrir sig.
Hlekk á skýrsluna má finna í athugasemd.

25/06/2025

♻️ Höldum hringrásinni gangandi með því að koma hlutum í réttan farveg til endurvinnslu ♻️

Í ágúst verður brotajárnssöfnun í öllum byggðum Múlaþings íbúum að kostnaðarlausu og sér sveitarfélagið um að koma hlutunum í rétt ferli.

Við hvetjum íbúa svæðisins til að nýta sér þetta, en rusl er ekki alltaf rusl.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Múlaþings og á hlekk hér í athugasemdum!

Address

Búðareyri 1
Reyðarfjörður
730

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Eygló Austurland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Eygló Austurland:

Share