24/04/2022
Ótrúlegt ferðalag sem Hey!rúlla verkefnið hefur gengið í gegnum síðustu 2 ár og nú í maí hefst framleiðsla á 100 margnota heyrúllupokum fyrir sumarið. Ferlið hefur verið mjög krefjandi en gefandi á sama tíma en þvílíkt tækifæri sem sköpun á Hringrásarhagkerfi innan landbúnaðarins er og verður spennandi að sjá hvert þetta ferðaleg fer.
Í boði er að taka þátt í því ferðalagi með að skrá sig frítt fyrir 2-3 pokum til að prufa í sumar og veita ómetanlega gagrýni til að taka þetta verkefni alla leið.
Einnig er í boði að vera með í að framleiða pokana nú í maí þegar endurunnið dúkaefni, einstefnuventlar og festingar koma upp í Kísiliðjuna í Mývatnssveit, áhugasamir geta haft samband í [email protected] - ath. þetta er launað og hægt að ráða vinnutíma :)
Hey!rúlla hefur nú þegar komist í Bændablaðið, fengið umfjöllun á N4 Sjónvarp og í kvöld, 24.apríl 2022, klukkan 20:00 er það Landinn - frétta- og þjóðlífsþáttur sjálfur sem kom í heimsókn um daginn.
https://www.ruv.is/frett/2022/04/25/hannar-fjolnota-poka-fyrir-heyrullur
PlastGarðar vill þakka öllum velunnurum s.b. Íslandsbanki, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, Norðanátt, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Svava Björk Ólafsdóttir, Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir