14/06/2025
Eldjárn Capital ráðgjafi við kaup Samhentra á Plastco.
Enn heldur mótun framtíðarinnar áfram hjá Samhentum Kassagerð. Nú hefur félagið keypt allt hlutafé í Plastco ehf., sem er leiðandi fyrirtæki í hönnun, sölu og þjónustu á vélbúnaði til pökkunnar, þar sem áhersla er lögð á sjálfvirknivæðingu, gæði og skilvirkni.
Með kaupum Samhentra á Plastco styrkir félagið enn frekar stöðu sína sem leiðandi fyrirtæki á Íslandi þegar kemur að sölu og framleiðslu umbúða og merkinga auk hönnunar á pökkunarferlum, sölu á pökkunarlínum og pökkunarvélalausnum.
Árið 2024 keyptu Samhentir einnig allt hlutafé Formar ehf., en Formar ehf. framleiðir frauðplastkassa til notkunar í matvælaframleiðslu, auk einangrunarplasts.
Kaupin á Plastco eru mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Samhentra og styrkja þau enn frekar stöðu félagsins á markaði og styðja við vaxtaráform félagsins á komandi árum.
Við hjá Eldjárn Capital þökkum traustið og óskum báðum aðilum til hamingju með viðskiptin.
Plastco velti tæplega 1,7 milljörðum króna árið 2023.