18/10/2023
Aldrei þessu vant var ég að lesa stutta grein eftir Marcel Schwantes (https://www.linkedin.com/in/marcelschwantes/) á sviði leiðtogafræða í veftímaritinu Inc. þegar ég rakst á þessar tvær frábæru setningar sem hljóma svona:
“Leadership is demonstrated through competence, not attitude, confidence, or charisma. It takes ability and skills.”
Á íslensku mætti þýða þetta sem: “Leiðtogahæfileikar birtast sem hæfni í hlutverkið, en ekki sem viðhorf, sjálfstraust eða útgeislun. Leiðtogafærni krefst hæfileika og færni.
Þegar kemur að ráðningum í stjórnunarstöður vill það gjarnan gerast að sá umsækjandi sem hefur mest sjálfstraust eða útgeislun (charisma) fær starfið þó aðrir umsækjendur standi honum framar í menntun, reynslu og orðspori. Þetta er mjög mannlegt vegna þess að við mannfólkið teljum oft að sjálfsöryggi og útgeislun tengist því að viðkomandi sé þar með öflugri stjórnandi og þar með líklegri til árangurs. En hér er um vel þekkta skynvillu að ræða og fjöldinn allur af rannsóknum sem sýna fram að sjálfsöryggi og útgeislun jafngildir ekki leiðtogahæfileikum. Þess í stað eru þessir eiginleikar einn af mörgum þáttum í fari góðra stjórnenda. Ennfremur benda rannsóknir til þessir tilteknu eigileikar geti hreinlega gert fólk að slæmum leiðtogum sem hafa neikvæð áhrif á umhverfi sitt.
Það vill gjarnan gleymast að góðir stjórnendur og leiðtogar eru fyrst og fremst uppteknir af því að stuðla að því að samstarfsfólk og undirmenn sínir nái árangri, huga að valdeflingu, þróun á færni og skapa góðar aðstæður á vinnustað þannig að vinnustaðurinn blómstri. Þessi nútímalega tegund stjórnunar er gjarnan kölluð umbreytingastjórnun (e. transformational leadership). Þessir eiginleikar hafa í sjálfu sér ekkert með sjálfstraust eða útgeislun að gera.
En mér fannst þessar setningar í grein Schwantes ná svo frábærlega vel um ofangreind sjónarmið þegar kemur að eiginleikum stjórnenda.
Ég vil líka benda áhugasömum um þetta málefni á grein eftir Tomas Chamorro-Premuzic í HBR sem heitir „Workplace Discrimination Why Do So Many Incompetent Men Become Leaders? í ágúst 2022 þar sem m.a. segir:
„That is, because we (people in general) commonly misinterpret displays of confidence as a sign of competence, we are fooled into believing that men are better leaders than women. In other words,
when it comes to leadership, the only advantage that men have over women (e.g., from Argentina to Norway and the USA to Japan) is the fact that manifestations of hubris — often masked as charisma or charm — are commonly mistaken for leadership potential, and that these occur much more frequently in men than in women. “