24/09/2026
Kosningabaráttan í ágúst var að mörgu leyti ólík aðdraganda hefðbundinna kosninga. Hagsmunasamtök og fólk leiddu baráttuna að stórum hluta og svo var auðvitað rifrildið um hvað væri nú eiginlega verið að kjósa um.
Á næstu Kaffistofu Aton ætla Anna Lísa Björnsdóttir, ráðgjafi hjá Aton og Jón Gunnar Ólafsson lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands að kafa ofan í kosningabaráttuna. Í erindinu rýna þau meðal annars í orðræðu, skoða herferðir beggja fylkinga, kanna hópana sem voru virkjaðir, hvernig erlendir miðlar fjölluðu um kosningarnar og velta fyrir sér hvað þessi óvenjulega barátta kennir okkur um kosningar, fjölmiðla, kjósendur og samskipti í heild sinni.
Markmið Kaffistofunnar er að bjóða fólki að koma og heyra eitthvað ferskt, spjalla um eitthvað áhugavert og mynda tengsl.
Gestum er boðið að hlusta á erindi, spyrja spurninga og þiggja kaffi og veitingar áður en haldið er út í vinnudaginn.
Viðburðurinn er opinn öllum og kostar ekkert inn.
Skráðu þig hér: https://atonjl.typeform.com/to/YTPMydPc
Hvenær? Miðvikudaginn 30. september kl. 09:00. Húsið opnar kl. 8:30.
Hvar? Tryggvagötu 10, 101 Reykjavík.