Nýjar Áttir - ráðgjafaþjónusta

Nýjar Áttir - ráðgjafaþjónusta Aðferðafræði ráðgjafaþjónustunnar er tvíþætt. Annars vegar eru einstaklingsviðtöl sem byggja á áhugahvetjandi samtali.

Nýjar Átir bjóða upp á stuðning/ráðgjöf í formi viðtala og verkefna til einstaklinga og aðstandenda þeirra sem eru að takast á við bakslög í lífinu, hvort sem um er að ræða aðila sem hafa átt við fíknivanda að etja eða ekki. Þór Gíslason, stofnandi og eigandi ráðgjafaþjónustunnar, er með ríflega 30 ára vegferð að baki í því að takast á við lífið eftir meðferð við fíkn. Þá hefur Þór yfir 20 ára sta

rfsreynslu í meðferðarstarfi og innan félagsþjónustunnar. Meðal annars hefur hann unnið með fullorðnum í vímuefnameðferð, á meðferðarheimili fyrir unglinga, hjá félagsþjónustu í einstaklings-, fjölskyldu- og barnaverndarmálum og með heimilislausum með fjölþættan vanda. Þá hefur Þór starfað hjá frjálsum félagasamtökum í skaðaminnkun og verkefnum fyrir einstaklinga með geðraskanir auk starfs sem verkefnastjóri hjá hátæknifyrirtæki. Á undanförnum árum hefur Þór byggt upp víðtæka þekkingu og reynslu á fjölbreyttum aðferðum og kenningum sem unnið er eftir í meðferð einstaklinga með fíknivanda. Þá hefur Þór unnið mikið að framgangi hugmynda- og aðferðafræði Skaðaminnkunnar (Harm Reduction) í íslensku samfélagi

Meginmarkmið þjónustunnar er að byggja upp góðan skilningi hjá einstaklingnum á þeim þáttum sem valda honum erfiðleikum í daglegu lífi, að hann þekki viðbrögð sín við þeim, kunni aðferðir til að draga úr neikvæðum viðbrögðum og hafi góða innsýn í hver rót erfiðleikanna er. Með aukinni þekkingu á sjálfum sér, áhrifum margvíslegra áreita í daglegu lífi, ásamt kunnáttu á og þjálfun í að beita aðferðum og áhöldum sem í boði eru, aukast líkur á því að einstaklingurinn nái að takast á við erfiðleika og þar með draga úr líkum á bakslagi og/eða bregðast rétt við ef bakslag á sér stað. Mikil áhersla er lögð á að byggja upp traust milli ráðgjafa og viðskiptavinar. Árangur viðtala byggir á því að einstaklingurinn finni hjá sér hugrekki til að horfast í augu við sjálfan sig, upplifa tilfinningalegan sársauka og að treysta annarri persónu fyrir því, þannig að hann geti tjáð heiðarlega allt sem upp kann að koma. Hinsvegar er verkefnavinna sem byggir á því að finna og setja “flögg” við atvik, aðstæður, tilfinningar og viðbrögð sem hafa neikvæð áhrif á daglegt líf einstaklings. Fyrir hvert atriði sem er flaggað er unnið verkefni til að ná betri skilningi á undirliggjandi orsök og hvernig hægt er að draga úr eða koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar. Út frá því er útbúin æfing/aðgerðaáætlun sem miðar að því að þjálfa upp viðbrögð við atvikum, aðstæðum og tilfinningum sem leiða til jákvæðra áhrifa eða, í það minnsta, draga úr neikvæðum áhrifum.

Fyrsta úthlutun Styrktarsjóðs geðheilbrigðisNýjar áttir: Tilraunaverkefni sem miðar að því að styrkja fyrrum fanga til a...
15/10/2021

Fyrsta úthlutun Styrktarsjóðs geðheilbrigðis

Nýjar áttir: Tilraunaverkefni sem miðar að því að styrkja fyrrum fanga til að byggja upp getu og þrautseigju eftir afplánun
Verkefnið gengur út á eins og kemur fram í heiti þess að efla þrautseigju fanga eftir afplánun og þannig draga úr líkum á bakföllum og endurteknum athöfnum sem geta leitt til fangelsisvistar. Um er að ræða jaðarsettan hóp í samfélaginu sem býr við landlæga fordóma og jafnvel útskúfun. Það er mat fagráðs að verkefnið falli vel að öllum lykilviðmiðum sjóðsins sem eru valdefling notenda og aðstandenda, mannréttindum og jafnrétti og nýsköpun.

Sjá nánar á vef Geðhjálpar á

Fimmtudaginn 14. október fór fram fyrsta úthlutun Styrktarsjóðs geðheilbrigðis í Sunnusal Iðnó. Alls bárust 54 umsóknir til Styrktarsjóðs geðheilbrigðis samtals að upphæð 137.275.000 kr. Margar þessara umsókna þóttu til fyrirmyndar en sjóðurinn hafði yfir að ráða 10 m.kr...

Nýjar Áttir - ráðgjafaþjónusta hefur opnað að Fellsmúla 26 í Reykjavík. Skrifstofan er á 4. hæð í Hreyfilshúsinu á horni...
15/10/2021

Nýjar Áttir - ráðgjafaþjónusta hefur opnað að Fellsmúla 26 í Reykjavík. Skrifstofan er á 4. hæð í Hreyfilshúsinu á horni Grensásvegar og Miklubrautar.

Address

Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00

Telephone

+3546593339

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nýjar Áttir - ráðgjafaþjónusta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share