07/04/2025
🔁 Vörumerki býr í huga fólks — hvort sem það er starfsfólk, viðskiptavinir eða aðrir hagaðilar. Fyrirtækjum hættir þó til að vinna í sílóum þar sem mannauðsstjóri og markaðsstjóri hafa lítil samskipti um vörumerkið og því alls óvíst hvort þeir upplifi það á sama hátt 🤔.
🧭 Þarna eru oft múrar á milli sem vaktaðir eru af landamæravörðum innan fyrirtækisins. Það er mikilvægt fyrir þessa verði að þekkja vel bæði ímynd og sjálfsmynd vörumerkisins. Einungis þannig tryggja þeir nægar upplýsingar til að vinna störf sín sem best — með hagsmuni fyrirtækisins að leiðarljósi.
✨ Á fundinn mæta forsvarsmenn Bestu íslensku vörumerkja vinnustaða ársins 2024 — fyrirtæki sem hafa náð árangri í að láta vörumerkið flæða á milli landamæra og tengja þannig jafnt við hug viðskiptavina og starfsfólks.
Takmarkaður sætafjöldi — og fundinum verður ekki streymt.
👉 Skráðu þig hér: https://brandr.is/skraningarsida/
Orkan, Arion banki, Advania, Nova, ELKO, Mannauður, og Brandr