Liljamarteins.

Liljamarteins. Business Growth Consultant. Operational Strategist and Online Business Manager

Það sem þú þarft að gera næst er líklega miklu einfaldara en þú ert að gera það.
02/09/2026

Það sem þú þarft að gera næst er líklega miklu einfaldara en þú ert að gera það.

Ég eyddi þremur dögum með Hugrúnu hér á Spáni í síðustu viku og ég er enn að hugsa um hvað svona dagar gefa mikið.Ég er ...
01/09/2026

Ég eyddi þremur dögum með Hugrúnu hér á Spáni í síðustu viku og ég er enn að hugsa um hvað svona dagar gefa mikið.

Ég er ótrúlega heppin með konurnar sem ég fæ að vinna með. Virkilega. ❤️

Stór hluti vinnunnar minnar fer fram á Zoom og ég elska frelsið sem fylgir því. Ég get unnið héðan, þær geta verið á Íslandi eða annars staðar og þetta bara virkar.

En það er samt eitthvað allt annað að vera saman í persónu af og til.

Setja sig í fallegt umhverfi. Halda áfram að tala yfir mat. Tala um lífið á milli þess sem við tölum um business. Henda einhverju fram þegar manni dettur það í hug og svo tveimur tímum seinna erum við allt í einu komnar með lausn á einhverju sem við vorum ekkert einu sinni að reyna að leysa.
Crazy hugmyndir komnar á blað sem við löbbum spenntar með í maganum áfram.

Og svo bara að njóta. ❤️

Ég held við höfum margar líka vanist því aðeins of mikið að vinna inni í eigin haus.

Hugsa og skrifa í endalausan banka af hálfkláruðum skjölum
Spyrja ChatGPT fram og tilbaka þangað til við föttum að við erum komnar í hringi...
Opna annað Excel skjal.
Færa eitthvað til á drive-inu
Og svo hugsa aðeins meira. Stundum í algjöru tómarúmi...

Ég veit ég er ekki ein 😅

En ég finn alltaf meira og meira hvað umhverfið og fólkið í kringum mig skiptir mig miklu máli.

Og ekki bara fyrir mig.

Þetta er líka eitthvað sem ég og konurnar sem ég vinn mest með erum farnar að tala meira um þegar kemur að okkar eigin viðskiptavinum.

Ég held við séum allar aðeins að færast frá þessu gamla „námskeið + efnisbanki + vikulegur Zoom“ formi sem eina og algilda formið.

Ekki að það sé eitthvað að því. Það á alveg sinn stað og við rekum það successfully.

En ég finn miklu meiri spennu í retreats, minni hópum, meiri nálægð, alvöru samtölum og upplifunum þar sem fólk fær tíma og rými til að fara aðeins dýpra.

Við erum farnar að eiga miklu fleiri svoleiðis samtöl. Og það er ástæða fyrir því. Það er þörf á því.
Við erum að skapa meira af þannig umhverfi fyrir konurnar sem vinna með okkur líka.
Það er svo margt spennandi framundan og nálægð og tengsl eru stór hluti af því.

Draumurinn er alltaf aðeins fallegri í hausnum en í framkvæmd 😅En 30 flipar opnir þýða allavega að eitthvað er í gangi.K...
27/08/2026

Draumurinn er alltaf aðeins fallegri í hausnum en í framkvæmd 😅

En 30 flipar opnir þýða allavega að eitthvað er í gangi.

Kannast þú við þetta?

✨Hvað er Norðurstjarnan✨Þú kemur ekki í Norðurstjörnuna til að fá fleiri hugmyndir eða almenn ráð. Þú kemur með stöðuna ...
20/08/2026

✨Hvað er Norðurstjarnan✨

Þú kemur ekki í Norðurstjörnuna til að fá fleiri hugmyndir eða almenn ráð. Þú kemur með stöðuna eins og hún er: það sem þú ert að byggja, það sem þú hefur prófað og það sem þú nærð ekki að sjá skýrt ein.

Ég kem með utanaðkomandi sýn, þekkingu á íslenska markaðnum og margra ára reynslu af því að sjá muninn á vandamálinu sem birtist og því sem er raunverulega að halda þér á sama stað.

Markmiðið er ekki að laga allt á einum fundi. Það er að komast að skýrri niðurstöðu um hvað skiptir máli núna, hvað má bíða og hvert þú stefnir næstu 90 daga.

Þú ferð ekki út með fleiri hugmyndir. Þú ferð út með ákvörðun, stefnu og Vegvísi sem er byggður á þinni stöðu.

Hlekkur í bio

https://liljamarteins.com

Eftir nokkra daga sit ég hér aftur.Við þessa sömu sundlaug. Næstum í bakgarðinum mínum hér á Spáni.Með einum af mínum la...
19/08/2026

Eftir nokkra daga sit ég hér aftur.

Við þessa sömu sundlaug. Næstum í bakgarðinum mínum hér á Spáni.
Með einum af mínum langtímaviðskiptavinum sem er að fljúga hingað alla leið frá Íslandi til að eiga VIP daga með mér.

Og mér finnst það eiginlega alltaf jafn sérstakt. ✨

Ég hef unnið svona með mínum nánustu viðskiptavinum og samstarfskonum í mörg ár, í alls konar löndum og aðstæðum. Að taka okkur út úr daglega hamstrahjólinu og gefa okkur pláss fyrir stærri hugsun, djúp samtöl og alvöru ákvarðanir.

Þetta er klárlega ein af mínum uppáhalds leiðum til að vinna.✨

Þarna verða draumar aðeins skýrari.
Ákvarðanir verða sterkari.
Og plön fara úr því að vera hugmyndir yfir í eitthvað sem er raunverulega hægt að framkvæma.

Og ég held að það sé ástæða fyrir því að ég laðast að ákveðnum konum í rekstri.

Konum sem þora að taka stökkið.
Konum sem þora að fjárfesta í sjálfum sér og rekstrinum sínum.
Konum sem þora að hugsa stærra en og útfyrir rammann.
Konum sem bíða ekki endalaust eftir “rétta tímanum”.

Ég elska þessar konur og tengi svo við þær.
Þær velja sig aftur og aftur, dreymir stórt og eru tilbúnar að stíga inní óþægindin en á sama tíma njóta ferðalagsins. Af staðfestu.

Ég verð mjög þakklát þegar konur velja mig inn í þann hluta af sínu ferðalagi.

Að fá að sitja við borðið með þeim þegar hugmyndir verða skýrari, þegar sýnin stækkar og þegar næstu skref fara að taka form.

Og eftir nokkra daga gerum við akkúrat það.
Hér.
Við sundlaugina.
Með stóra drauma á borðinu og plan um hvað við ætlum að gera næst. 🔥

Við tölum um skýrleika eins og hann sé eitthvað sem við finnum ef við hugsum aðeins lengur, lærum aðeins meira eða bíðum...
11/08/2026

Við tölum um skýrleika eins og hann sé eitthvað sem við finnum ef við hugsum aðeins lengur, lærum aðeins meira eða bíðum eftir því að rétta tilfinningin mæti.

En eftir að hafa horft inn í tugi rekstra sé ég annað mynstur.

Óvissan eykst oft ekki vegna þess að upplýsingar vanti.

Hún eykst vegna þess þú hefur einfaldlega ekki tekið sterka ákvörðun, sem þú ætlar að standa við.

❖ Á ég að tala við þennan hóp eða hinn?

❖ Á þetta að vera þjónusta eða byggja þetta prógramm eða hitt?

❖ Ætla ég að byggja fyrirtæki eða halda áfram að taka að mér allt sem kemur?

❖ Ætla ég að standa við þetta verð?

❖ Ætla ég að loka þessari leið til að geta byggt hina?

Á meðan ákvörðunin er opin þurfa allar mögulegar útgáfur af rekstrinum að lifa samtímis. Þá margfaldast verkefnin, skilaboðin verða óskýr og þú upplifir að þú sért „út um allt“.

Og það meikar sens.

Þú getur ekki fengið skýra stefnu útfrá ákvörðun sem þú neitar að taka.

Skýrleiki er því ekki alltaf eitthvað sem kemur á undan ákvörðuninni.

Oftast er hann afleiðing hennar.

Svo spurning til þín? ( Ekki hika við að senda mér skilaboð)

Hvaða óvissa í rekstrinum þínum myndi minnka ef þú tækir loksins afstöðu og stæðir með sannfæringunni þinni ?

Betri spurningar gefa betri svör.Þess vegna bjó ég til frían AI promptbanka með 14 greiningartækjum sem hjálpa þér að sj...
10/08/2026

Betri spurningar gefa betri svör.

Þess vegna bjó ég til frían AI promptbanka með 14 greiningartækjum sem hjálpa þér að sjá reksturinn skýrar, finna flöskuhálsana og taka betri ákvarðanir.

Virkar bæði í ChatGPT og Claude.

Sæktu hann ókeypis hér og hlekkur í BIO:
liljamarteins.com/promptbanki

Ætlar þú að koma tilbúin inn í haustið?Ég er sjálf farin að skipuleggja næstu mánuði. Hvað ég ætla að byggja. Hvar ég æt...
07/08/2026

Ætlar þú að koma tilbúin inn í haustið?

Ég er sjálf farin að skipuleggja næstu mánuði. Hvað ég ætla að byggja. Hvar ég ætla að setja orkuna mína. Og ekki síður hvað ég ætla ekki að taka með mér inn í haustið.

September kemur hvort sem við erum tilbúnar eða ekki.

Spurningin er hvort þú ætlir að mæta inn í hann með skýra stefnu eða byrja aftur á því að reyna að finna út úr öllu á meðan þú ert þegar komin á fullt.

Ég á 3 pláss eftir í Norðurstjörnuna fyrir september.

Ef þú þarf skýrari stefnu, rétta forgangsröðun og plan fyrir næstu 90 daga, ekki bíða fram á haust.

Komdu tilbúin inn í það.

Hlekkur í kommenti

Þessi mynd var tekin árið 2010.Við vorum ný fluttar til Suður-Afríku. Ég og elsta dóttir mín að ganga á ströndinni, án þ...
04/08/2026

Þessi mynd var tekin árið 2010.

Við vorum ný fluttar til Suður-Afríku. Ég og elsta dóttir mín að ganga á ströndinni, án þess að hafa hugmynd um hvað biði okkar.

Aldrei komið þangað áður. Algjört "leap of faith".

Síðan þá hefur mikið gerst, og breyst.

Ég hef byggt upp líf og vinnu í fleiri en einu landi. Mörgum industries. Byrjað aftur. Breytt um stefnu. Aðlagað mig að nýjum aðstæðum og tekið ákvarðanir án þess að vita alltaf nákvæmlega hvert þær myndu leiða.

Í gegnum árin hefur það kennt mér að sveigjanleiki og stöðugleiki eru ekki það sama.

Og að frelsi er orð sem þarf alltaf að skýra, og endurskýra.

Frelsi þýðir ekki það sama fyrir okkur allar.

Og það þýðir sannarlega ekki það sama í dag og það gerði fyrir mig 2010.

Fyrir eina manneskju er frelsi að geta unnið hvaðan sem er.

Fyrir aðra er það að vita að tekjurnar eru stöðugar.

Að geta sagt nei.

Að geta tekið frí.

Að vera til staðar fyrir fjölskylduna.

Að geta breytt um stefnu án þess að allt sem hún hefur byggt hrynji.

Fyrir mér er frelsi ekki að vera laus við að vinna, að skapa.

Það er að hafa nægilega sterkan grunn til að geta valið.

Að geta flutt, breytt um takt eða tekið skref til baka án þess að hver breyting verði að neyðarástandi, eða tekin útfrá neyð.

Það sama á við um rekstur.

Það er vissulega sveigjanleiki í því að geta opnað tölvuna hvar sem er.

En það er ekki raunverulegt frelsi ef reksturinn stöðvast um leið og þú lokar henni.

Stöðugleiki þarf ekki að þýða að lífið verði stíft eða fyrirsjáanlegt.

Hann getur þýtt að þú hafir skýr mörk, einföld kerfi, skiljanleg tilboð og tekjur sem byggjast ekki á því að þú haldir öllu saman alla daga.

Ég vil ekki bara geta tekið vinnuna með mér hvert sem ég fer.

Ég vil byggja rekstur sem styður við lífið sem ég vel að lifa.

Address

Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Liljamarteins. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Liljamarteins.:

Shortcuts

Share