03/08/2024
Ég var svo lánsamur að fá að hitta þennan mikla meistara við nokkur tækifæri. Eitt þeirra var þegar ég fékk hann til að heimsækja 8 ára bekk sem var að vinna að kennsluverkefni sem byggðist á Norrænni goðafræði. Nemendurnir skynjuðu greinilega að þau voru í viðurvist goðumlíkrar rokkstjörnu og virðingin var gagnkvæm. Við annað tækifæri gengum við einn eftirmiðdag um ótrúlega fjölbreytta og víðfeðma listaveröld hans að Straumi og það rann upp fyrir mér hvað Haukur Halldórsson var virkilega stórkostlegur og fjölhæfur... og hve djúp, breið og alltumlykjandi hann og listaverk hans voru. Ég tók mikið af myndum.... skoðið og njótið endilega.
Lengi lifi Keisarinn af Atlantis.
Icelandic artist Haukur Halldórsson was preparing to auction off his entire collection of paintings and mixed-media work at his workshop at Straumur, in the outskirts of Reykjavík. After the auction finished, Halldórsson closed down his workshop for good in order to relocate to Berlin, where he p...