13/08/2025
FERÐAMENN Í JÚLI OG Á ÁRINU
Í júlí fóru um 302.000 erlendir ferðamenn um Leifsstöð – sem er aukning um rúm 9% frá sama tíma í fyrra.
🌍 Hvaðan komu gestirnir?
• Bandaríkjamenn – 32% af heildarfjölda langfjölmennastir, Þjóðverjar – 7,2%, Bretar – 5,7%, Kanadamenn – 4,9%, Frakkar – 4,8%, Kínverjar – 4,2%. Næst , Ítalir 3,9%, Belgar 3,2%, Pólverjar 3,2% (mikið vinnuafl) og loks Danir 3,0%.
✈️ Heildarfjöldi á árinu
Tæplega 1,3 milljónir erlendra ferðamanna hafa heimsótt landið það sem af er ári – sem er aukning um 1,4% frá í fyrra. Líklegast er að heildarfjöldi í ár verði ámóta því sem var í fyrra, fækkun áfangastaða hjá Play dregur líklega aðeins úr fjölda m.v. í fyrra.