RR ráðgjöf

RR ráðgjöf Stjórnsýslu og rekstarráðgjöf

RR ráðgjöf hefur sameinast KPMG. Það eru spennandi tímar framundan og mikil tækifæri til að auka þjónustu okkar enn frek...
08/03/2022

RR ráðgjöf hefur sameinast KPMG. Það eru spennandi tímar framundan og mikil tækifæri til að auka þjónustu okkar enn frekar. Við Freyja munum halda áfram að veita sveitarfélögum þjónustu, en nú með breiðari þekkingu og stærra teymi.

KPMG hefur keypt RR ráðgjöf, sem er sérhæft ráðgjafafyrirtæki í þjónustu við sveitarfélög. Við kaupin mun RR ráðgjöf sameinast KPMG og starfsfólk fyrirtækisins mun koma til starfa á ráðgjafarsviði KPMG. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Það er nóg af spennandi verkefnum hjá okkur. Þrennar sameiningarkosningar um helgina, þar sem íbúar í fimm af s*x sveita...
20/02/2022

Það er nóg af spennandi verkefnum hjá okkur. Þrennar sameiningarkosningar um helgina, þar sem íbúar í fimm af s*x sveitarfélögum samþykktu tillögurnar. Næsta stóra verkefni er Barnaþing í Hörpu þar sem við aðstoðum umboðsmann barna við skipulag þingsins og útfærum samráð við börnin.

„Meginmarkmiðið er auðvitað að heyra sjónarmið barnanna og fá niðurstöður sem við getum unnið með,“ segir Salvör Nordal um Barnaþing, sem haldið verður í annað sinn dagana 3.-4. mars.

15/01/2022

Þann 19. febrúar verður kosið um sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar og ná þannig öllum Skagfirðingum saman í eitt sveitarfélag.

Á nýliðnu ári héldum við áfram að vaxa og sinntum fjölbreyttum verkefnum fyrir sístækkandi hóp viðskiptavina. Sunna bæti...
04/01/2022

Á nýliðnu ári héldum við áfram að vaxa og sinntum fjölbreyttum verkefnum fyrir sístækkandi hóp viðskiptavina. Sunna bætist í hópinn í upphafi nýs árs. Velkomin til starfa!

Sunna Rúnarsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá RR ráðgjöf. Þetta kemur fram í tilkynningu. Sunna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og snýr aftur til starfa hjá RR ráðgjöf að loknu M.Sc. námi í Stefnumótun, stjórnun skipulagsheilda og leiðtogafræðum frá H....

19/12/2021

Við viljum fá viðskipta- eða hagfræðing til liðs við okkur á nýju ári. Mörg spennandi verkefni framundan í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi. Helstu verkefni eru greiningar á fjárhagsupplýsingum, framsetning þeirra og ráðgjöf til viðskiptavina. Við leitum að einstaklingi með jákvætt viðhorf, sem er lausnamiðaður í hugsun og með góða færni í Excel.

17/12/2021

Í stað þess að gefa viðskiptavinum jólagjafir hefur RR ráðgjöf veitt félagasamtökum styrki fyrir jólin. Í ár styrkjum við nágranna okkar hér í Skipholtinu. Klúbburinn Geysir starfar eftir hugmyndafræði Fountain House og er tilgangur hans að virkja félaga til þátttöku í samfélaginu. Við þurfum öll á góðum félagsskap og stuðningi að halda í lífinu. Geysir hefur náð frábærum árangri við að auka virkni sinna félagsmanna.

19/11/2021

Félagsmálaráðuneytið boðaði þjónustuveitendur til vinnudags til að undirbúa svokölluð farsældarlög á miðvikudag. Vegna samkomutakmarkana var viðburðurinn færður úr Hörpu á Zoom. Við hjá RR ráðgjöf tókum að okkur verkefnið í góðu samstarfi við starfsfólk ráðuneytisins. Gestir vinnustofunnar voru 440 og tóku um 240 þátt í 29 umræðuhópum á Zoominu. Viðburðurinn tókst mjög vel. Stoltur af mínu samstarfsfólki!

Við hjá RR ráðgjöf erum mjög lánsöm að njóta krafta Guðbjargar í verkefnum okkar sem snúa að fræðslumálum og þjónustu vi...
18/09/2021

Við hjá RR ráðgjöf erum mjög lánsöm að njóta krafta Guðbjargar í verkefnum okkar sem snúa að fræðslumálum og þjónustu við börn.

Guðbjörg M. Sveinsdóttir, formaður Uppbyggingar sjálfsaga, segir félagið kenna nýjar leiðir í samskiptum starfsmanna skóla og nemenda þar sem mið er tekið af uppbyggjandi jákvæðum samskiptum sem efla sjálfsábyrgð einstaklingsins.

Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til málþings um sameiningar sveitarfélaga í fyrramálið. Málþingið er öllum opið. R...
06/05/2021

Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til málþings um sameiningar sveitarfélaga í fyrramálið. Málþingið er öllum opið. RR ráðgjöf er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við sveitarfélög, og sérstaklega við sameiningar.

Málþing um sameiningar sveitarfélaga verður haldið á Teams föstudaginn 7. maí kl. 08:30-10:00. Málþingið er öllum opið. Dagskrá málþingsins Ávarp formanns sambandsins Aldís Hafsteinsdóttir Hvað bera að hafa í huga við sameiningu sveitarfélaga Róbert Ragnarsson, framkvæmdast...

Address

Skipholt 25
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when RR ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share