17/04/2026
Eru ábendingar nýttar til fulls í þínum rekstri? 👀
Gæðastjórnunarskóli CCQ heldur námskeiðið Meðhöndlun ábendinga þann 7. maí. Þar förum við m.a. yfir:
〰️ Hvernig á að taka á móti ábendingum af fagmennsku
〰️ Aðferðir til að greina rót vandans og skilja hvað raunverulega liggur að baki
〰️ Hvernig við byggjum upp menningu þar sem endurgjöf er drifkraftur umbóta
Námskeiðið er stutt og hnitmiðað og hentar öllum þeim sem vinna með ábendingar og frávik, hvort sem er í rekstri, þjónustu, markaðsstarfi, gæðastjórnun eða umbótarstarfi 🚀
Það er mjög mikilvægt fyrir fyrirtæki að kunna að vinna faglega úr ábendingum og frávikum, því slík mál geta haft bein áhrif á gæði, öryggi, ánægju viðskiptavina, orðspor og rekstur fyrirtækis.