ReSource International

Call Directions Website

ReSource International ReSource International ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum á umhverfissviði Við erum umhverfissérfræðingar.

ReSource International ehf. þróar og smíðar verkfræðilausnir fyrir flókin umhverfisvandamál. Við sjáum um rekstur, ráðgjöf, hönnun, vöktun og þróun fjölbreyttra lausna sem tengjast hringrásarhagkerfinu, umsjón úrgangs og vatns, mengun og orkuframleiðslu. Verkefnin okkar spanna Vestur- og Norður Evrópu en við erum með starfsstöðvar á Íslandi, Svíþjóð og Sviss. Markmið ReSource er að hjálpa öðrum að minnka umhverfisáhrifin sín og að verða öflugir þátttakendur í hringrásarhagkerfinu. Við náum þessu með því að vinna með fyrirtækjum og stofnunum á öllum stigum til þess að fylgjast með og minnka mengun, setja upp og reka umhverfiskerfi, minnka úrgang og veita ráðgjöf um stefnumótun í umhverfismálum.

ReSource International vinnur með First Water að spennandi þróunarverkefni sem miðar að því að skapa verðmæti úr lífrænu...
26/08/2026

ReSource International vinnur með First Water að spennandi þróunarverkefni sem miðar að því að skapa verðmæti úr lífrænum aukaafurðum frá fiskeldi og landbúnaði.

Verkefnið er hluti af Terraforming LIFE, sem nýtur styrks frá LIFE-áætlun Evrópusambandsins.

Markmið verkefnisins er meðal annars að þróa sjálfbærar leiðir til að nýta lífrænt efni, svo sem fiskeldismykju, dauðfisk og búfjáráburð, til framleiðslu á lífgasi og lífrænum áburði með loftfirrðu niðurbroti. Þannig er leitast við að breyta efni sem annars getur verið kostnaðarsamt eða erfitt í meðhöndlun í endurnýjanlega orku og verðmæta næringu fyrir landbúnað.

ReSource International vinnur með First Water að spennandi þróunarverkefni sem miðar að því að skapa verðmæti úr lífrænum aukaafurðum frá fiskeldi og landbúnaði. Verkefnið er hluti af Terraforming LIFE, sem nýtur styrks frá LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins...

Ráðstefna um urðun og framtíð úrgangsmála haldin í samstarfi ReSource, Sorpu og FENÚRÞann 20. mars síðastliðinn stóðu Re...
24/03/2026

Ráðstefna um urðun og framtíð úrgangsmála haldin í samstarfi ReSource, Sorpu og FENÚR

Þann 20. mars síðastliðinn stóðu ReSource, Sorpa og Fenúr fyrir vel heppnaðri ráðstefnu um urðun úrgangs þar sem saman komu sérfræðingar úr opinberum stofnunum, ráðgjafarfyrirtækjum og atvinnulífi. Markmið ráðstefnunnar var að varpa ljósi á stöðu urðunar á Íslandi, nýjungar í úrgangsmálum og þær áskoranir og tækifæri sem fram undan eru.

Ráðstefnan var vel sótt og skapaðist lífleg umræða um mikilvægi þess að bæta meðhöndlun úrgangs, draga úr umhverfisáhrifum og efla hringrásarhagkerfið.

Ljóst er að mikill vilji er til staðar til að bæta úrgangsstjórnun á Íslandi og með samstilltu átaki og aukinni þekkingu er hægt að draga úr urðun, minnka umhverfisáhrif og stuðla að sjálfbærari nýtingu auðlinda.

https://resource.is/radstefna-um-urdun-og-framtid-urgangsmala-haldin-i-samstarfi-resource-sorpu-og-fenur/

Address

Árleyni 8
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545715864

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ReSource International posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share