Snjallgögn

Snjallgögn Snjallgögn þróa tímamóta hugbúnað sem auðveldar fyrirtækjum að hagnýta gervigreind og gagnavísindi til að bæta sölu, þjónustu og daglegan rekstur.

Morgunblaðið greinir frá því að dr. Helgi Páll Helgason hefur tekið við sem tæknistjóri Snjallgagna eftir að hafa starfa...
28/05/2026

Morgunblaðið greinir frá því að dr. Helgi Páll Helgason hefur tekið við sem tæknistjóri Snjallgagna eftir að hafa starfað þar sem teymisstjóri gervigreindar í tæplega ár. Hann stígur samhliða þessu inn í eigendahóp Snjallgagna sem meðstofnandi. Helgi Páll hefur áratugareynslu sem stjórnandi og hefur samhliða því smíðað gervigreindarlausnir fyrir ferðaþjónustu, fjármálageirann og menntakerfið.

👇 Sjá hlekk á umfjöllun Morgunblaðsins í fyrstu athugasemd (comment) hér fyrir neðan! 👇

BAKGRUNNUR
Helgi Páll lauk fyrstur Íslendinga doktorsprófi í almennri gervigreind frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013 og þar áður BSc- og MSc-gráðum í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Hann kom til Snjallgagna frá APRÓ, þar sem hann var deildarstjóri gervigreindar, en var þar áður hjá Travelshift, Activity Stream, Verifone og Kaupþingi. Reynsla Helga Páls spannar því hugbúnaðarþróun, gervigreind, greiðslulausnir, rekstrargreind og uppbyggingu tækniteyma.

DJÚP TÆKNIÞEKKING
,,Helgi Páll smellpassar inn í teymið okkar, enda með djúpa þekkingu á viðfangsefninu. Við erum að setja FraiOS í loftið, sem er næsta kynslóð hagnýtra gervigreindarlausna. Hann mun leiða þá vöru- og tækniþróun, ásamt því að sinna innviðum okkar. Við fullyrðum að FraiOS sé tímamótahugbúnaður, enda er hann algjörlega sjálfkeyrandi, lagar sig að þörfum notenda og skrifar sig sjálfur að hluta," segir Stefán Baxter, forstjóri Snjallgagna.

UM SNJALLGÖGN
Sprotafyrirtækið Snjallgögn er tíu manna hugbúnaðarhús í Reykjavík, sem þróar fjölbreyttar gervigreindarlausnir fyrir atvinnulífið; lausnir sem er ætlað að bæta sölu, þjónustu og daglegan rekstur. Meðal viðskiptavina Snjallgagna eru Arctic Adventures, Blue, Bónus, Brimborg, Elkó, Kosmos, Mirka, Rarik og Skatturinn.

Snjallgögn hafa á síðustu misserum þróað þrjú snjallmenni sem marka tímamót í hagnýtingu gervigreindar í íslensku atvinn...
19/05/2026

Snjallgögn hafa á síðustu misserum þróað þrjú snjallmenni sem marka tímamót í hagnýtingu gervigreindar í íslensku atvinnulífi: Góa hjá Brimborg, Stafræna ráðgjafann hjá ELKO og Kosmos hjá Kosmos.

Þessi þrjú snjallmenni eiga það sameiginlegt að einfalda þjónustu, stytta leið viðskiptavina að svörum og gera vinnustöðum kleift að nýta gögn, kerfi og þekkingu með markvissum hætti.

Stafræni ráðgjafinn hjá ELKO hefur þegar vakið mikla athygli og hlaut nýverið viðurkenningu sem Gervigreind ársins á Íslensku vefverðlaununum 2026. Gói styður við stafræna þjónustu Brimborgar og hjálpar viðskiptavinum að rata hraðar að réttum upplýsingum. Kosmos er svo nýjasta og sennilega sjálfstæðasta snjallmennið í hópnum: gervigreindur framlínustarfsmaður nýja farsímafélagsins Kosmos.

👇 Hlekkur á nánari umfjöllun er í fyrstu athugasemd (comment) hérna fyrir neðan!

🔥 Morgunblaðið greinir frá því að Snjallgögn leggja nýstofnaða farsímafélaginu Kosmos til gervigreindarlausnir sem styðj...
14/05/2026

🔥 Morgunblaðið greinir frá því að Snjallgögn leggja nýstofnaða farsímafélaginu Kosmos til gervigreindarlausnir sem styðja við stafrænt þjónustulíkan félagsins. Lausnir Snjallgagna gera Kosmos kleift að byggja starfsemi sína á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi. Snjallmenni Kosmos er þannig í rauninni eini framlínustarfsmaður fyrirtækisins og hefur mikla sjálfstæða virkni.

👇 Hlekk á frétt Morgunblaðsins er að finna í fyrstu athugasemd hér fyrir neðan, en þar segir meðal annars:

🏆 Að sögn Stefáns Baxter, forstjóra Snjallgagna, er snjallmennið í þjónustu Kosmos samnefndur fyrirtækinu, Kosmos, og í rauninni stóri bróðir þeirra snjallmenna sem Snjallgögn hafa áður þróað fyrir aðila á borð við Brimborg og ELKO, en þeir nefnast Gói og Stafræni ráðgjafinn. Stafræni ráðgjafinn sem Snjallgögn þróuðu í samstarfi við ELKO hlaut viðurkenningu fyrir skemmstu sem ,,Gervigreind ársins” á Íslensku vefverðlaununum 2026.

🎯 Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, útskýrir málið nánar: ,,Hefðbundin snjallmenni læra að starfa fyrir vinnustaði sína, en Kosmos hefur frá upphafi verið eini framlínustarfsmaður fyrirtækisins. Hann hefur miklu meiri völd en hefðbundin snjallmenni. Í stað þess að leggja Kosmos ofan á veflausnirnar okkar, þá er hann sérstakur og sjálfstæður framendi rétt eins og vefurinn og appið. Kosmos getur með öðrum orðum framkvæmt allt sem kerfin okkar ráða við.”

FULLT HÚS Á FRUMSÝNINGU FRAIOSSnjallgögn kynntu FraiOS fyrir húsfylli í Gamla Austurbæ á lokadegi Iceland Innovation Wee...
08/05/2026

FULLT HÚS Á FRUMSÝNINGU FRAIOS
Snjallgögn kynntu FraiOS fyrir húsfylli í Gamla Austurbæ á lokadegi Iceland Innovation Week, hinn 30. apríl. Viðburðinum var gríðarlega vel tekið, en um 130 manns mættu á staðinn og fylgdust með kynningunni, auk þess sem um annað eins fylgdist með í beinni útsendingu.

FRONTER AI OPERATING SYSTEM
FraiOS stendur nánar tiltekið fyrir Frontier AI Operating System og er nýr íslenskur hugbúnaður fyrir fyrirtæki sem vilja nýta gervigreind í daglegum rekstri með skýrari stýringu, betra samhengi og meiri rekjanleika.

Lausnin er hönnuð til að bregðast við þeim áskorunum sem mörg fyrirtæki hafa rekist á við innleiðingu gervigreindar. Þar ber helst að nefna skort á trausti, óljósar ákvarðanir gervigreindarkerfa og takmarkaðan skilning þeirra á rekstrarsamhengi fyrirtækja.

NÝ KYNSLÓÐ
FraiOS er að mörgu leyti ný kynslóð hugbúnaðar. Kerfið getur aðlagað sig þörfum notenda og skrifað sig sjálft að hluta. Markmiðið er að notendur geti stýrt flóknum hugbúnaði með samtali, án þess að þurfa sjálfir að skilgreina öll tæknileg smáatriði.

GERVIGREIND SETT Á TEINA
Við lýsum FraiOS sem „gervigreind á teinum“. Með því er átt við að gervigreindin fái skýrt afmarkað starfsumhverfi, reglur og samhengi sem hún vinnur innan. Þannig er hægt að nýta hraða og sveigjanleika gervigreindarinnar án þess að hún fari út fyrir þau mörk sem fyrirtækið hefur skilgreint.

FraiOS er hannað til að vinna með rekstrargögn, skjöl, viðskiptareglur og spálíkön. Notendur geta meðal annars notað samtal við kerfið til að búa til mælaborð, greina gögn, byggja spálíkön og setja upp reglubók fyrir viðskiptareglur sem nýtist þvert á kerfið.

TRAUST, SAMHENGI, REKJANLEIKI
Eitt helsta vandamálið við notkun gervigreindar í fyrirtækjum hefur verið að erfitt er að vita hversu öruggt er að treysta niðurstöðunum. FraiOS er byggt til að gera vinnu gervigreindarinnar sýnilegri, þannig að hægt sé að skoða hvaða gögnum, reglum og samhengi hún byggir á.

Það skiptir sérstaklega miklu máli þegar gervigreind er notuð til að vinna verkefni sem fagfólk þarf að geta rýnt, sannreynt og borið ábyrgð á. Með FraiOS viljum við gera fyrirtækjum kleift að nýta gervigreind á faglegri, rekjanlegri og öruggari hátt.

FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR
Það var Stefán Baxter, stofnandi og forstjóri Snjallgagna, sem kynnti FraiOS á sviðinu og fór yfir hvernig lausnin setur gervigreind í skýrt rekstrarsamhengi fyrirtækja. Viðtökurnar voru frábærar og Stefán lauk máli sínu við dynjandi lófatak.

Fyrir Snjallgögn var viðburðurinn mikilvægur áfangi. Hann markaði formlega kynningu á FraiOS og gaf gestum innsýn í þá vegferð sem fyrirtækið telur að muni móta næstu kynslóð hugbúnaðar fyrir fyrirtæki.

NÆSTU SKREF
Snjallgögn vinna nú að því að færa núverandi viðskiptavini inn í FraiOS. Framundan er einnig sókn á erlenda markaði á þriðja ársfjórðungi 2026 og fyrsti erlendi viðskiptavinurinn byrjar að nota hugbúnaðinn í maí 2026.

FraiOS getur orðið lykilkerfi fyrir fyrirtæki sem vilja hagnýta gervigreind rétt – með skýrum reglum, samhengi og rekjanleika frá fyrsta degi.

UPPTAKA, SKRÁNING
Þau sem misstu af kynningunni geta horft á upptökuna úr beinu útsendingunni í tengli hérna í fyrstu athugasemd, og við hvetjum áhugasöm til að heimsækja nýja vefinn okkar, www.FraiOS.com og skrá sig á póstlistann til að fylgjast með næstu skrefum FraiOS.

💙 Morgunblaðið birti á dögunum viðtal við Stefán Baxter, stofnanda og framkvæmdastjóra Snjallgagna, sem hefst svona: ,,Í...
06/05/2026

💙 Morgunblaðið birti á dögunum viðtal við Stefán Baxter, stofnanda og framkvæmdastjóra Snjallgagna, sem hefst svona: ,,Í gær, á lokadegi Iceland Innovation Week, svipti hann hulunni af vöru sem hann vonast til að gjörbreyti því hvernig vinnustaðir nýta gervigreind. Varan hefur fengið nafnið FraiOS sem stendur fyrir Frontier AI Operating System.“

🎯 „Við teljum að þetta sé tímamótahugbúnaður og í fyrsta skipti sem íslenskt fyrirtæki býr til hugbúnað sem er algjörlega sjálfkeyrandi. Í dag getur FraiOS aðlagað sig þörfum notenda og skrifað sig sjálft að hluta, en með því hefst vegferð sem mun enda í 100% sjálfbætandi hugbúnaði og notandinn þarf þó ekki að gera annað en að tala við hugbúnaðinn,“ útskýrir Stefán og bætir við að um sé að ræða nýja kynslóð hugbúnaðar sem sé rétt að byrja að ryðja sér til rúms.

👇 Hlekkur á viðtalið er í fyrstu athugasemd.

Á dögunum heimsóttu okkur nemendur úr Stigli, nemendafélagi eðlis- og stærðfræðinema við Háskóla Íslands, í vísindaferð....
28/11/2025

Á dögunum heimsóttu okkur nemendur úr Stigli, nemendafélagi eðlis- og stærðfræðinema við Háskóla Íslands, í vísindaferð.

Stefán Baxter framkvæmdastjóri tók á móti hópnum og ræddi stöðuna í gervigreind, framtíðarhorfur og hvernig við hjá Snjallgögnum sjáum næstu skref í notkun gervigreindar.

Eftir fyrirlesturinn buðum við upp á pítsur og spjall. Frábært að hitta þennan áhugasama hóp af vísindafólki í mótun. Framtíðin er í góðum málum!

💙 Við héldum þriðju Snjallvöku okkar í Húsi máls og menningar fimmtudaginn 6. nóvember 2025. Húsfyllir hlustaði á okkur ...
10/11/2025

💙 Við héldum þriðju Snjallvöku okkar í Húsi máls og menningar fimmtudaginn 6. nóvember 2025. Húsfyllir hlustaði á okkur fara yfir sviðið í gervigreind, greina stöðuna og spá í nánustu framtíð. Við notuðum líka tækifærið og sýndum aðeins undir húddið á nýrri vöru, sem við ætlum með á markað snemma næsta vor.

💥 Þegar formleg dagskrá Snjallvöku kláraðist buðum við gestum yfir götuna til okkar í heimsókn og héldum þar áfram að velta vöngum yfir aflæsingu, forgangsröðun gervigreindar með AI First og hvernig staðan núna líkist mjög seinni bylgjunni í rafvæðingu framleiðslufyrirtækja, sem gjörsamlega umturnaði heimsbyggðinni um alla framtíð.

🦄 Við vonum að gestir okkar hafi upplifað Snjallvöku meira sem hugvekju en vörukynningu og að öll hafi fengið nóg að hugsa um fyrir sína vinnustaði. Snjallvaka hefur orðið sífellt fjölsóttari viðburður með árunum, sem segir okkur annars vegar að við erum rík af vinum og hins vegar að gervigreindin á brýnt erindi við samtímann.

👇 Tengill á upptöku frá Snjallvöku 2025 er í fyrstu athugasemd (comment).

Vertu með okkur kl. 15:00 þegar við förum yfir ferðalagið hingað til, stöðu gervigreindar í dag og kynnum næstu kynslóð ...
06/11/2025

Vertu með okkur kl. 15:00 þegar við förum yfir ferðalagið hingað til, stöðu gervigreindar í dag og kynnum næstu kynslóð Context Suite, stórt skref fram á við í því hvernig fyrirtæki og stofnanir nýta gervigreind til raunverulegs ávinnings.

Ekki missa af þessu, hlekkur á streymi í fyrstu athugasemd

Address

Laugavegur 11
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Snjallgögn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Snjallgögn:

Share