20/10/2023
Austurbrú minnir okkur á að fyrir svo til sléttu ári hafi vinnu lokið við Svæðisskipulag Austurlands, sem við hjá Alta aðstoðuðum við. Þar sameinuðust sveitarfélögin fjögur á Austurlandi um sameiginlega framtíðarsýn á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menningar. Við tökum undir með Austurbrú um að þetta hafi verið merkileg vinna þar sem heill landsfjórðungur stillti saman strengi - alla leið til ársins 2044 - um atvinnulífið, umhverfi, samvinnu, listir, menningu, íþróttastarf og margt fleira. Svæðisskipulagið má sjá hér: https://skipulag.austurland.is
Fyrir svo til sléttu ári lauk vinnu við Svæðisskipulag Austurlands. Þar sameinuðust sveitarfélögin fjögur á Austurlandi um sameiginlega framtíðarsýn á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menningar. Þetta var merkileg vinna þar sem heill landsfjórðungur stillti saman strengi - alla leið til ársins 2044.
Hefurðu kynnt þér Svæðisskipulagið; hvernig við Austfirðingar sjáum fyrir okkur atvinnulífið, umhverfi, samvinnu, listir, menningu, íþróttastarf og margt fleira?
Starfsköttur Austurbrúar á Borgarfirði eystri, Gríma, les hér umhverfismatsskýrslu sem fylgdi skipulaginu.
Skoðaðu Svæðisskipulagið hér: https://skipulag.austurland.is