Intellecon

Intellecon Economic and data science consultancy.

Skýrsla Intellecon var áberandi í Markaðnum í gær:https://www.frettabladid.is/markadurinn/launatengd-gjold-haekkad-um-se...
06/06/2019

Skýrsla Intellecon var áberandi í Markaðnum í gær:

https://www.frettabladid.is/markadurinn/launatengd-gjold-haekkad-um-sextiu-prosent/

Við lögðum áherslu á að skýrslan yrði aðgengileg og læsileg. Hana má finna í heild sinni hér:

http://www.atvinnurekendur.is/media/Kostna%C3%B0ur-launagrei%C3%B0enda-endanlegt.pdf

Frá aldamótum hafa launatengd gjöld farið úr því að vera 13,5 prósent af launum í 21,8 prósent samkvæmt nýrri skýrslu Intellecon. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir varasamt að ganga lengra í því að leggja byrðar á fyrirtæki.

Skýrsla Reykjavík Economics um möguleg áhrif á fall WOWair hefur loks verið gerð opinber. Hana unnu Magnús Árni Skúlason...
24/05/2019

Skýrsla Reykjavík Economics um möguleg áhrif á fall WOWair hefur loks verið gerð opinber. Hana unnu Magnús Árni Skúlason ásamt Kára Friðriksyni fyrir hönd WOWair á síðustu dögum flufélagsins.

In March we did a research for WOW air on the economic impact of the company and the consequences of its fall. Here is the report in Icelandic, but it was widel

08/05/2019

Er Íslendingum að fækka?

(Sjá myndir í komenntum!)

Það virðist algengt að fólk haldi að frjósemi Íslendinga sé enn næg til þess að viðhalda fólksfjödanum. Til þess að svo sé þarf hver kona að eignast rétt rúmlega tvö börn að meðaltali (það fæðast aðeins fleiri strákar en stúlkur, og ekki ná allir frjósemisaldri).

Þetta hefur þó ekki verið tilfellið undanfarin ár. Myndin hér að neðan sýnir meðalfjölda lifandi fæddra barna fyrir hverja konu á Íslandi. Fólksfjölgunarhlutfallið sýnir hvaða afleiðingar það hefur í för með sér varðandi fólksfjölgun. Til dæmis þýðir 1.1 að fólk muni fjölga um 10% í hverri kynslóð. 2018 var það 0.796, sem þýðir að okkur mun fækka um 20% í hverri kynslóð.

Hér er þó þrennt sem þarf að hafa í huga.

1) Ekki er tekið tillit til fólksflutninga á milli landa. Okkur gæti fjölgað einfaldlega vegna þess að fleiri flytja til landsins en frá því.

2) Tölurnar byggja á ákveðnum forsendum. Ekki er í raun hægt að mæla frjósemi kvenna fyrr en þær eru komnar af barneignaaldri. Því þarf hagstofan að gefa sér ákveðnar forsendur til þess að meta frjósemina. Hér eru forsendurnar þær að fæðingartíðni hvers árgangs haldist óbreytt, og einnig dánartíðni.

Ef að konur (yngri kynslóðin) eru byrjaðar að fresta barneignum, án þess þó að fækka þeim, getur verið að frjósemin sé vanmetin.

3) Jafnvel ef að frjósemin er að minnka þá hefur barneignum ekki fækkað svo mikið undanfarna áratugi. 1971 voru til að mynda svipað margar fæðingar og 2018. Það er vegna þess að þrátt fyrir að frjósemi var mikið meiri þá voru íbúar á Íslandi einfaldlega mikið færri. Með tímanum þá fjara þessi áhrif út og okkur gæti raunverulega farið að fækka ef að innflytjendum heldur ekki áfram að fjölga.

Address

Tryggvagata 11
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Intellecon posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Intellecon:

Share