25/03/2020
Covid-19 - fræðsla fyrir börn - ókeypis prentað eintak – heim að dyrum eða sótt í verslun
Halló ég heiti Kóróna er skemtilegur fræðslubæklingur fyrir börn sem hjálpar þeim að skilja og auðveldar foreldrum að útskýra sjúkdóminn sem nú er í heimsókn hjá okkur. Stundum erum við fullorðna fólkið ekki alltaf með svör við öllum spurningum og þá er gott að geta útskýrt fyrir börnunum okkar hver Kóróna er á skemtilegan og auðveldan hátt eins og gert er í þessum bæklingi.
Háskólaprent vill leggja sitt af mörkum í þessari vegferð sem nú er í gangi og býður öllum þeim sem vilja upp á ókeypis prentað eintak af Halló ég heiti Kóróna bæklingnum.
Hægt er að panta eintak hjá okkur á haskolaprent.is og sækja það til okkar í verslunina eða fá bæklinginn sendan heim í pósti gegn póstburðargjaldi sem er 250.kr.
Gangi ykkur vel
Þetta reddast