Texti og þjónusta

Texti og þjónusta Tek að mér alls konar verkefni tengd útgáfu, svo sem samningu texta, þýðingar, prófarkalestu

Þessa bók þýddi ég á árinu 2019. Hún er væntanleg í bókabúðir innan skamms.
08/10/2019

Þessa bók þýddi ég á árinu 2019. Hún er væntanleg í bókabúðir innan skamms.

20/07/2019

Nú er ég (Guðmundur Kristinn Sæmundsson) að leita mér að stóru verkefni til hliðar við þau litlu. Þýða bók/bækur, prófarkalestur á stóru verki, viðtalsbók eða eitthvað annað spennandi til að fàst við næsta vetur.

Ný ljóðabók: Ekki er sú rósin best Heimsósómar og ádeiluljóðÚtgáfuteiti í verslun Pennans í Borgarkringlunni föstudaginn...
06/06/2017

Ný ljóðabók: Ekki er sú rósin best
Heimsósómar og ádeiluljóð

Útgáfuteiti í verslun Pennans í Borgarkringlunni föstudaginn 16. júní kl. 17-18:30.

Hægt að panta í [email protected] á heildsöluverði, kr. 3.000.

Ný bók komin út:
Ekki er sú rósin best
Heimsósómar og ádeiluljóð

Útgáfuteiti í verslun Pennans í Borgarkringlunni föstudaginn 16. júní kl. 17-18:30.

Hinn 1. júní 2017 kom út ljóðabókin Ekki er sú rósin best – Heimsósómar og ádeiluljóð eftir Guðmund Sæmundsson doktor og fv. aðjunkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þetta er önnur ljóðabók höfundar. Í fyrra gaf hann út bókina Í sjöunda himni býr sólin en hann hefur áður gefið út þýðingar sínar á ljóðum Hó Chí-Mínhs, Maós Tse-túngs og Leonard Cohens, auk ýmissa bóka um aðskiljanlegustu efni. Bókin hefur að geyma 36 ljóð. Þau eiga það öll sammerkt að fjalla á einhvern hátt um stjórnmál og baráttu fyrir réttlátara samfélagi.

Þetta er önnur bókin í flokki ljóðabóka sem hver fyrir sig fjallar um eitt efni. Bókinni fylgir hljómdiskur með upplestri höfundar á öllum ljóðunum. Frumsömdu ljóðin eru 15, ort á ýmsum tímum. Þýddu ljóðin eru 21 og eftir ýmsa höfunda, m.a. Maó Tse-túng, Bob Dylan, Leonard Cohen, Inúítann Aqqaluk Lynge og norsku skáldin Frederik Fasting Torgersen, Sigbjörn Obstfelder, Rolf Jacobsen, Gunnar Lunde, Ingebjörg Kasin Sandsdalen, Tarjei Vesaas, Jens Björneboe og Kjersti Ericson.

Bókin er 64 bls. auk kápu. Útgefandi er Bláskógar. Prentun annaðist prentsmiðjan Samskipti hf. Hljómdiskur fylgir bókinni með upplestri höfundar á öllum ljóðunum. Hann er fjölfaldaður og áprentaður af Samskiptum hf. Bókin verður til sölu í öllum helstu bókaverslunum.

Guðmundur hefur stundað ýmis önnur störf en kennslu við Háskóla Íslands, meðal annars verið grunnskóla- og framhaldsskólakennari, bóka- og blaðaútgefandi, ritstjóri, blaðamaður, starfsmaður á Kleppi og Sólborg, sjóari, byggingaverkamaður og öskukarl. Fyrr á árum var hann áberandi fyrir gagnrýni sína á forystu verkalýðshreyfingarinnar.

(Fréttatilkynning)

Nánari upplýsingar gefur:
Guðmundur Sæmundsson
[email protected] – sími 861-6017

ISBN 978-9935-24-171-9

14/03/2017

Ljóðabókin Í SJÖUNDA HIMNI BÝR SÓLIN. LJÓÐ UM ÁSTINA (2016).
Bók og hljómdiskur. Til sölu meðan upplag endist á 500 kr. + sendingarkostnað.

14/03/2017

Prófarkalestur - bakkalárritgerðir
Kr. 2,00 á orð - Tímavinna kr. 3.500. Lægri útkoman gildir.

Prófarkalestur - meistararitgerðir
Kr. 3,00 á orð - Tímavinna kr. 3.500. Lægri útkoman gildir.

Prófarkalestur - stafavillur
Kr. 4,00 á orð - Tímavinna kr. 5.000. Lægri útkoman gildir.

Ýtarlegri yfirlestur - stafavillur og málfar
Kr. 4,50 á orð - Tímavinna kr. 5.000. Lægri útkoman gildir.

Flókinn yfirlestur - skáldskapur og fræðilegur texti
Kr. 5,00 á orð - Tímavinna kr. 5.000. Lægri útkoman gildir.

Þýðing almenns texta (úr ensku eða Norðurlandamáli)
Kr. 1,80 á stafabil (ca 3.900 á síðu) - Tímavinna kr. 4.000-5.000. Lægri útkoman gildir.

Þýðing fræðilegs texta
Kr. 2,20 á stafabil (ca 4.600 á síðu) - Tímavinna kr. 4.000-5.000. Lægri útkoman gildir.

Svo má alltaf ræða málin og fá tilboð.

Önnur vinna (umbrot, ráðgjöf, útgáfuþjónusta, umsjón með prentun o.fl. tilfallandi) - Tímavinna kr. 4.000-5.000 eða tilboð.

14/03/2017

Eftir langa þjónustu á vinnumarkaðnum er ég nú útskrifaður þaðan og tek að mér ýmis launuð verkefni fyrir aðra í því sem ég er skástur, svo sem textasamningu, þýðingum, prófarka- og handritalestri, umbroti og hvers kyns útgáfuþjónustu. Viðmiðunarverkskrá er hér fyrir neðan. Sendið mér skilaboð og ég mun hafa samband. - Dr. Guðmundur Sæmundsson, fv. aðunkt HÍ, fv.framhaldsskólakennari, rithöfundur, ritstjóri o.m.fl.

Address

Maríubaugi 119, 1. Hæð
Reykjavík
113

Telephone

354-861-6017

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Texti og þjónusta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Texti og þjónusta:

Share