Fasteignatækni

Fasteignatækni Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Fasteignatækni, Consulting Agency, Reykjavík.

Fasteignatækni ehf býður upp á þjónustu við eigendur fasteigna á víðum grunni. - Fasteignatækni ehf is a Real Estate owners service provider.

Við hjá Fasteignatækni óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem senn er á e...
24/12/2025

Við hjá Fasteignatækni óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem senn er á enda.

Við horfum björtum augum til framtíðar og vinnum verkin víða um land. Hér hefur eignaskiptayfirlýsing verið unnin fyrir ...
18/10/2024

Við horfum björtum augum til framtíðar og vinnum verkin víða um land. Hér hefur eignaskiptayfirlýsing verið unnin fyrir fyrirtæki í Grindavík og tók Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur á skipulags- og umhverfissviði Grindavíkurbæjar, við fullunnum gögnum því tengdu. Þakka fyrir faglega og frábæra samvinnu með starfsfólki Grindavíkurbæjar hvað þetta verkefni varðar.

EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGVið höfum tekið að okkur gerð eignaskiptayfirlýsingar á föleignarhúsi úti á landi þar sem fer fram ...
12/09/2024

EIGNASKIPTAYFIRLÝSING

Við höfum tekið að okkur gerð eignaskiptayfirlýsingar á föleignarhúsi úti á landi þar sem fer fram blandaður rekstur. Alltaf fjölbreytt verkefni og áhugaverð.

24/05/2023

Þarftu á eignaskiptayfirlýsingu að halda? Ef svo er hafðu samband. Mikilvægt er að í tvíbýlum, þríbýlum, fjórbýlum, raðhúsum, parhúsum og fjölbýlishúsum séu í gildi eignaskiptayfirlýsingar sem varða skiptingu kostnaðar milli eigenda, réttindi og skyldur. Við klárum málið fyrir þig.

Fasteignatækni ehf býður upp á þjónustu við eigendur fasteigna á víðum grunni. - Fasteignatækni ehf is a Real Estate owners service provider.

Stutt færsla um ráðstefnu um byggingagalla á vefsíðu okkar:
23/01/2023

Stutt færsla um ráðstefnu um byggingagalla á vefsíðu okkar:

Posted on 01/23/202301/23/2023 by Sveinn Óskar SigurðssonRáðstefna um fúsk og óvönduð vinnubrögð í íslenskum byggingariðnaði Fúsk í byggingariðnaði á Íslandi er víða. Hér fjalla fagmenn um það hvernig má gæta sín og kaupa ekki köttinn í sekknum. Þegar fólk fjárfestir...

Ráðstefna Háskólans í Reykjavík til heiðurs dr. Ríkharðs Kristjánssyni um rakaskemmdir og örveruvöxt, þ.e. myglu.
23/01/2023

Ráðstefna Háskólans í Reykjavík til heiðurs dr. Ríkharðs Kristjánssyni um rakaskemmdir og örveruvöxt, þ.e. myglu.

Bein útsending frá ráðstefnu um rakaskemmdir og myglu eð áherslu byggingagalla og „fúsk“ í nýlegum…

Frágangur flatra þaka er vandasamur.
20/01/2023

Frágangur flatra þaka er vandasamur.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu bregst nú við leka í Fossvogsskóla.

Rúmfræði Forngrikkja kemur að góðum notum við útreikninga og gerð eignaskiptayfirlýsinga. Grunnurinn liggur m.a. hjá Pýþ...
11/04/2020

Rúmfræði Forngrikkja kemur að góðum notum við útreikninga og gerð eignaskiptayfirlýsinga. Grunnurinn liggur m.a. hjá Pýþagóras frá Samos (talinn hafa látist um 500 f.Kr.) og hver þekkir ekki regluna um hliðar þríhyrnings sem kennd er við hann.

Rúmfræði Evklíðs, en hann var uppi um 300 f.Kr. og bjó í Alexandríu í Egyptalandi sem þá var háborg vísinda og lista, er mikilvæg fyrir margra hluta sakir. Lagði Evklíð m.a. grunninn að því vinnulagi sem ætti að stunda þegar um stærðfræði var að ræða. Á þeim grunnu byggðu stærðfræðingar er stunduðu hreina stærðfræði allt fram á 19. öld. Þar má m.a. nefna Ungverjann Janos Bolyai (1802-1860) og Rússann Nikolai Lobachevsky (1793-1856).

Hér má sjá útreikninga á snúnu valmaþaki sem finna má á húsi í Vesturbænum í Reykjavík. Þessi göfuga og nytsama fræðigrein er kennd í grunn- og menntaskólum landsins og nýtist alla ævina, er alþjóðleg og virkar alltaf, hvar sem er, hvernær sem er. Gleðilega páska.

Þegar fjárfest er í landi eða öðrum fasteignum almennt skiptir afar miklu máli að stýra áhættu með því að rekja afsalsrö...
25/06/2019

Þegar fjárfest er í landi eða öðrum fasteignum almennt skiptir afar miklu máli að stýra áhættu með því að rekja afsalsröð og eignarétt langt aftur.

Talsverð vinna felst oft í því að gæta að þessum málum og þarf oftar en ekki sérfræðiþekkingu til. Fasteignatækni býður upp á þessa þjónustu en víða erlendis hefur þurft að rekja afsalsröð og landamerki allt að 3 styrjaldir aftur. Kemur þar til margvíslegir gjörningar og jafnvel hafa upplýsingar og skjöl glatast, verið brennd eða tapast með öðrum hætti.

Það að vanda til verka er áhættustýring og getur að öðrum kosti skapað mikinn ágreining og tafið verkefni eða valdið því að bein eða óbein réttindi geta hreinlega gert góð verkefni að engu.

Hér er ekki tekin afstaða til þessa verkefnis eða hvernig því muni vegna en bent aðeins á áhættu þá sem þessu fylgir.

„Það sætir furðu að í undirbúnings- og skipulagsferli vegna Hvalárvirkjunar, sem spannar á annan áratug, skuli landeigendur ekki hafa vakið fyrr máls á meintu misræmi í landamerkjaskráningu,“ segir í yfirlýsingu frá VesturVerki sem hyggst reisa Hvalárvirkjun.

Já, farið varðlega í fjárfestingum erlendis. Þar eru ekki sömu reglur og oft ekki sömu réttindi og þau sem eru á Íslandi...
19/06/2019

Já, farið varðlega í fjárfestingum erlendis. Þar eru ekki sömu reglur og oft ekki sömu réttindi og þau sem eru á Íslandi í fasteignakaupum.

Mikilvægt er, hafandi veitt ráðgjöf víða um heim, að kanna vel lóðarréttindi og skipulagsmál auk afsala sem liggja til grundvallar eignarrétti þeim sem fjárfest er í.
Leitið ráðgjafar hjá okkur ef einhver vafi leikur á. Við veitum persónulega og örugga þjónustu enda áratuga löng reynsla til staðar og öll sú menntun sem til þarf þegar miklir fjármunir eru í húfi.



Ómar Sigurðsson, skipstjóri, ráðleggur Íslendingum að fara varlega ætli fólk að kaupa sér fasteign á Spáni. Að ýmsu sé að hyggja og helst þurfi maður að eiga að lágmarki 60 prósent af eigin fé ætli maður sér að kaupa húsnæði á Spáni.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fasteignatækni posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fasteignatækni:

Share