Halló

Halló Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Halló, Business service, Noatun 17, Reykjavík.

❗️NÝTT hjá Halló! ❗️Tökum nú að okkur fjölbreytt samtöl fyrir einstaklinga.-Tæmir maki þinn aldrei uppþvottavélina?😩-eru...
01/04/2025

❗️NÝTT hjá Halló! ❗️
Tökum nú að okkur fjölbreytt samtöl fyrir einstaklinga.

-Tæmir maki þinn aldrei uppþvottavélina?😩
-eru börnin treg að lesa heima?🥶
-vantar skilning á þriðju vaktina?🫡

VIÐ tökum samtalið fyrir ÞIG🤠

Að sjálfsögðu þurfum við að rukka svolítið hátt verð fyrir þessa þjónustu, þessi samtöl taka gjarnan langan tíma og geta verið strembin😇 En við höfum æft okkur mikið og sjáum fram á að vera uppbókuð innan skamms🤗

Veldu þjónustupakka🤖
-símtal (Brons)
-mætum á staðinn (Silfur)
-mætum í skólann og/eða á vinnustaðinn (Gull)
-bíðum fyrir utan bílinn (Gull Plús)

Hvað sem þarf til, við komum skilaboðunum þínum áleiðis strax í dag.

*við áberumst ekki ágreining né tökum samtöl við sama aðila oftar en einu sinni.

Vissir þú að í dag er NATIONAL EMPLOYEE APPRECIATION DAY?🥳Það er tilvalið að muna eftir hrósinu og minna starfsfólkið ok...
07/03/2025

Vissir þú að í dag er NATIONAL EMPLOYEE APPRECIATION DAY?🥳
Það er tilvalið að muna eftir hrósinu og minna starfsfólkið okkar á að við kunnum að meta þau🥰

Halló býr til ánægða viðskiptavini alla daga, allt árið um kring. Það er þökk sé starfsfólksins, sem býr yfir framúrskarandi samvinnu og þjónustulund. Það er alls ekki sjálfgefið🫶

Til hamingju með daginn, allir starfsmenn!😍

https://www.nationaldaycalendar.com/national-day/national-employee-appreciation-day-first-friday-in-march?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR3PcW_amp_o1XmITIBvsyMq77y60Dx9YtdSf3cfmMJBLSsNOa9RVKl5m-Q_aem_FYkogYlV_fuupwbDM1KKQw

NATIONAL EMPLOYEE APPRECIATION DAY National Employee Appreciation Day on the first Friday in March each year focuses attention on employees in all industries.

Misst símtöl og lengri svartími á netspjalli og tölvupósti geta verið  misst tækifæri. Samhliða verkefnum, fundum og öll...
28/02/2025

Misst símtöl og lengri svartími á netspjalli og tölvupósti geta verið misst tækifæri. Samhliða verkefnum, fundum og öllu sem fylgir amstri vinnudagsins getur verið ansi strembið að halda öllum boltum á lofti.

Þjónusta Halló gæti verið fullkomin lausn fyrir þitt fyrirtæki👀

Við búum til ánægða viðskiptavini! Svörum símanum og vöktum og svörum netspjalli og tölvupósti, allt eftir ykkar þörfum.
Snjallmennið okkar hún LINDA er svo til staðar 24/7, allt árið um kring🤝

Kynntu þér þjónustuna og áskriftarleið sem hentar þínum vinnustað. Við erum til þjónustu reiðubúin!🤗

Við sjáum um að svara þínum viðskiptavinum með persónulegum hætti og þú getur einbeitt þér að mikilvægum verkefnum á meðan.

Framtíðin þýtur áfram. OpenAI (framleiðandi ChatGPT) kynnti í gær Operator, þjón (agent) handa almenningi til þess klára...
21/02/2025

Framtíðin þýtur áfram. OpenAI (framleiðandi ChatGPT) kynnti í gær Operator, þjón (agent) handa almenningi til þess klára fyrir sig allskonar erindi með sjálfvirkum hætti.

Fyrst í stað er áherslan á innkaup, ferðalög, mat og veitingahús. Líklega virkar þetta þannig að næst þegar við förum til Tene getum við látið "þjóninn" velja ódýrasta flugið, finna rúmbetri sæti, og panta. Bóka hótel á Amerísku ströndinni og kannski tvo daga í Puerto de la Cruz, græja bílaleigubílinn og auðvitað taka frá borð á veitingastöðum.

Þessi þjónusta speglar snjallvélar eins og LINDU frá Halló. Þjónninn spyr og spjallvélin svarar. Fyrir venjuleg fyrirtæki eykur þetta mikilvægi þess að vera með tilbúið viðmót sem byggir á gervigreind til þess að svara öllum þeim fyrirspurnum sem neytendur munu senda út með aðstoð tækninnar á næstu árum.

Ímyndum okkur að við séum að kaupa parket, í stað þess að fara á 2-3 staði mun þjónninn leita upplýsinga byggt á þörfum okkar hjá ÖLLUM söluaðilum, bera saman verð (og mögulega gæði) og afhenda kaupandanum einfaldar leiðbeiningar. Fyrirtæki verða að undirbúa sig fyrir svona framtíð.

OpenAI announced that it is launching a research preview of Operator, an AI agent that can take control of a browser and perform tasks.

Gleðilegan Valentínusardag🌹 Það er extra ánægjulegt að fá hrós á svona dögum.Talandi um hrós þá erum við afar stolt af þ...
14/02/2025

Gleðilegan Valentínusardag🌹

Það er extra ánægjulegt að fá hrós á svona dögum.
Talandi um hrós þá erum við afar stolt af þessu fallega hrósi frá ánægðum viðskiptavini Halló. Reyndar svo stolt að við skelltum því auðvitað á vegginn okkar, sjá mynd😎

Við vonum að allir eigi frábæran og rómantískan dag, fullan af skemmtilegum hrósum.

Góða helgi frá okkur öllum í Halló🙌

Fjar-partý á vinnustöðum!🤩Halló er með skrifstofur í Reykjavík og á Ísafirði, en sumir starfsmenn búa erlendis og eru í ...
07/02/2025

Fjar-partý á vinnustöðum!🤩

Halló er með skrifstofur í Reykjavík og á Ísafirði, en sumir starfsmenn búa erlendis og eru í fjarvinnu🌍 Í desember prófuðum við að halda bingó á Teams, það var ótrúlega skemmtilegt! Frábærir viðskiptavinir Halló styrktu okkur og við erum svo þakklát, fengum ótrúlegt magn af glæsilegum vinningum og gjafabréfum🎁

Það verður klárlega reglulega fjar-partý hjá okkur, mælum með!🥳

Eins og við sögðum frá í byrjun árs ætlum við að nota gervigreind til þess að búa til enn fleiri ánægða viðskiptavini. Á...
31/01/2025

Eins og við sögðum frá í byrjun árs ætlum við að nota gervigreind til þess að búa til enn fleiri ánægða viðskiptavini. Án þess að fórna mannlegri þjónustu og hlýju🦾

LINDA er gervigreind sem felur í sér þrjú ólík þjónustuþrep, spjallvél, þekkingargrunn og mannlega svörun. Þjónustan er að okkar mati mun betri en fyrri tilraunir til þess að sjálfvirknivæða svörun og mun umbylta því hvernig fyrirtæki veita viðskiptavinum þjónustu ⚡️

Við hlökkum til að heyra frá áhugasömum viðskiptavinum🤩

Viltu auka þjónustu við viðskiptavini? LINDA sinnir almennum og meðal flóknum fyrirspurnum og þjónustufulltúar Halló sinna flóknu fyrirspurnunum. Viðskiptavinirnir eiga það besta skilið.

Her má sjá bílaplanið okkar í Nóatúninu🚗Nú þarf að tryggja að litapalletan haldist. .brot úr næsta atvinnuviðtali:“Eitt ...
24/01/2025

Her má sjá bílaplanið okkar í Nóatúninu🚗
Nú þarf að tryggja að litapalletan haldist. .brot úr næsta atvinnuviðtali:
“Eitt að lokum, áttu bíl og er hann rauður?🤔”

Á þessum fallega föstudegi er tilvalið að vekja athygli á þjónustu Mood Up🤩Púlsmælingarnar er öflugt tól. Við höfum nýtt...
17/01/2025

Á þessum fallega föstudegi er tilvalið að vekja athygli á þjónustu Mood Up🤩

Púlsmælingarnar er öflugt tól. Við höfum nýtt niðurstöður í ýmsar bætingar og breytingar, sem dæmi lengdum við matartíma starfsfólks Halló eftir fyrstu niðurstöður🍴

Við hlökkum til að halda áfram og gera vinnustaðinn okkar enn betri. Takk fyrir flotta og mikilvæga þjónustu Mood Up🙌

Gleðilega nýtt ár kæru viðskiptavinir Halló🥳 Saman höfum við búið til þúsundir ánægðra viðskiptavina á árinu sem er að l...
09/01/2025

Gleðilega nýtt ár kæru viðskiptavinir Halló🥳 Saman höfum við búið til þúsundir ánægðra viðskiptavina á árinu sem er að líða.
2025 ætlum við að nota gervigreind til þess að búa til enn fleiri ánægða viðskiptavini🦾

Megi árið 2025 verða öllum okkar viðskiptavinum farsælt og gott. Sérstakar þakkir til viðskiptavina sem hafa aðstoðað okkur við að þróa LINDU eins og Nespresso, Ísafjarðarbær, Tryggingar og ráðgjof, Katla Fitness o.fl.

LINDA, ný þjónustulausn Halló sem nýtir gervigreind, mun umbylta því hvernig fyrirtæki veita viðskiptavinum þjónustu.

04/01/2022

Um áramót er mikilvægt að horfa fram í tímann, hér eru 10 atriði sem erlendir þjónustusérfræðingar segja mikilvæg árið 2022. En fyrst eru tvö atriði sem starfsfólk Halló telur mjög mikilvæg.

Númer eitt frá Halló - þú verður að bjóða neytendum að eiga samskipti við fyrirtækið þitt með netspjalli og/eða skilaboðum á samfélagsmiðlum. Númer tvö frá Halló - þú þarft að hafa samband við viðskiptavinina þína að fyrra bragði og þakka þeim fyrir viðskiptin (án þess að reyna að selja þeim eitthvað í leiðinni). Við getum aðstoðað í báðum tilvikum.

Og hér eru ráðin frá erlendu sérfræðingunum:

#1 - Samhæfð svörun (omnichannel) felur í sér að viðskiptavinir hafa samskipti við fyrirtækið þitt eftir ólíkum leiðum (sími, netspjall, samfélagsmiðlar o.fl.) en þú svarar og hefur yfirsýn eins og um eina leið væri að ræða. Við getum aðstoðað.

#2 - Rauntímastuðningur, viðskiptavinir sem eru að ferðast um vefinn þinn og velta fyrir sér kaupum á vöru eða þjónustu þurfa að geta fengið samband við manneskju sem aðstoðar ef þörf er á. Við getum aðstoðað.

#3 - Síminn ræður för, öll tækni og viðmót þarf að styðja símanotendur. Neytendur nota skjáinn á símanum meira en tölvuskjáinn til þess að stunda viðskipti.

#4 - Sjálfshjálp, neytendur vilja klára viðskiptin sín sjálfir ef það er mögulega hægt. Það er ekki bara góð þjónusta heldur hagkvæmt fyrir alla aðila.

#5 - Góð mannleg þjónusta, þó svo tæknin sé mikilvæg og neytendur vilji gjarnan afgreiða sín mál sjálfir hefur góð mannleg þjónusta aldrei verið mikilvægari. Hér getur Halló aðstoðað.

#6 - Hagræðing og sjálfvirkni í þjónustu sem meðal annars getur falið í sér hálf-sjálfvirkni við svörun á textaskilaboðum (spjallmenni) er áhugaverður kostur fyrir fyrirtæki og stofnanir sem svara miklu magni staðlaðra fyrirspurna. Við getum aðstoðað.

#7 - Persónuleg upplifun skiptir öllu máli í viðskiptum. Viðskiptavinurinn á að finna hvað hann skiptir miklu máli óháð ferlum og tæknivæðingu. Hér getur Halló aðstoðað.

#8 - Samfélagsmiðlar skipta afar miklu máli í þjónustuupplifun viðskiptavina. Slíkir miðlar þurfa þó að vera hluti af heildarviðmóti fyrirtækisins og tala sama máli og aðrir miðlar og önnur samskipti.

#9 - Vélnám (machine learning) mun skipta miklu máli á næstu árum þegar tölvur geta lært hvaða þarfir viðskiptavinir þínir hafa og hvernig eigi að uppfylla þær. Ekki hafa samt miklar áhyggjur af þessu á fyrri hluta ársins :).

#10 - Heildarupplifun viðskiptavinarins er það sem skiptir öllu máli, þar koma við sögu margir þættir sem þurfa að vinna saman að því að láta viðskiptavinina finna að þeir eru að upplifa eitthvað sérstakt, að varan og þjónustan sem þú veitir þeim sé eitthvað sem skiptir máli. Við getum aðstoðað

Miðlun ehf er á meðal 2,2% íslenskra fyrirtækja sem Viðskiptablaðið og Keldan hafa valið sem Fyrirmyndafyrirtæki í rekst...
01/11/2021

Miðlun ehf er á meðal 2,2% íslenskra fyrirtækja sem Viðskiptablaðið og Keldan hafa valið sem Fyrirmyndafyrirtæki í rekstri 2021. Við erum ákaflega stolt af þessari viðurkenningu vegna þess að góður og stöðugur rekstur er forsenda þess að hægt sé að byggja fyrirtæki, hanna verkferla og ráða afburða starfsfólk sem getur búið til ánægða viðskiptavini í þúsundatali á hverjum degi.
Takk fyrir starfsfólk Halló og takk fyrir viðskiptavinir Halló sem margir hafa verið með okkur í meira en áratug.

Address

Noatun 17
Reykjavík

Telephone

+3544408600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Halló posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Halló:

Share