28/01/2018
Ræða sem nemandi hélt fyrir samnemendur sína eftir Davis námskeið og námskeiðið "Aftur í nám" hjá Mími Símenntun:
"Það er í dag sem grunnurinn að nýja stóra húsinu mínu kláraðist, ómetanlegur með öllu fyrir land og þjóð.
Ég er jú að tala um námskeiðið sem við erum að klára hérna í dag. Þetta námskeið hefur opnað fyrir mér líf sem hefur verið mér lokað alla mína tíð. Eins hefur þetta lokað svo mörgum dyrum sem hafa gert lítið annað en að draga úr mér þol og kjark.
Ímyndið ykkur að þið séuð 8 ára gömul og lífið hefur leikið við ykkur, þú ert klár, mamma og pabbi stolt af þér, enda fellur þú fullkomlega inn í daglegt líf. En allt í einu upplifir þú allt þitt stolt rifið í burtu vegna þess að þú horfir á lífið frá annarri hlið, þú upplifir bara ekki stafina á blaðinu eins og allir aðrir vilja.
Hvað hefur þessi tilfinning lagt margar sálir að velli?? Jú, þær eru orðnar allt of margar og kannski það versta er, að þetta er ennþá að viðgangast í skólakerfi okkar!!! Hvað þarf til þess að opna þetta annars ágæta skólakerfi okkar fyrir nýjum fræðum og hugmyndum?? Þú lærir jú svo lengi sem þú lifir...á það ekki við um skólakerfi einnig??
Að lokum vil ég þakka eftirtöldum aðilum fyrir þetta frábæra námskeið:
Stéttarfélögum okkar og ríki fyrir að koma svo veglega að þessu.
Davis kennurum okkar sem kenndu okkur marga skrítna en gagnlega hluti.
Svo á Mímir sérstaklega miklar þakkir fyrir framsýni og dugnað í sínu starfi.
En mest vil ég þakka okkur sjálfum fyrir að taka þátt.
Verum Mímis megin í lífinu."