21/08/2025
Næsti Viðskiptahraðall Senza hefst 5.sept 25!
Fyrir þá sem vilja stofna fyrirtæki, en líka þá sem eru í rekstri og vilja endurskipuleggja, afla nýrra viðskiptavina eða gera fjárfestakynningar og styrkumsóknir.
Við hittumst 8 sinnum á skipulögðum fundum yfir tveggja mánaða tímabil, yfirleitt 2 klst í senn.
Lágmark 8 og hámark 18 teymi geta tekið þátt (teymi getur verið 1-5 einstaklingar).
Innifalið er netnámskeið Senza í Rannís skrifum (59.900 kr. virði) https://tinyurl.com/4utk8ja6
SKRÁÐU ÞIG NÚNA!
https://senza.teachable.com/p/vidskiptahradall
HVAÐ ER GERT Í HRAÐLINUM
Hraðallinn samanstendur af 6 fyrirlestratímum Senza þar sem þú lærir að ramma inn viðskipta- og fjárhagsáætlun þína, móta stefnu, gera fjárfestakynningar, æfa framsögu og skrifa styrkumsókn ef það á við, auk þess sem farið er yfir helstu atriði við stofnun og rekstur sprotafyrirtækja á Íslandi. Fyrirlestrarnir gætu verið teknir upp til notkunar í seinni hröðlum.
Samhliða fyrirlestrunum og í anda LEAN aðferðafræðinnar ferð þú út úr húsi að hitta mögulega framtíðarnotendur vöru þinnar eða þjónustu og taka notendaviðtöl, eða byrja að selja ef það á við. Þú horfir jafnfóðum á stutt myndskeið frá Steve Blank eins af höfundum LEAN aðferðafræðinnar þar sem ferlið er útskýrt, og fyllir svo út stöðuskýrslu á netinu um hvernig gekk.
Í hraðlinum munt þú halda lyfturæðu, fjárfestakynningu og tvær munnlegar stöðuskýrslur fyrir hópinn, en það að kynna hugmyndina þína og fá uppbyggilega endurgjöf er einn mikilvægasti þátturinn þegar nýtt viðskiptamódel er þróað.
352 TEYMI HAFA ÚTSKRIFAST
Frá vori 2021 hefur Senza í 32 skipti haldið sambærilegan 2ja mánaða viðskiptahraðal, fyrir og í góðri samvinnu við Vinnumálastofnun, undir nöfnunum Frumkvæði og Initiative.
Á þessum fjórum árum hafa 352 teymi eða frumkvöðlar útskrifast og okkur telst til að um 117 fyrirtæki séu enn í blómlegum rekstri eða rúmlega þriðjungur.
LEIÐBEINANDI
Einar Sigvaldason
MBA frá UC Berkeley, viðskiptafræðingur
og löggiltur verðbréfamiðlari frá HÍ.
Stjórnendaþjálfi og námskeiðshaldari hjá www.senza.is.
Frkvstj. og ráðgjafi þróunarstyrkja hjá www.horizonpartners.is.
Stjórnendaþjálfi hjá European Innovation Council (EISMEA)
15 ár framkvæmdastjóri 3ja sprota á hugbúnaðarsviði.
20 ár í nýsköpun á Íslandi og í San Francisco.
Sambærileg kennslustörf:
"Nýsköpun og viðskiptaþróun I og II" á meistarastigi í HÍ.
Kennari og umsjónarmaður Frumkvæðis VMST, nánar ofar.
Umsjónarmaður fyrirtækjasmiðju hjá Atvinnumálum Kvenna, Mími, Iðunni, MSS, SSNV og Vestfjarðarstofu