Ráðgjafar- og greiningarstöð

Call Directions Website Contact the business

Ráðgjafar- og greiningarstöð Facebook síða RGR er vettvangur stofnunarinnar til að miðla upplýsingum um námskeið og fleira í starfsemi RGR.

Síðan er ekki ætluð til umræðu um einstaklingsmál eða faglegar áherslur. Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á margvísleg fræðslunámskeið sem tengjast öðruvísi taugaþroska og fötlunum barna. Einnig eru í boði sérhönnuð námskeið fyrir skóla, leikskóla, sveitarfélög eða aðra áhugasama sem er hægt að bóka sérstaklega. Frá því að stofnunin tók til starfa hefur á hverju vori verið haldin ráðstefna sem er stærsti faglegi vettvangur þeirra sem tengjast börnum með öðruvísi. Vorráðstefnan er í maí á hverju ári og upplýsingar má nálgast á vef Ráðgjafar- og greiningarstöðvar www.rgr.is

Fræðslusvið Ráðgjafar- og greiningarstöðvar skipuleggur einnig aðrar stórar ráðstefnur í samvinnu við stofnanir eða samtök þ.m.t. ráðstefnur með erlendum fyrirlesurum og þátttakendum.

💬 Hvernig getum við stutt ungmenni með öðruvísi taugaþroska á unglingsárunum?Á námskeiðinu Öðruvísi taugaþroski – áskora...
02/11/2026

💬 Hvernig getum við stutt ungmenni með öðruvísi taugaþroska á unglingsárunum?

Á námskeiðinu Öðruvísi taugaþroski – áskoranir unglingsáranna fjöllum við um styrkleika, sjálfsmynd, líðan og samskipti ungmenna með öðruvísi taugaþroska. Einnig skoðum við hvernig skipulag og aðlögun umhverfis geta aukið þátttöku og lífsgæði.

Námskeiðið er ætlað foreldrum, aðstandendum og öllum sem starfa með ungmennum með öðruvísi taugaþroska.

📅 18. og 19. nóvember 2026
🕐 Kl. 13:00–16:00 báða dagana
💻 Fjarkennsla

🇵🇱 Spektrum autyzmu – kurs online w języku polskimRáðgjafar- og greiningarstöð zaprasza na kurs online dla polskojęzyczn...
28/10/2026

🇵🇱 Spektrum autyzmu – kurs online w języku polskim

Ráðgjafar- og greiningarstöð zaprasza na kurs online dla polskojęzycznych rodziców, opiekunów i specjalistów, którzy opiekują się dziećmi w spektrum autyzmu, wspierają je lub uczestniczą w ich edukacji.

Podczas kursu omówimy najważniejsze cechy spektrum autyzmu, proces diagnozy oraz wpływ autyzmu na życie rodziny. Porozmawiamy również o znaczeniu współpracy rodziców i specjalistów.

📅 25 listopada 2026 r.
🕧 Godz. 12:30–16:00
💻 Kurs online w języku polskim

Więcej informacji i zapisy:
👉 https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/spektrum-autyzmu-po-polsku-1126

---------------------------------------------------------------------

🇮🇸 Einhverfurófið – fjarnámskeið á pólsku

Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á fjarnámskeið fyrir pólskumælandi foreldra, aðstandendur og fagfólk sem sinna einhverfum börnum, styðja þau eða koma að menntun þeirra.

Á námskeiðinu verður fjallað um helstu einkenni einhverfu, greiningarferlið og áhrif einhverfu á fjölskyldulíf. Einnig verður rætt um mikilvægi samstarfs foreldra og fagfólks.

📅 25. nóvember 2026
🕧 Kl. 12:30–16:00
💻 Fjarnámskeið á pólsku

Nánari upplýsingar og skráning:
👉 https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/spektrum-autyzmu-po-polsku-1126

Tákn með tali – fjarnámskeið 💬Viltu kynnast því hvernig hægt er að nota tákn með tali til að styðja við tjáskipti?Á náms...
27/10/2026

Tákn með tali – fjarnámskeið 💬

Viltu kynnast því hvernig hægt er að nota tákn með tali til að styðja við tjáskipti?

Á námskeiðinu er fjallað um hugmyndafræði tákns með tali (TMT) og kennd tákn sem nýtast í daglegu lífi og starfi. Þátttakendur fá einnig hugmyndir að leiðum til að örva tjáskipti og tækifæri til að æfa sig og deila reynslu.

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynna sér TMT, meðal annars aðstandendum og starfsfólki leikskóla, grunnskóla og annarra stofnana.

📅 5. nóvember 2026
🕘 Kl. 9:00–16:00
💻 Fjarkennsla – þátttakendur þurfa að vera í mynd

Nánari upplýsingar og skráning:
https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/takn-med-tali-fjarkennsla-1126

Einhverfurófið – grunnnámskeið 💜Viltu auka þekkingu þína á einhverfu og skilning á þörfum barna á einhverfurófi og fjöls...
26/10/2026

Einhverfurófið – grunnnámskeið 💜

Viltu auka þekkingu þína á einhverfu og skilning á þörfum barna á einhverfurófi og fjölskyldna þeirra?

Á námskeiðinu er fjallað um helstu einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, áhrif á fjölskylduna og mikilvægi samstarfs foreldra og fagfólks.

Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, íhlutun og kennslu barna á einhverfurófi og er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu.

💻 Fjarnámskeið
📅 4. nóvember 2026, kl. 9:00–14:00

Skráning fer fram hér:
https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/einhverfurofid-grunnnamskeid-1126

💬 Hvernig getum við stutt við tjáskipti barna í leik og daglegu lífi?Á fjarnámskeiðinu „Fjölbreyttar og styðjandi tjáski...
14/10/2026

💬 Hvernig getum við stutt við tjáskipti barna í leik og daglegu lífi?

Á fjarnámskeiðinu „Fjölbreyttar og styðjandi tjáskiptaleiðir“ verður fjallað um myndrænan stuðning, ólíkar tjáskiptalausnir og hagnýt ráð til að byrja að nota þær með börnum. Sérstök áhersla verður lögð á kjarnorðaforða.

Námskeiðið er ætlað foreldrum, starfsfólki leik- og grunnskóla og öðrum sem vilja kynna sér þessar leiðir.

📅 26. október kl. 13–16
💻 Fjarnámskeið

👉 Nánari upplýsingar og skráning:
https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/fjolbreyttar-og-stydjandi-tjaskiptaleidir-fjarkennsla-1026

📣 Umsóknarfrestur rennur út á morgun, 15. október!Við leitum að tveimur sálfræðingum til starfa hjá Ráðgjafar- og greini...
14/10/2026

📣 Umsóknarfrestur rennur út á morgun, 15. október!

Við leitum að tveimur sálfræðingum til starfa hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð.

Gæti þetta verið þitt næsta starf eða starf fyrir einhvern sem þú þekkir? Kynntu þér auglýsinguna hér fyrir neðan 👇

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laus til umsóknar störf tveggja sálfræðinga. Leitað er að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Ráðgjafar- og greiningarstöð hélt kynningu og þjálfun um námsefnið Sambönd og samskipti fyrir ungmenni (Relationships De...
08/10/2026

Ráðgjafar- og greiningarstöð hélt kynningu og þjálfun um námsefnið Sambönd og samskipti fyrir ungmenni (Relationships Decoded for Adolescents) dagana 5. og 6. október.

Fjórir fyrirlesarar komu frá Bandaríkjunum til að kynna efnið og þjálfa fagfólk í notkun þess. Um 70 þátttakendur sóttu kynninguna fyrri daginn og um 50 tóku þátt í þjálfuninni þann síðari.

Námsefnið er ætlað ungmennum með ódæmigerðan taugaþroska, meðal annars einhverfu og/eða þroskahömlun. Það fjallar um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni. Markmiðið er að auka skilning og öryggi ungmenna í samskiptum.

Fyrri daginn fengu foreldrar, aðstandendur og fagfólk kynningu á efninu og fræðilegum grunni þess. Seinni daginn fékk fagfólk hagnýta þjálfun í notkun þess, meðal annars með kennsluáætlunum, sjónrænum stuðningi og verkefnum sem hægt er að laga að þörfum ólíkra einstaklinga og hópa.

📚 Unnið er að íslenskri þýðingu á efninu fyrir 12–20 ára ungmenni og er áætlað að hún verði tilbúin í kringum áramót. Efnið má kynna sér hér: https://relationshipsdecoded.com/

Námsefnið fyrir fullorðna frá 20 ára aldri er þegar aðgengilegt á íslensku á vefnum Stopp ofbeldi: https://stoppofbeldi.mms.is/fraedsluefni/sambond-og-samskipti-relationship-decoded/

Ráðgjafar- og greiningarstöð þakkar fyrirlesurum og þátttakendum fyrir dagana tvo!

Hvernig birtist kvíði hjá börnum með ódæmigerðan taugaþroska og hvernig getum við stutt þau? 💙Á þessu hagnýta fjarnámske...
07/10/2026

Hvernig birtist kvíði hjá börnum með ódæmigerðan taugaþroska og hvernig getum við stutt þau? 💙

Á þessu hagnýta fjarnámskeiði er farið yfir helstu einkenni kvíða og leiðir til að draga úr kvíða og óöryggi barna.

Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla en getur einnig nýst foreldrum eldri barna og fagfólki.

📅 13. og 20. október
🕧 Kl. 12:30–15:30 báða dagana
💻 Fjarkennsla

Nánari upplýsingar:
https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/kvidi-barna-med-odaemigerdan-taugathroska-fjarkennsla-1026

Við leitum að tveimur sálfræðingum í teymið okkar hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð! 🌿 Umsóknarfrestur er til 15. október...
07/10/2026

Við leitum að tveimur sálfræðingum í teymið okkar hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð! 🌿

Umsóknarfrestur er til 15. október.

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laus til umsóknar störf tveggja sálfræðinga. Leitað er að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Address

Lágmúla 9, 5. Hæð
Hafnarfjörður
108

Telephone

+3545108400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ráðgjafar- og greiningarstöð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ráðgjafar- og greiningarstöð:

Shortcuts

Share